05.04.1982
Efri deild: 64. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3612 í B-deild Alþingistíðinda. (3155)
55. mál, lánsfjárlög 1982
Fjmrh. (Ragnar Arnalds):
Herra forseti. Varla er ástæða til að fjölyrða mikið frekar um þetta mál þar sem það er margrætt hér innan veggja þinghússins.
Við 3. umr. málsins í Nd. gerði ég grein fyrir nokkrum meginatriðum þess. Vakti ég þar m.a. athygli á því, að nettó-staða þjóðarbúsins út á við, þ.e. erlend lán þegar tekið hefur verið tillit til birgðasöfnunar útflutningsbirgða og gjaldeyriseignar, hefði nánast ekkert breyst undanfarin ár, enda þótt því sé mjög haldið á lofti að erlendar skuldir hafi verulega aukist. Reiknað sem hlutfall af þjóðarframleiðslu hefur þessi prósenta staðið nokkurn veginn í stað, verið um eða innan við 32% í mörg undanfarin ár.
Hv. þm. Lárus Jónsson hefur svo aftur dregið núna fram nýjar tölur um spá Seðlabankans um þróun þessara stærða á árinu 1982. Þessa spá hafði ég ekki séð og ekki fengið í hendur, en þar er spáð að þessar stærðir muni hækka verulega á þessu ári. Ekki vil ég andmæla því, að það kunni að vera rétt hjá hv. þm., og er það vissulega áhyggjuefni ef svo reynist. Hins vegar er kannske rétt að vekja athygli á þeim ummælum hans hér áðan, að Seðlabankinn hefði spáð fyrir árið 1981 verulega mikilli hækkun á þessum prósentutölum, en þær spár hefðu að vísu ekki ræst. Auðvitað er spá alltaf spá. Hún er háð mjög mörgum óvissum grunnstærðum. Og þegar um er að ræða að nettó-staða sé hugsanlega að fara versnandi á árinu 1982, sem vel kann að vera að reynist rétt, þá er ekki endilega víst að um sé að ræða verulega aukningu á erlendum lántökum, því um það er alls ekki að ræða í þessu tilviki, eins og flestir gera sér grein fyrir. Erlendar lántökur vaxa ekki milli áranna 1981 og 1982 um þá tölu sem verðbólgunni nemur. Það hefur margoft komið hér fram að erlendar lántökur eru taldar vaxa í kringum 30% milli ára, en sennilega verður verðbólgan milli 35 og 40%, þannig að skýringin á því, að þessi prósentutala kunni að hækka á árinu 1982, er greinilega ekki sú, að erlendar skuldir séu að aukast. Hver er þá skýringin? Skýringin er ósköp einfaldlega sú, að það eru vondar horfur í sjávarútvegsmálum Íslendinga, sérstaklega hvað snertir veiðar á loðnu á þessu ári. Útlit er fyrir að það ár, sem nú er að líða, sé fyrsta árið um margra ára skeið sem engin loðna veiðist eða þá mjög lítil loðna. Og ef svo fer að engin loðna veiðist á þessu ári, sem menn eru farnir verulega að óttast, — ef ekki á að byrja að rannsaka loðnustofninn fyrr en í október byrja veiðarnar varla fyrr en í nóvember, — ef svo fer, þá dragast þjóðartekjur Íslendinga saman, þá eru þær ekki að aukast, þá beinlínis dragast þær saman þrátt fyrir þá miklu fjárfestingu sem er hér á mörgum sviðum, m.a. í orkuiðnaðinum. Þá þarf enginn að vera undrandi á því, að prósentutala, sem er fundin sem hlutfall byggt á þjóðarframleiðslu, hækki. En það er þá staðreynd sem er allt annars eðlis en erlendu skuldirnar og erlendu lántökurnar. Það er staðreynd sem við ráðum greinilega ekki mikið við og verðum bara að horfast í augu við af blákaldri alvöru.
