04.11.1981
Efri deild: 9. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 442 í B-deild Alþingistíðinda. (310)

Umræður utan dagskrár

Fjmrh. (Ragnar Arnalds):

Herra forseti. Að gefnu tilefni vil ég endurtaka það sem ég sagði áðan, að ekki kemur annað til greina en að það gildi sömu samningar um kennara við Hamrahliðarskólann og kennara við öldungadeildir annarra skóla. Ef þannig stendur á í vetur að fámenni er í einstökum bekkjardeildum eða ekki er um tvöfaldan hraða að ræða í einhverjum undantekningartilvikum í Hamrahlíðarskólanum, sem mér skilst að sé lítið um, verður að sjálfsögðu ekki greitt 60% álag þar. Hins vegar hefur verið gert ráð fyrir að hinir fyrri samningar gildi gagnvart Hamrahlíðarskólanum út þessa önn. En það verður að sjálfsögðu látið eitt yfir alla ganga hvað þetta atriði snertir. Málið er ósköp einfaldlega þannig, að fjmrn. hefur talið, að aðstæður hafi breyst það verulega að óhjákvæmilegt sé að endurskoða samninga um launakjör öldungadeildarkennara, og er alls ekki reiðubúið að endurnýja þá óbreytta meðan kennararnir hafa aftur á móti gert ítrekaðar tilraunir til að knýja það í gegn, að samningarnir séu samþykktir algerlega óbreyttir. Um þetta stendur deilan.

Ég átti viðræður við forustumenn Hins íslenska kennarafélags um miðja seinustu viku. Þá varð niðurstaðan að viðræður héldu áfram í þessari viku. Ég veit ekki hvaðan dagsetningin 12. nóv. er komin. Það var a. m. k. ekki minnst á hana í viðræðum mínum við formann kennarasamtakanna, Jón Hnefil Aðalsteinsson, og forustumann kennarasambandsins, Guðmund Árnason. Í okkar samtali um miðja seinustu viku var frá því gengið og ekki um neitt annað talað en að viðræður mundu hefjast af fullum krafti núna eftir helgina. Þessi dagsetning hefur kannske einhvers staðar flogið fyrir. Ég veit það ekki. Hún er ekki frá okkur komin.