04.11.1981
Efri deild: 9. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 443 í B-deild Alþingistíðinda. (312)

Umræður utan dagskrár

Karl Steinar Guðnason:

Herra forseti. Aðeins örfá orð.

Það er þessi dagsetning, 12. nóv. Hún er komin beint frá fulltrúum fjmrh. Þeir neituðu að ræða við kennara fyrr en þá og því varð þessi vinnustöðvun. Það er og svo, að kennarar í Fjölbrautaskóla Suðurnesja ætluðu að freista þess að ná samkomulagi um að fresta aðgerðum, líkt og þeir á Akranesi munu hafa samþykkt. Ég vona einnig að svo verði. En það er alveg fyrirsjáanlegt, að ef ekki næst samkomulag, ef á að streitast svona við að veita landsbyggðarskólum jafnrétti á við aðra, þá munu öldungadeildirnar bíða mikið tjón af. Reyndar óttast ég að næsta önn geti ekki hafist.