Annað það, sem getur haft áhrif á þessa stærð, er ef viðskiptahalli verður verulegur á árinu. En viðskiptahallinn kann einmitt að stafa af nákvæmlega sömu ástæðu, að loðnuafli bregðist í fyrsta skipti í mörg ár og ekkert annað komi í staðinn. Ef aftur á móti þetta breytist þannig að töluverð loðna veiðist á árinu, þá munu þessar prósentutölur að sjálfsögðu breytast í grundvallaratriðum, bæði vegna þess að viðskiptahallinn verður þá minni í árslok og þjóðarframleiðslutalan miklu hærri. Menn sjá sem sagt að þessar tölur, sem við erum að tala hér um í sambandi við nettó-stöðu þjóðarbúsins út á við, þær ráðast greinilega ekki eingöngu af erlendum lántökum og segja kannske ekki endilega ýkjamikið um erlendar lántökur. Þær geta sagt miklu meira um aðrar stærðir þjóðarbúsins og aðrar breytingar innan efnahagskerfisins. Nákvæmlega það sama gildir um greiðslubyrði lána sem reiknuð er í hlutfalli af útflutningstekjum. Þessi prósentutala var um langt skeið á bilinu 13–14%, fór kannske rétt yfir 14% en hefur verið rétt þar í kringum um langt skeið. Nú er þessi prósentutala hins vegar verulega á uppleið eins og kunnugt er. Skýringin á því er augljóslega sú, að við njótum nú lakari kjara við erlendar lántökur okkar en var fyrir nokkrum árum, eins og raunar allir íbúar þessarar jarðar. Vextir hafa hvarvetna hækkað mjög verulega og þar af leiðandi hefur greiðslubyrði af erlendum lánum vaxið að sama skapi. Að greiðslubyrðin geti hugsanlega stefnt í hærri tölur á árinu 1982 en áður var ráð fyrir gert á sér svo auðvitað nákvæmlega sömu skýringu og ég var að nefna áðan, vegna þess að greiðslubyrðin er reiknuð af útflutningstekjum. Skýringin er sem sagt ekki sú, að verið sé að taka svo mikil erlend lán og greiðslubyrðin sé að hækka þess vegna, heldur hitt, að viðmiðunartalan, deilitalan sjálf, útflutningstekjurnar vaxa ekki að því marki sem verið hefur, heldur dragast jafnvel frekar saman vegna stórminnkaðs útflutnings á sjávarafurðum. Allt þetta verðum við auðvitað að hafa í huga þegar við ræðum þetta. Að ræða um greiðslubyrði eða nettó-stöðu á jafnyfirborðslegan hátt og gert var hér af tveimur fyrri ræðumönnum, Lárusi Jónssyni og Kjartani Jóhannssyni, það gegnir auðvitað ekki því hlutverki að upplýsa almenning í landinu um raunverulega stöðu þessara mála.
Ég sagði í hv. Nd. og vil ítreka það hér, að um fátt er talað hér á landi af jafnmiklu ábyrgðarleysi og jafnmikilli yfirborðsmennsku og erlendar lántökur og erlendar skuldir. Þar geta menn leyft sér að fimbulfamba með ýmiss konar fullyrðingar án þess að ræða nokkurn tíma málin í botn. Menn tala unvörpum um að ríkissjóður taki mikil erlend lán, þó vitað sé af flestum, sem um þau mál ræða, að ríkissjóður í þess orðs eiginlegu merkingu tekur engin erlend lán. Hann tekur einungis innlend lán. Þau lán, sem tekin eru á vegum ríkisins erlendis, eru fyrst og fremst til fjárfestingar á vegum sjálfstæðra fyrirtækja, sem ríkissjóður á, og eru tekin til fjárfestingar, og þessir aðilar munu síðan standa undir þeim og greiða til baka með arði af þeirri fjárfestingu sem um er að ræða. Auðvitað verður að gera meginmun á því, hvort það er A-hluti ríkissjóðs, sem er að taka lán, eða B-hluti. Við höfum gert ráð fyrir að A-hluti ríkissjóðs taki einungis innlend lán og það í ákaflega litlum mæli, vegna þess að þar er að meginhluta til um rekstur að ræða og a.m.k. um fjárfestingar að ræða sem standa ekki sjálfar undir endurgreiðslu lánanna. Aftur á móti gildir það um B-hluta fyrirtækin, að þeim er ætlað að standa sjálf undir endurgreiðslu lánanna með tekjum af rekstri sínum. Þar af leiðir að þegar t.d. Áburðarverksmiðjan tekur veruleg erlend lán til þess að byggja saltpéturssýruverksmiðju, þá er það auðvitað fásinna og ekkert annað að líkja því við skuldasöfnun ríkissjóðs, að ríkissjóður sé að safna skuldum og taka eyðslulán, eins og stjórnarandstaðan reynir að stilla málum upp og hræra þessu öllu saman.
