04.11.1981
Efri deild: 9. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 450 í B-deild Alþingistíðinda. (315)
6. mál, olíuleitarmál og hafsbotnsrannsóknir
Flm. (Lárus Jónsson):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðh. fyrir þær upplýsingar sem hann gaf hv. deild um þessi mikilvægu mál.
Ég vil taka það skýrt fram að það, sem vakir fyrir okkur flm. þessa máls, er ekki að koma á fót nýju bákni eða nýrri stofnun. Ég held að það hljóti að vera misskilningur hjá hæstv. ráðh. að við Eyjólfur Konráð Jónsson séum meiri stofnanasmiðir en hæstv. ráðh. Ég er reiðubúinn til að standa að brtt. við þetta frv. til að koma því skýrt fram, að hér sé ekki um slíkan málatilbúnað að ræða.
Ég vek athygli á því, sem hæstv. ráðh. minntist ekki á, að eins og sakir standa nú — og ég hef ekki heyrt á því gagnrýni, kýs Alþingi stjórnir og ráð, t. d. orkuráð. Á sínum tíma var t. d. skipuð svonefnd stóriðjunefnd á vegum ráðuneytisins. Hún varð aldrei stofnun. En þó að sú formbreyting verði, að Alþingi kjósi þessa nefnd í stað þess að hæstv. ráðh. skipaði hana, og hún vinni sín verk eins og hæstv. ráðh. hefur hér skýrt frá, þá þurfi ekki í þeirri formbreytingu að felast nein ný stofnanamyndun.
Ég held að þarna sé um minni háttar skoðanamun að ræða. Ég tel sjálfsagt að skoða breytingar sem geti hnigið í þá átt, að það verði tekin af tvímæli um að ekki sé gert ráð fyrir að þetta verði að nýju stofnanabákni.
Hins vegar er það svo, eins og hæstv. ráðh. gat um þegar hann las upp hvert hlutverk þessarar nefndar ætti að vera, sem er í rauninni svipað því hlutverki sem sú nefnd, sem hann hefur skipað, hefur, að þarna sést að um mjög viðamikið og flókið mál er að ræða. Þess vegna finnst mér alls ekki fráleitt að Alþingi komi þarna til með ákveðið frumkvæði — líka vegna þess að sum af þessum atriðum, sem varða rannsóknir á hafsbotninum og hugsanlega vinnslu jarðefna af hafsbotni og úr hafsbotninum, t. d. olíu, eru viðkvæm pólitísk mál oft og tíðum og þá er ekkert því til fyrirstöðu að samráð séu höfð um það með því að kjósa hlutfallskosningu á Alþingi nefnd sem sérstaklega fjalli um það.
Ég vil ítreka þessa skoðun mína og jafnframt lýsa því, að hæstv. ráðh. hefur sýnt ákveðið frumkvæði og vilja í þessum efnum. En það sýnir kannske að ekki veitir af fulltingi Alþingis. Fjárveiting til þessara mála hefur verið afar klén, svo ekki sé meira sagt, og fengust ekki inn í frv. hæstv. ríkisstj. nema 300 þús. kr. á þessu ári. Ekki verður gert mikið fyrir það.
Að lokum vona ég að við hæstv. ráðh. getum snúið bökum saman um að fá einhverjar örlitlar brtt. samþykktar á frv. ríkisstj. til fjárlaga í þessu skyni.