01.04.1982
Neðri deild: 60. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3504 í B-deild Alþingistíðinda. (3053)
55. mál, lánsfjárlög 1982
Geir Hallgrímsson:
Herra forseti. Við 2. umr. þessa frv. var að því fundið, að tillaga var gerð um að veita heimild til niðurskurðar ríkisútgjalda án þess að skýring eða upplýsingar fengjust um hvernig þessi heimild mundi verða notuð. Þá kvaðst hæstv. fjmrh. hafa gert stjórnaraðilum grein fyrir þessu og mundi gera þinginu nánar grein fyrir þessu við 3. umr., ef ég man rétt. Ég tók þá fram að ég teldi þetta ekki fullnægjandi og með þessum hætti og vinnubrögðum væri Alþingi óvirðing sýnd.
Hæstv. fjmrh. hóf síðan í fyrradag 3. umr. með ræðu þar sem hann vék að ýmsum málefnum varðandi frv., sem til umr. var, og ríkisfjármál almennt, án þess að gefa þá um það skýrslu eða upplýsingar, eins og í raun hafði verið heitið, nema mjög yfirborðslega, hvernig heimild til lækkunar ríkisútgjalda yrði notuð. Til marks um, hve yfirborðskennd frásögn hæstv. fjmrh. þá var, er sú staðreynd, að hann hefur afhent fjvn.-mönnum sérstaklega skriflegar upplýsingar í dag væntanlega, a.m.k. hafa nm. okkar í fjh.- og viðskn. ekki fengið þessar upplýsingar fyrr en í dag — rétt áður en seinni hluti 3. umr. hefst.
Ég held að allir þm. geri sér grein fyrir að þetta eru vinnubrögð sem eru fyrir neðan virðingu Alþingis og því fullkomlega réttmæt sú athugasemd og þær ávítur sem formaður þingflokks Sjálfstfl. bar hér fram. Ég vil til áhersluauka nefna sem dæmi þau orðaskipti sem hér fóru fram fyrr í dag, þar sem hv. 1. þm. Vestf., að því er mig minnir, spurði hæstv. félmrh. hvernig unnt væri að gera ráð fyrir niðurskurði er næmi 20 millj. kr. á útgjöldum Tryggingastofnunar ríkisins. Hæstv. félmrh. hefur verið spurður um þetta sama — ég veit ekki hve oft — meðan á þeim umr. hefur staðið sem hafa farið fram um þetta frv. Hann hefur setið sem fastast í sæti sínu þar til hann fann sig tilneyddan að svara þessari fsp. í dag. En þá var fsp. svarað á þann hátt að öllum þingmönnum var ljóst að hæstv. félm.- og trmrh. hafði ekki gert sér neina grein fyrir hvernig unnt væri að ná 20 millj. kr. niðurskurði í útgjöldum Tryggingastofnunar ríkisins. Það er rétt sem hv. 1. þm. Vestf. sagði þá, það er færð inn tala á pappír sem ekkert stendur á bak við. (Gripið fram í: Er þetta um fundarsköp?) Svo undrast þessir hæstv. ráðherrar að við látum ekki bjóða okkur slík vinnubrögð. Þetta er athugasemd um fundarsköp og slælega frammistöðu ráðherra gagnvart Alþingi til fullnægingar þeirri skyldu sem ráðh. ber að gegna gagnvart öðrum alþm.