Vissulega má ekki skilja orð mín svo, að ég sé að halda því fram, að erlend lán megi vera miklu meiri en þau eru og erlendar lántökur hinna ýmsu innlendu aðila eigi að vera miklu meiri en þær eru nú. Auðvitað má ekki skilja orð mín á þann veg. Ég tel að erlend lán séu vissulega í hámarki, við þurfum að vara okkur á því að ganga þar of langt. En ég kemst ekki hjá að vekja athygli á því, að úrræði stjórnarandstöðunnar í þessum efnum eru engin, nákvæmlega engin. Hún talar í öðru orðinu um að erlendar lántökur séu allt of miklar, en í hinu orðinu um að þær séu allt of litlar. Glöggt merki þess eru t.d. sífelldar kvartanir stjórnarandstæðinga um að lánsfjáráætlun sé ekki raunhæf, hún sé bara marklaust plagg vegna þess að verðbólgan kunni að verða meiri á árinu en ráðið var fyrir gert þegar lánsfjáráætlun var sett saman. Það eru stöðugar kvartanir frá stjórnarandstöðunni um að dæmið gangi ekki upp, erlendu lántökurnar þurfi því greinilega að vera miklu meiri. Auðvitað er kjarni málsins sá, að ef verðbólga verður meiri á árinu en lánsfjáráætlun gerir ráð fyrir, þá þýðir það ósköp einfaldlega niðurskurð á þeim framkvæmdum sem lánsfjáráætlun gerir ráð fyrir. Þetta er staðreynd sem ríkisstj. og stjórnaraðilarnir eru reiðubúnir að horfast í augu við og taka sem hverri annarri staðreynd sem ekki verði hlaupist burt frá eða komist í kringum. En stjórnarandstaðan stillir málunum á hinn veginn, að það verði að bæta þarna úr, það verði greinilega að hækka lánsfjáráætlunina vegna þess að hún sé allt of lág.
Þegar svo aftur kemur að hinum þætti málsins, að afla innlends fjár til þess að draga úr erlendum lántökum, þá er ekki mikillar hjálpar að vænta frá stjórnarandstöðunni. Það eru auðvitað takmarkaðar leiðir til þess að minnka erlendar lántökur með innlendri lánsfjáröflun. En þær leiðir er einmitt ríkisstj. að fara þrátt fyrir harða andstöðu stjórnarandstöðunnar, sem gerir allt sem hún getur til að koma í veg fyrir að innlend lánsfjáröflun verði nægilega mikil. Er þar skýrast dæmi hversu hart stjórnarandstaðan hefur barist gegn því, að fengið verði meira lánsfé frá lífeyrissjóðunum í landinu, en það er kannske það úrræðið, sem helst er tiltæki til þess að draga úr erlendum lántökum, að afla fjár hjá lífeyrissjóðunum í meiri mæli en nú er gert. En það þarf ekki að segja neinum það hér, að báðir stjórnarandstöðuflokkarnir hafa barist af mikilli hörku gegn því að þetta sér gert. (Gripið fram í.) Hv. þm. Karl Steinar spyr að því hér í framíkalli, hvort verkalýðshreyfingin muni vera þessu samþykk. Mér er kunnugt um það alveg jafnt og hv. þm. Karli Steinari, að það er ekki nægilegur skilningur á því innan verkalýðshreyfingarinnar að þetta sé efnahagsleg nauðsyn. Það er alveg rétt að það vantar þann skilning, en sem betur fer hefur sá skilningur verið að vaxa. Ég var t.d. á