05.04.1982
Efri deild: 64. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3601 í B-deild Alþingistíðinda. (3143)

272. mál, Kísiliðjan

Iðnrh. (Hjörleifur Guttormsson):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til laga um aukningu hlutafjár í Kísiliðjunni hf., en í því segir svo m.a. í 1. gr.: „Ríkisstj. er heimilt að yfirtaka kröfur að jafnvirði allt að 1.3 millj. bandaríkjadollara í íslenskum krónum á hendur Kísiliðjunni hf. og leggja þá fjárhæð fram til aukningar hlutafjár ríkissjóðs í Kísiliðjunni hf.“

Gert er ráð fyrir að aukning hlutafjár ríkissjóðs verði með þeim hætti að hann taki að sér að greiða fjögur lán sem nú hvíla á fyrirtækinu, og eru lánin talin upp í grg. með frv. Samtals eru þau að upphæð 1 290 460 bandaríkjadalir eða um 13 millj. ísl. kr. Annar aðaleigandi Kísiliðjunnar hf„ Manville, mun yfirtaka lán að upphæð 262 500 bandaríkjadala, sem Manville, áður John Manville, veitti Kísiliðjunni fyrir nokkrum árum. Samhliða þessu verða gerðir nýir samningar milli Kísiliðjunnar hf. og Manville um söluþóknun og greiðslu fyrir tækniþekkingu. Í samningi um söluþóknun er kveðið á um 25% gjald, en í reynd hefur gjald þetta verið mun lægra frá byrjun og er áformað að semja um 12% gjaldtöku af þessu tagi og hugsanlega verða fleiri breytingar gerðar á sölusamningi.

Í tæknisamningi, sem gengið var frá á sínum tíma, er kveðið á um að Kísiliðjan greiði Manville 6% tækniþjónustugjald, en í reynd hefur þetta gjald numið 2% um alllangt skeið og er ætlunin að fastsetja þá upphæð, 2%, í nýjum samningi. Þessar breytingar á samningum við starfsaðilann eru tvímælalaust til bóta að mínu mati.

Ráðstafanir þær, sem ég hef hér greint frá, hafa það að markmiði að treysta rekstrargrundvöll Kísiliðjunnar hf. Fulltrúar iðnrn. og Manville hafa átt viðræður um málefni fyrirtækisins og varð niðurstaða þeirra í samræmi við það sem frv. þetta gerir ráð fyrir, en við undirbúning þess var haft náið samráð við fjmrn. og frv. hér lagt fram sem stjfrv.

Rétt þykir að rekja í stuttu máli hvers vegna þessi hlutafjáraukning er talin nauðsynleg. Nú eru 15 ár liðin frá stofnun Kísiliðjunnar. Ef litið er til rekstrarafkomu fyrirtækisins þetta tímabil má skipta því í þrennt:

Í fyrsta lagi árin 1966–1972, en það tímabil var Kísiliðjunni erfitt. Vinnsla á kísilgúr var algjör nýjung hér á landi og byggðist á aðferðum sem áttu sér ekki hliðstæðu annars staðar í heiminum. Þessi ár voru erfið meðan verið var að ná tökum á framleiðslutækni sem þurfti til að vinna kísilgúr af botni Mývatns og beita gufuorku við framleiðsluna.

Í öðru lagi eru það árin 1973–1978, en á þeim árum var nettóhagnaður hjá fyrirtækinu öll árin. Á árinu 1977 varð verulegt eignatjón hjá Kísiliðjunni af völdum náttúruhamfara. Má þar sérstaklega nefna að á því ári eyðilögðust hráefnisþrær fyrirtækisins. Á árinu 1978 var byggð ný hráefnisþró sem kom í stað þriggja eldri þróa sem eyðilagst höfðu. Kísiliðjan varð sjálf að standa straum af fjármögnun á byggingu nýju þróarinnar, þar sem engar tryggingabætur fengust út á eldri þrærnar. Heildarkostnaður við byggingu nýju þróarinnar var 1300 þús. bandaríkjadala og var það fjármagnað með erlendu láni að upphæð 1 millj. dala og 300 þús. dalir voru greiddir með eigin fé fyrirtækisins.

