02.04.1982
Neðri deild: 61. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3555 í B-deild Alþingistíðinda. (3100)

Umræður utan dagskrár

Viðskrh. (Tómas Árnason):

Herra forseti. Ég skal ekki flytja langt mál.

Hv. þm. Matthías Bjarnason gagnrýndi það að veitt væru leyfi fyrir lánum utan við Fiskveiðasjóð á sama tíma sem hann skýrði frá því, að óskað hefði verið eftir því við mig, að ég gerði það. Auðvitað má deila um það, hverjum á að veita leyfi og hverjum ekki. En ég vil endurtaka það, að ég álit að það þurfi að vera sérstakar aðstæður fyrir hendi.

Hv. þm. Garðar Sigurðsson flutti hér talsvert mikla ræðu um að það ætti ekki að flytja inn fleiri skip. Ég man ekki betur en hann væri á eftir mér eins og grár köttur í sambandi við innflutning á bátum til Vestmannaeyja. Það er langbest að menn fái að heyra það, hvernig þeir tala utan þingsala og hvernig þeir tala hér inni í þingsölum. Ég kann ekki við þetta.

Vestmanneyingar fengu endurnýjun á skipum, nokkrum bátum. Ég hef ekki verið að telja það eftir. Ég held að varla verði talið að þeir hafi allir verið samflokksmenn mínir, það held ég ekki, ef menn eru að blanda þeim málum saman. Og ég verð að segja það, að ég hefði áhuga á að gerð væri úttekt á þeim leyfum, sem ég hef veitt til innflutnings á skipum, með tilliti til þess, hvar menn eru í pólitík. Ég er ansi hræddur um að það mundu verða fleiri en framsóknarmenn sem þar koma við sögu — miklu fleiri. Ég er dálítið þreyttur á þessum söng um sjávarútveginn, söngnum um að það sé allt of mikil fjárfesting í sjávarútvegi, undirstöðuatvinnuvegi þjóðarinnar. Ætli það sé ekki víðar pottur brotinn í sambandi við fjárfestingu í landi voru heldur en í sjávarútvegi? Er ég þó á engan hátt að draga úr því, að það sé sjálfsagt að stækka fiskiskipaflotann ekki of mikið. Hitt er annað mál, að sagan sannar að það er hægt að fiska mikið á gömul skip. Það var veitt leyfi hér fyrir tveimur árum líklega, — ég held að það hafi verið áður en ég varð viðskrh., — fyrir 10 eða 11 ára bát til Þorlákshafnar. Hann var keyptur fyrir mjög lágt verð. Þetta var aflaskipið, þetta var toppurinn á aflanum á næstu vertíð, þannig að það eru mörg sjónarmið sem koma til greina þegar rætt er um þessi mál. Ég álít, og hef það mikið traust á útgerðarmannastéttinni, þeim sem gera út skip í landinu, að þeir hljóti að hafa mikið um það að segja hvernig þeir vilji fjárfesta, hvaða skip þeir vilji kaupa o.s.frv.

Það er kannske ýmislegt fleira, herra forseti, sem ég vildi segja að gefnu tilefni. (Forseti: Það verður að bíða.) Ég skal láta máli mínu lokið.