sínum tíma heldur tregur til að fallast á svo miklar lántökur frá lífeyrissjóðunum. En ég er fyrir löngu búinn að sjá að það gengur ekki að ekki sé betri og meiri stjórn en verið hefur á því mikla ráðstöfunarfé sem lífeyrissjóðirnir ráða yfir. Ég hef algjörlega breytt um afstöðu í þessu máli og tel þjóðarnauðsyn að dregið sé úr erlendum lántökum með því að lífeyrissjóðirnir taki meiri þátt í lánsfjáráætluninni en verið hefur nú um skeið. Mér virðist að ráðstöfunarfé lífeyrissjóðanna sé svo mikið að vöxtum, eins og nú er komið, að það megi alveg að ósekju hækka það hlutfall, sem lífeyrissjóðirnir leggja til lánsfjáráætlunarinnar, frá því sem nú er. En því miður verður það að segjast eins og er, að það er fyrst og fremst stjórnarandstaðan sem stendur þar mjög hart í vegi, notar hvert tækifæri til þess að æsa menn til andstöðu gegn þessu og hefur þannig áorkað að ekki er hægt að stíga neitt spor í rétta átt í þessum efnum, eins og ríkisstj. hafði þó áformað þegar lánsfjáráætlunin var lögð fram.
Ég gæti nefnt ýmis dæmi þess, að stjórnarandstaðan hefur uppi bæði tillöguflutning hér í þinginu og málflutning sem bendir eindregið til þess, að hún vilji taka miklu meiri erlend lán en gert er, og stendur á hinn bóginn algjörlega í vegi fyrir því, að unnt sé að afla meira fjár eftir þeim leiðum sem tiltækar eru innanlands svo að erlendar lántökur verði minni. Þess vegna hef ég sagt og segi enn að tal stjórnarandstöðunnar í þessum efnum er yfirborðshjal, hræsni, snakk og ekkert annað, því að hún meinar ekki orð af því sem hún segir þegar hún býsnast hér um erlendar lántökur.
Ég tel að ríkisstj. fylgi ákveðnum meginreglum í sambandi við lánsfjáráætlun sem sé afar mikilvægt að sem best samstaða geti tekist um. Við erum að reyna að efla innlenda lánsfjáröflun eftir þeim leiðum, sem tiltækar eru, og mundum gjarnan vilja að stjórnarandstaðan tæki jákvæðari afstöðu til þeirrar viðleitni okkar. Við höfum getað tryggt að ríkissjóður er ekki rekinn með halla og þarf ekki á erlendum lánum að halda fyrir A-hluta ríkissjóðs, og við höfum reynt að takmarka eins og nokkur kostur hefur verið að erlend lán séu tekin í rekstur. Stjórnarandstaðan hefur hins vegar réttilega bent á að nokkur dæmi eru þess, að svo sé gert, og þá verður líka að viðurkenna að svo hefur verið um mörg ár. Það hefur gerst á hverju einasta ári um langt skeið að einhver lán hafa verið tekin vegna rekstrarerfiðleika. Ég minnist þess t.d., að þegar stjórnarskipti urðu sumarið 1978 þurftu nokkur sveitarfélög í landinu, þ. á m. Reykjavíkurborg, að taka erlend lán vegna erfiðrar rekstrarstöðu sinnar. Og það er ekki til fyrirmyndar að sjálfsögðu. Þetta gerist alltaf öðru hverju, að tekin eru erlend lán í slíkum tilgangi. En það er ekki til fyrirmyndar og ætti auðvitað að vera eins lítið um það og hugsast getur.
