02.04.1982
Neðri deild: 61. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3592 í B-deild Alþingistíðinda. (3133)
257. mál, málefni aldraðra
Alexander Stefánsson:
Herra forseti. Ég vil sérstaklega fagna því, að þetta frv. til l. um málefni aldraðra er nú komið formlega fram á Alþingi, og veiti því stuðning. Ég vil taka það fram í upphafi, að eins og kom fram þegar frv. um heilbrigðis- og vistunarþjónustu fyrir aldraða var hér til umr. á síðasta þingi gerði ég grein fyrir afstöðu þingflokks Framsfl. til þess frv., en þingflokkurinn lagðist þá gegn samþykkt þess eins og það var lagt fram af ríkisstj., en óskaði eftir að það yrði tekið til umfjöllunar og umsamið og endurbætt og stóð síðan að því að Framkvæmdasjóður aldraðra yrði að lögum.
Frv., sem hér liggur fyrir, er með þeim hætti að það er ástæðulaust annað en leggja til að það verði afgreitt með eins miklum hraða og hægt er því að hér er tekið á mikilvægu máli. Ég vil vitna til þess, að ég tel að ýmislegt í þessu frv. sé vissulega stefnumarkandi og ástæðulaust annað en fylgja því fram. Þörfin fyrir að taka þessi mál föstum tökum er öllum ráðandi öflum ljós fyrir löngu, og sem betur fer hefur hafist almenn umræða um þessi mál á opinberum vettvangi, sem er tiltölulega nýtt hér á landi í svo miklum mæli sem nú hefur orðið, og ber alveg sérstaklega að fagna því. Í þessum umr. hafa augu manna beinst að því framtaki sem hefur verið í þessu landi, og ástæða er til að undirstrika í umr. nú framtak eigenda Elliheimilisins Grundar og það brautryðjendastarf sem þeir aðilar hafa unnið unnið og eins aðilar og samtök sem hafa staðið að DAS og fleiri félagasamtökum sem vinna að slíkum málum. Hér er um mjög lofsvert framtak að ræða sem ég held að öllum sé ljóst að þjóðinni ber að þakka og efla þessa starfsemi. En það er skoðun mín, að samstillt átak þjóðarinnar allrar þurfi að koma til einmilt nú þegar öllum er ljóst orðið eftir þær miklu umræður, sem fram hafa farið, að það þarf að gera miklar umbætur á þessu sviði. Sumar þarf að gera fljótt, en aðrar þurfa vandaðan undirbúning og taka lengri tíma.
Ég vil sérstaklega geta þess hér, að ég tel að sveitarfélögin í landinu hafi mörg hver farið myndarlega af stað í sambandi við þennan málaflokk, bæði að því er varðar byggingu íbúða fyrir aldraða og vistunarheimili, og því hefur verið vaxandi gaumur gefinn að hefja byggingu eða undirbúning að byggingu hjúkrunarheimila fyrir aldrað fólk. Þetta er eitt af því sem er mest aðkallandi og hefur verið mest gagnrýnt hvernig ástand á þessu sviði er hjá okkur.
Ég tel líka að stofnun Öldrunarráðs Íslands á s.l. hausti hafi verið merkur áfangi í þessum málum, og það takmark, sem það hefur sett sér, að bæta lífsafstöðu aldraðra og verkefni, er mjög vel til fundið. Þarna eru margir öflugir aðilar sem geta gert stórvirki á þessu sviði ef þeir eru sameinaðir til átaka og vilja í raun vinna að úrlausn þessara mála.
Mitt mat er einnig það, að um leið og þessi mál eru tekin föstum tökum sé það rétt stefna, sem kemur fram í frv., að tengja þjónustu við aldraða heilsugæslustöðvum í landinu. Við höfum lagt gífurlegt fjármagn í að byggja upp heilsugæslustöðvar víðs vegar um landið og þá hlýtur að vera eðlilegt að tengja með löggjöf og skipulagi þá starfsemi, sem þar er til staðar, öldrunarþjónustu. Þar kemur til þáttur eins og heimahjúkrun.
