02.04.1982
Efri deild: 63. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3534 í B-deild Alþingistíðinda. (3080)
55. mál, lánsfjárlög 1982
Frsm. minni hl. (Lárus Jónsson):
Herra forseti. Eins og fram kom í máli hæstv. fjmrh. er þetta frv. komið til okkar á nýjan leik úr Nd. Það má segja að það sé hálfgerður uppvakningur úr neðra, eins og við stundum köllum þá ágætu hv. deild. Upphaflega var ætlunin — hæstv. ríkisstj. lagði á það höfuðáherslu — að þetta mál yrði afgreitt fyrir jól. Þar voru þá ýmis vandkvæði sem stjórnarandstaðan benti mjög rækilega á, að víða vantaði ákvörðun um hvernig með ætti að fara mál ýmissa sem höfðu fengið synjun við afgreiðslu málsins af hálfu stjórnarliðsins í nefnd, auk þess að mál þetta var allt með þeim hætti að augljóst var að slík afgreiðsla væri algjör flaustursvinna af hálfu hins háa Alþingis.
Hæstv. ríkisstj. féllst á að láta málið bíða og varð samkomulag um að það biði til 27. jan., að loknu jólaleyfi þm. En síðan er liðinn allur sá langi tími sem menn vita. Nú er kominn 2. apríl og þetta frv. enn að velkjast hér á milli deilda eftir allítarlega umfjöllun í Nd.
Eins og hæstv. fjmrh. sagði urðu veigalitlar breytingar á þessu frv. til lánsfjárlaga fyrir árið 1982 á öllum þessum tíma. Þetta undirstrikar að hæstv. ríkisstj. hefur í rauninni gefist upp á að hafa ákveðna efnahagsstefnu. Hún heldur upp í í besta tilfelli, eins og gert er þegar bát rekur fyrir sjóum og vindum, en stefnir í rauninni ekki í nema ákveðna átt.
Ég mun ekki, herra forseti, ræða þetta mál mikið efnislega nú, en vil þó geta hér nokkurra meginatriða sem varða forsendur þessara lánsfjárlaga. Ég vil strax geta þess, að ég mun óska eftir að umr. verði frestað og málið komi fyrir hv. fjh.- og viðskn. þar sem ég mun óska eftir ákveðnum upplýsingum um málið eins og nú er komið. Bæði er það svo, að við sjáum betur, hver framvinda verður á þessu ári, heldur en var um áramótin, og auk þess eru enn ýmsir óljósir þættir í þessu máli sem ég tel að þurfi að upplýsa hv. Alþingi um, hvernig meiri hl. sá sem styður ríkisstj. hugsar sér að afgreiða málið að lokum.
Í þessu frv. er enn gert ráð fyrir því, að verðbólga á yfirstandandi ári verði aðeins 25–27%. Ég hef áður vakið athygli á því, að lánsfjárlög með slíkum forsendum eru miklu hættulegri en þó slíkar forsendur hafi verið fyrir fjárlagagerð, vegna þess að í þessu frv. og væntanlegum lánsfjárlögum er gengið út frá ákveðinni krónutölu til ýmiss konar framkvæmda og sú krónutala er miðuð við 25–27% verðbólgu á þessu ári. Slíkar áætlanagerðir eru náttúrlega algjörlega út í hött.
Nú vil ég upplýsa það, að ég hef nýlega haft samband við Hagstofu Íslands og hún spáir nú að framfærsluvísitala hækki um 11.7 fram að 1. maí, á þeim þremur mánuðum. Og þá hafa niðurgreiðslur í mars verið dregnar frá, sem eru 0.43. Þetta þýðir verðbólguhraða á 12 mánuðum upp á 55.7. Og hagstofustjóri upplýsir að óbreyttum Ólafslögum og óbreyttu ástandi verði verðbætur launa 1. júní um 10.10%, sem er langt, langt umfram forsendur þessa frv. og langt umfram það sem hæstv. ríkisstj. þykist stefna að á þessu ári.