Hv. samflokksþingmaður minn spyr mig hvort ég ætli ekki að fá þetta mál afgreitt fyrir páska. Það er ágæt spurning frá þeirri hlið. Ég vil þó segja það eins og er, að þau mál, sem hér er um að ræða, erlendar lántökur og málflutningur stjórnarandstöðunnar í þeim efnum, er þess eðlis að það er auðvitað ekki hægt að sitja og hlusta á þann málflutning án þess að hafa uppi nokkur svör. Ég vona að allir geri sér grein fyrir því, að það er nauðsynlegt fyrir Alþingi að ræða þessi mál. Og auðvitað skiptir ekki öllu máli hvort lánsfjáráætlun er afgreidd þennan daginn eða hinn. Hitt er auðvitað mikilvægast, að við getum skipst þannig á skoðunum hér í þessum hóp að við vitum hvað við erum að tala um og hvað við erum að samþykkja, og mitt innlegg í þessa umr. er auðvitað lagt fram í því skyni, þannig að ég tek nokkra áhættu í því sambandi og tel alveg óhjákvæmilegt að ræða þessi mál af fullri hreinskilni. Hitt er annað mál, að ég hafði ekki gert ráð fyrir að tala hér mjög lengi og mun senn fara að stytta mitt mál.
Ég vil að lokum geta þess, að í þeim skjölum frá Þjóðhagsstofnun, sem lögð hafa verið fram nú meðan umr. var frestað, kemur fram að gert er ráð fyrir að framfærsluvísitala hækki milli ára um 42%. Hins vegar er rétt að upplýsa það, að við höfum gert okkur vonir um að hækkunin milli ára yrði nokkru lægri. Hækkunin á árinu er um 40% samkvæmt þessu plaggi, en við höfum í okkar efnahagsáætlun miðað við 35%, og miðað við það, að frekari ráðstafanir í efnahagsmálum verði gerðar á þessu ári, höfum við auðvitað von um að þessi prósentutala um verðbólgu milli ára verði eitthvað lægri en þarna er gert ráð fyrir. Við gætum hugsað okkur að ef verðbólgan yrði 35% á árinu, þ.e. frá upphafi til loka ársins, þá yrði verðbólgan milli áranna 1981 og 1982 um 37–38%. Það er hins vegar alveg rétt sem stjórnarandstaðan hefur bent á að reiknitala fjárlaga og lánsfjáráætlunar er heldur lægri, 33%. Þá þýðir þessi munur ekkert annað en það, að framkvæmdafé mun draga heldur skemmra en áformað var. Svo einfalt er það mál. Vissulega þýðir það í reynd niðurskurð á erlendum lántökum, vegna þess að á sama tíma á þessi verðbólga sér stað og gengið breytist, en tölurnar eru í íslenskum krónum, þannig að lántakan er í reynd minni en hún er upphaflega ráðgerð. En þetta er í raun og veru sá niðurskurður á lánsfjáráætlun sem stjórnarliðar komu sér saman um þegar þeir afgreiddu málið fyrir áramót, að láta sig hafa það að verðbólga yrði hugsanlega heldur meiri en lánsfjáráætlun og reiknitala hennar gerði ráð fyrir, og þá þýddi það auðvitað í reynd bæði vissan niðurskurð á erlendum lántökum og lækkun á lánsfjármagni til framkvæmda frá því sem upphaflega hafði verið ráð fyrir gert. Ég hélt satt að segja, miðað við allt þetta mikla tal stjórnarandstöðunnar um að draga þurfi úr erlendum lánum, að hún fagnaði því, að slíku aðhaldi skuli vera beitt. En eins og menn heyra af ræðum stjórnarandstæðinga harma þeir það mest að svona skuli fara, og það er í fullu samræmi við það sem ég hef hér bent á, að í raun og veru er allur tillöguflutningur og málflutningur stjórnarandstöðunnar í þessum efnum eitt allsherjar ákall um meiri erlendar lántökur. Þeir flytja hins vegar engar tillögur um minni lántökur og koma ekki með neinar tillögur um hvernig megi auka innlendan sparnað, en spyrna þar hins vegar hart á móti. Þetta tel ég nauðsynlegt að komi hér fram. Óski menn frekari umræðna um þetta mál er ég að sjálfsögðu reiðubúinn að taka þátt í þeim.