Ég minntist á sveitarfélögin. Ég tel að þau eigi að hafa meiri og meiri afskipti af öldrunarmálum og ekki hvað síst að því er varðar húsnæðismál aldraðra. Ég tel að það eigi að efla og auka heimilisþjónustuna fyrir forgöngu sveitarfélaga. Út af fyrir sig get ég vel fallist á að sú breyting, sem kemur fram í 27. gr. frv., sé vel viðunandi fyrir sveitarfélögin, miðað við þá aðstöðu sem er, þar sem þau eiga lögum samkvæmt nú að sjá algerlega um heimilisþjónustu með því að taka á sig 65% kostnaðar. Þetta finnst mér ekki óaðgengilegt og trúi því raunar og hef orðið var við að sveitarfélögin hafa áhuga á að sinna þessum málefnum algerlega. Auðvitað koma þau til með að taka þetta sem lið í þeirri kröfu, sem þau hljóta að gera og eru að gera, að fá til sín aukna tekjustofna. Það er eðlileg þróun sem hlýtur að fylgja breyttu skipulagi á málefnum sveitarfélaganna á næstunni.
Ég legg einnig mikla áherslu á að haldið verði áfram að virkja samtök áhugafólks og félagasamtaka um þessi málefni og ekki hvað síst að efla samtök aldraðra sjálfra sem hafa sýnt í verki að þeir vilja fá möguleika til að leysa sjálfir sín húsnæðismál og bæta félagslega aðstöðu sína.
Í umr. hefur verið komið aðeins inn á grein sem ég skrifaði í Dagblaðið fyrir nokkru. Ég hef ekkert út af fyrir sig við það að athuga og ætla ekki að gera neina aths. við það nú, vegna þess að hv. 1. landsk. hefur leiðrétt það sem mér fannst hann segja ómaklega í minn garð í dag, og ég tek fyllilega til greina þá skýringu sem hann gaf á þessu, og afsökunarbeiðni. Í þessari grein gat ég þess, að Framsfl. hefur haft um langt skeið starfandi hóp af fólki sem hafði það hlutverk að fjalla sérstaklega um málefni aldraðra, safna upplýsingum um þau mál og gera tillögur til úrbóta og móta stefnu flokksins í þessum málum. Þessi starfshópur lauk áfanga í sínu starfi fyrir síðasta miðstjórnarfund Framsfl. og lagði fyrir miðstjórnina fastmótaðar tillögur sem samþykktar voru á síðasta miðstjórnarfundi. Mér finnst ástæða til að grípa ofan í örstuttan kafla, með leyfi hæstv. forseta, — ég skal reyna að tefja ekki umr. mikið, en mér finnst að það sé innlegg í 1. umr. þessa máls. Þar segir m.a.:
„Framsfl. minnir á að þjóðin stendur í mikilli þakkarskuld við hina öldruðu, sem búið hafa okkur í hendur það Ísland sem við eigum í dag, og lagt gull í lófa framtíðar. Þróun mála hér á landi bendir ótvírætt til hækkandi hlutfallstölu aldraðra. Bætt ytri skilyrði, eins og húsnæði, fæði, stóraukin heilsugæsla og félagsleg þjónusta, hafa nú afgerandi þýðingu til hærri aldurs. Framsfl. setur það fram sem markmið sitt í öldrunarmálum að aldraðir eigi jafnan völ á þeirri heilbrigðis- og félagslegri þjónustu sem þeir þurfa á að halda. Áríðandi er að þessi þjónusta sé veitt án tillits til efnahags eða búsetu og allir eigi svipaðan kost á að njóta hennar. Þessi þjónusta verði veitt á því þjónustustigi sem eðlilegast og hagkvæmast er miðað við þörf og ástand þess aldraða. Sérstaka áherslu ber að leggja á að öldruðum sé gert kleift að búa á eigin heimilum og í umhverfi sínu eins lengi og heilsa og kraftar leyfa, en fái jafnframt notið nauðsynlegrar þjónustu á stofnunum þegar hennar er þörf. Þá ber einnig að hafa að leiðarljósi grundvallarmannréttindi aldraðra sem og annarra einstaklinga í lýðræðisþjóðfélagi — réttinn til sjálfsákvörðunar, áhrifa og þátttöku.“
Síðan eru skilgreindir í þessari stefnumótun helstu þættir í málefnum aldraðra, þ.e. hlutverk ríkis, hlutverk sveitarfélaga, stjórnun og samræming, lífeyris- og tryggingamál., húsnæðis- og skipulagsmál, þjónusta utan stofnana, atvinnumál, samtök aldraðra og heilbrigðismál. Um hlutverk ríkisins segir svo:
„Hlutverk ríkisins skal vera að annast yfirstjórn öldrunarmála, tryggja nauðsynlega samræmingu, vinna að stefnumótun og áætlunargerð og sjá um að fjármagn til þessa málaflokks verði aukið. Framkvæmdasjóður aldraðra verði efldur. Heilbrigðis- og tryggingaráðuneytið annist þessa yfirstjórn. Komið verði á fót samstarfsnefnd um málefni aldraðra sem hafi það hlutverk að annast umsjón með þessum málaflokki og gera tillögur til rn. varðandi hana. Samstarfsnefndin verði skipuð fulltrúum frá sveitarfélögum, frá Öldrunarráði Íslands og frá heilbrigðisþjónustunni. Forðast skal of mikil ríkisafskipti af þessum málaflokki og koma í veg fyrir miðstýringu, sem draga mundi úr frumkvæði og áhuga sveitarfélaga, félagasamtaka og einstaklinga á þessu sviði.“
Um hlutverk sveitarfélaga segir svo: „Hlutverk sveitarfélaga skal vera að annast uppbyggingu og rekstur dvalarstofnana fyrir aldraða og annast heimaþjónustu fyrir þá. Þau skulu annast stjórn öldrunarmála hvert á sínu svæði eða í samvinnu við önnur sveitarfélög eftir því sem við á. Þau skulu tryggja nauðsynlegt samráð starfsfólks heilsugæslustöðva og annarra heilbrigðisstofnana og starfsfólks félagslegrar þjónustu sveitarfélaga um málefni aldraðra á viðkomandi svæði. Þau skulu gefa frjálsum félagasamtökum svigrúm til að vinna að málefnum aldraðra og veita slíkum samtökum stjórnunaraðild að dvalarstofnunum aldraðra, þar sem þáttur þeirra er verulegur í uppbyggingu stofnananna. Sveitarfélögin skulu taka þátt í fjármögnun við uppbyggingu dvalarstofnana fyrir aldraða, enda séu þeim tryggðir tekjustofnar svo að þau geti valdið þessu verkefni.“
Um lífeyris- og tryggingamál segir m.a.: „Flokkurinn vill að átak verði gert til úrbóta í lífeyris- og tryggingamálum aldraðs fólks, sem taki mið af því, að sem mestur jöfnuður ríki í lífeyrisgreiðslum. Óverjandi er að viðhalda því misrétti og misræmi sem nú viðgengst í tryggingamálum aldraðra, þ.e. annars vegar milli þeirra, sem njóta aðeins lífeyrissjóðs Tryggingastofnunar ríkisins, og hins vegar þeirra, sem að auki fá lífeyri úr einum eða fleiri lífeyrissjóðum.“
Þá vil ég koma inn á kaflann um húsnæðis- og skipulagsmál sem mér finnst vera mikilvægur í þessum málum: „Flokkurinn vill stuðla að því að aldrað fólk geti búið sem lengst á heimilum sínum og í því umhverfi sem það best þekkir og er því kærast. Lögð verði megináhersla á fjölþætt úrræði í húsnæðismálum aldraðra. Bent er á að með bættri hönnun og auknu eftirliti með byggingu almenns íbúðarhúsnæðis í landinu er unnt að reisa vandaðar íbúðir sem taka verulega mið af sérþörfum aldraðra umfram það sem hingað til hefur viðgengist. Þannig er líklegt að í mörgum tilfellum sé hægt að lengja dvalartíma aldraðra á eigin heimilum. Mikilvægt er að sveitarfélögin geri á því athugun hvar aðlögun húsnæðis að sérþörfum aldraðra sé raunhæf og æskileg í grónum hverfum þéttbýlisstaða, og hafi sveitarfélögin forgöngu um endurbætur húsnæðis eða nýbyggingar í stað lélegs og heilsuspillandi húsnæðis þeim til handa.
Þá skal á það minnt að þýðingarmikið er að sveitarfélögin sjái um að ætíð sé nægilegt framboð aðgengilegra smáíbúða í almennum íbúðahverfum, sem m.a. gætu hentað öldruðu fólki sem vill minnka við sig húsnæði. Slíkar íbúðir gætu ýmist verið í eigu sveitarfélaga, einstaklinga eða samtaka aldraðra. Framtak ýmissa hópa og samtaka aldraðra á síðustu árum er áhugaverður og æskilegur kostur í húsnæðismálum aldraðra.