Það er athyglisvert í þessu sambandi, að skerðing verðbóta á laun mun verða um 1.6% 1. júní, en eins og menn muna var skerðing verðbóta á laun 2.21% 1. mars s.l. Skerðing verðbóta á laun er því orðin 3.81% á þessu sex mánaða tímabili að óbreyttum Ólafslögum. Það er mjög athyglisvert að bera þetta saman við þá kjarasamninga sem gerðir voru í fyrra upp á grunnkaupshækkun 3.25%. Það er tekið gott betur en sú grunnkaupshækkun með þessum skerðingarákvæðum. Það er því ástæða til að vekja athygli á því, að þrátt fyrir allt þetta og þrátt fyrir þær niðurgreiðslur sem hæstv. ríkisstj. hugsar sér að auka svo mjög sem hér hefur komið fram,-aukning þeirra ein samsvarar meiri kostnaði fyrir ríkissjóð á ári heldur en lagt er til byggingar grunnskóla, sjúkrahúsa, dagvistarstofnana, hafna og flugvalla í landinu, aukningin ein, — þrátt fyrir þetta veður verðbólgan áfram með þessum hætti og er víðs fjarri því að nálgast þær forsendur sem eru í þessu lánsfjárlagafrv. Fleira styður þá skoðun að verðbólguhraðinn sé nú um 55%, nýlegir útreikningar á byggingarvísitölu o.s.frv.
Um þetta frv. hafa að vonum orðið miklar umr. Það er tvennt sem mönnum hefur orðið mjög tíðrætt um. Það er annars vegar innlendur sparnaður, hversu megi auka hann til þess að draga úr erlendum lántökum, og erlendar lántökur hins vegar. Formælendur ríkisstj. hafa haldið fram að innlendur sparnaður hafi stóraukist. Rétt er það, að innlán í peningastofnanir jukust á s.l. ári verulega umfram það sem þau hafa áður gert. En því miður er það svo, að heildarsparnaður í þjóðfélaginu í fyrra, þá því ári sem menn guma mest af því að peningalegur sparnaður hafi aukist, minnkaði stórlega. Sparnaður einstaklinga, sparnaður atvinnuveganna og opinber sparnaður minnkaði meira en sem nam aukningu peningalegs sparnaðar, þannig að heildarsparnaðurinn í þjóðfélaginu minnkaði og hefur ekki verið minni um mörg herrans ár en hann var í fyrra, einmitt á því ári sem menn guma af þessum peningalega sparnaði sem hefur aukist.
Því miður styður þetta þá skoðun mína, auk þess sem upplýsingar liggja nú fyrir um innlán í bankakerfið á þessu ári og þau hafa stórminnkað, að þetta frv. sé byggt á sandi að því er varðar innlenda fjáröflun.
Að því er varðar erlenda fjáröflun hef ég margsinnis bent á að staða erlendra lána, bæði nettóstaða og staða langra lána í hlutfalli við þjóðarframleiðslu, verður óhagstæðari eftir að þessi lánsfjárlög hafa verið samþykkt, verði þau samþykkt, heldur en nokkru sinni fyrr. Hæstv. fjmrh. hefur haldið hinu gagnstæða fram. Ég hef aflað mér upplýsinga um það frá Seðlabankanum, sem ég mun óska eftir í hv. nefnd að verði staðfestar þar, að löng erlend lán verða í ár, þegar þessi lánsfjárlög hafa verið samþykkt, 39% þjóðarframleiðslu, sem er langhæsta hlutfall sem um getur, og nettóstaða erlendra lána verður 34.9%, en ekki 32% og hæstv. ráðh. hefur haldið fram. Greiðslubyrðin verður 19% af útflutningstekjum í stað þess að stjórnarsáttmálinn gerir ráð fyrir að þar verði ekki farið fram úr 15% sem hámarki.
Þessi atriði vil ég gjarnan fá staðfest frá viðkomandi aðilum í nefnd og þess vegna hef ég óskað eftir að hlé verði gert á þessari umr. og hv. fjh.- og viðskn. geti komið saman til að fá staðfestingu á þessum upplýsingum auk annara upplýsinga áður en endanlega verður gengið frá þessu máli.