Í þriðja lagi eru það árin 1979–1980 og raunar allt fram undir þennan dag. Á þessum árum fór að halla undan fæti í fjárhagsstöðu fyrirtækisins. Aðalástæður þess voru í fyrsta lagi að á árinu 1979 gat fyrirtækið ekki framleitt á fullum afköstum vegna gufuskorts, en gufuöflun fyrir Kísiliðjuna hafði farið úr skorðum vegna eldsumbrota. Úr því var bætt á árinu 1980 með borun tveggja nýrra hola til gufuvinnslu í Bjarnarflagi og tókst að leysa þau vandamál fyrir fyrirtækið með þeim að gerðum. Í öðru lagi gætti á árinu 1980 nokkurs sölusamdráttar í Evrópu sem rekja má til almenns samdráttar í efnahagslífi þar og raunar víðar. Varð sölusamdrátturinn um 15% frá því sem ráð hafði verið fyrir gert í söluáætlunum, þ.e. 22 þús. tonn. Í þriðja lagi ber að nefna að fjárfestingar vegna mengunarvarna að kröfu heilbrigðisyfirvalda voru miklar. Sett voru upp hreinsitæki fyrir útblástursloft frá gufuþurrkurum og ýmsar úrbætur voru gerðar til að draga úr mengun í andrúmslofti hið innra vegna starfsmanna. Á verðlagi 1. mars 1982 kostuðu þessar framkvæmdir rúmar 8 millj. kr. Auk þess leiddu þær til aukins rekstrarkostnaðar, þ.e. aukinnar raforkunotkunar og dýrari umbúða.

Þessar fjárfestingar og lántökur, sem þeim fylgdu, urðu til að auka mjög greiðslubyrði fyrirtækisins. Var það því illa í stakk búið til að mæta þeim sölusamdrætti, sem ég gat um, og þeirri þróun gengismála er varð í heiminum á liðnu ári, 1981. Afurðir Kísiliðjunnar eru nær allar seldar til Evrópu, en skuldir fyrirtækisins eru aftur á móti í bandaríkjadollurum. Sterk staða dollarans gagnvart Evrópumyntum hefur því orðið til að veikja fjárhagsstöðu Kísiliðjunnar að undanförnu.

Markaðshorfur fyrir kísilgúr eru nú taldar nokkuð góðar, þannig að fyrirtækið getur nú framleitt með fullum afköstum. Útlit er fyrir hallalausan rekstur með þeim aðgerðum sem frv. þetta felur í sér, sbr. töflu 1 sem fylgir frv.

Þær tillögur um aukið hlutafé, sem ráð er fyrir gert í frv., leiða til nokkurra breytinga á eignarhlutdeild í Kísiliðjunni. Það er rétt að fram komi að samstarfsaðilinn, Manville, var ekki fús til að auka sína hlutafjáreign á móti ríkinu, og breytingarnar á hlutföllum hlutafjár og eignarhlutföllum stafa af því, að ríkissjóður eykur sitt framlag meira en nemur framlagi samstarfsaðilans, en núverandi eignarhlutdeild er þannig að ríkissjóður á 51.6%, Manville á 47.8% og sveitarfélög á Norðurlandi eystra eiga 0.6% hlutafjár. Ef frv. hlýtur samþykki hér á hv. Alþingi verður eignarhlutdeild í fyrirtækinu þannig samkv. áætluðum tölum, sem gætu þó breyst lítillega við endanlegt uppgjör, að ríkissjóður ætti 63%, Manville 36.5% og sveitarfélög á Norðurlandi eystra 0.5%.

Herra forseti. Ég vænti að frv. þessu verði vel tekið, þó að ástæðurnar fyrir flutningi þess séu vissulega ekki eins og æskilegt hefði verið, en ég vænti þess, að frv. fái afgreiðslu á þessu þingi. Kísiliðjan hf. við Mývatn er að mörgu leyti merkilegt fyrirtæki þótt staðsetning þess í næsta nágrenni Mývatns hafi verið og sé eðlilega umdeild. Þeim mun meiri ástæða er til að leggja áherslu á traustar mengunarvarnir hið ytra sem innra og góða umgengni af hálfu forráðamanna verksmiðjunnar.

Kísiliðjan stendur undir blómlegum byggðakjarna í Mývatnssveit og skapar umtalsverðar gjaldeyristekjur. Með þeim aðgerðum, sem hér er lagt til að gerðar verði, styrkist fjárhagsleg staða fyrirtækisins og Kísiliðjan verður betur í stakk búin að ljúka þeim aðgerðum til mengunarvarna, sem ólokið er, og bæta starfsumhverfi á vinnusvæði sínu.

Herra forseti. Ég legg til að að lokinni þessari umr. verði frv. vísað til hv. iðnn. þessarar deildar.