Flokkurinn fagnar og styður heils hugar hina miklu og stórhuga uppbyggingu í öldrunarþjónustu víða um land á síðustu árum, en bendir um leið á að áfram verði unnið að skipulagðri byggingu sérhannaðs húsnæðis fyrir aldraða. Flokkurinn telur eðlilegt, að fjármögnun byggingar íbúða fyrir aldraða komist undir félagslegan þátt húsnæðislöggjafar og fái þar vissan forgang. Kannaðir verði möguleikar fyrir öðru fáanlegu fjármagni, svo sem með skuldabréfasölu til einstaklinga, félagasamtaka, lífeyrissjóða og stéttarfélaga.“
Þá er þjónusta utan stofnana:
„Helstu leiðir til að aldraðir geti búið í eins eðlilegu umhverfi og við eins eðlilegar aðstæður og verða má eru m.a. þessar: Að efla heimilishjálp að mun í sveitarfélögum þar sem slík þjónusta er nú þegar til staðar og sérstaklega að koma heimilishjálp á fót þar sem hún hefur ekki verið starfrækt. Hlutverk heimilishjálpar er fjölþætt: að létta undir við heimilishaldið almennt. Enn fremur og ekki síður er það hlutverk heimilishjálpar að rjúfa einangrun fólksins og auka öryggi þess. — Efla þarf heimahjúkrun verulega. Koma þarf á kvöld-, nætur- og helgidagaþjónustu varðandi þessa þjónustuþætti og samræma stjórnun þeirra. Litlar og hentugar íbúðir og aðstoð við viðhald fasteigna fyrir aldraða. Ívilnanir og eftirgjöf á greiðslum fyrir ýmiss konar þjónustu og á gjöldum til ríkis og sveitarfélaga. Öflugt og fjölþætt tómstundastarf er einhver sterkasta vörn gegn einangrun, kvíða og tómleika. Árlegt heilsufarseftirlit 75 ára og eldri. Sálusorgun, húsvitjanir presta og annarra starfsmanna kirkjunnar. Mikilvægi frjálsra félaga í sjálfboðastarfi, t.d. skipulögð heimsóknarþjónusta.
Atvinnumál. Það er álit flestra að gefa þurfi því meiri gaum í framtíðinni, hvernig verklokum einstaklingsins er háttað. Umskipti mega ekki vera snögg, heldur aflíðandi. Vinna verði skipulega að undirbúningi og aðlögun þess er hættir störfum. Því þarf að koma til meiri sveigjanleika en nú er. Fólk eigi kost á hlutastörfum síðustu vinnuárin ef það óskar þess. Lögð er á það þung áhersla, að allir eigi kost á einhvers konar viðfangsefnum við hin almennu starfslok, aðstoð þurfi að vera fyrir hendi til að sinna margvíslegum áhugamálum, eins konar smiðja sem hver og einn geti sótt í að vild.
Flokknum er það mikið kappsmál að kannað verði rækilega hvort ekki megi nýta reynslu og þekkingu aldraðra, t.d. við ráðgjöf í atvinnulífinu almennt og við fjölþætt uppeldisstörf, m.a. á yngri stigum skólanna, dagvistarheimilum og víðar.
Flokkurinn vill forðast of mikil ríkisafskipti, miðstýringu og stofnanaveldi í öldrunarmálum sem og í öðrum þáttum þjóðmála. Vænleg leið til almennrar virkni og þátttöku fjöldans í uppbyggingu öldrunarþjónustu er að efla og virkja samtök aldraðra sjálfra og annars áhugafólks um framgang þessa málaflokks.“
Herra forseti. Ég er nú kominn að lokum máls míns. Ég vil leggja mikla áherslu á þetta síðasta, að virkja samtök áhugafólks og almennan áhuga ýmissa aðila í landinu til átaka, en fyrst og síðast er það einstaklingurinn sjálfur sem taka skal mið af í stefnumótun í málefnum aldraðra. Nauðsynlegt er samkv. framansögðu að styðja aldraða og hjálpa þeim, en aldrei má lama sjálfsbjargarviðleitni þeirra. Einstaklingurinn skal ávallt njóta virðingar og jafnframt eiga kost á að vera virkur og sjálfstæður. Það hlýtur að falla að því markmiði sem ár aldraðra hefur á alþjóðavettvangi: að gæða ellina lífi.
Ég endurtek fyrir hönd flokksins: Við styðjum þetta frv.