05.04.1982
Efri deild: 64. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3604 í B-deild Alþingistíðinda. (3146)
272. mál, Kísiliðjan
Egill Jónsson:
Herra forseti. Það var út af þessari síðustu athugasemd sem ég vildi bæta ofurlítilli spurningu við til hæstv. iðnrh. Hún er í þá veru, hvort hann gæti upplýst hversu mikil arðgreiðsla hefur farið fram til sveitarfélaganna í nágrenni Kísiliðjunnar við Mývatn og hver hagur það hefur verið fyrir þau að vera hluthafar í þessu fyrirtæki. Og þá vildi ég kannske mega bæta við þeirri spurningu, hvort hann teldi eðlilegt að hlutafé þeirra væri aukið eða að lögð væri á það áhersla, þar sem augljóst er að hér er einvörðungu verið að auka hlutafé til þess að bæta rekstrarstöðu, til að vinna upp á mótrekstrarhalla síðustu ára. Mér þykir mikilvægt að fram komi í þessari umr. hvert sé mat iðnrh. í þessum efnum og hvort það er almenn skoðun eða skoðun fleiri manna en hv. síðasta ræðumanns, að leita eigi eftir því við sveitarfélögin, að þau taki á sig aukið hlutafé í þessari verksmiðju — sem að sjálfsögðu er greitt af þeirra tekjustofnum, greitt af þeirra skatttekjum — til að standa undir hallarekstri á þessu fyrirtæki.