05.04.1982
Neðri deild: 62. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3623 í B-deild Alþingistíðinda. (3161)

2. mál, Listskreytingasjóður ríkisins

Frsm. meiri hl. (Ingólfur Guðnason):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir brtt. frá menntmn. Nd. við frv. til laga um Listskreytingasjóð ríkisins.

Nefndin hefur fjallað um þetta frv. á allmörgum fundum og gert á því nokkrar breytingar og flytur nefndin þær breytingar í sameiningu. Við höfum gert það að tillögu okkar, að ný grein komi inn í frv. sem verði 2. gr. Hún kveður á um, hvaða byggingar skuli teljast opinberar byggingar samkvæmt þessu frv., og þá jafnframt um undantekningar frá þeim byggingum, sem frv. nær til en ekki skulu vera inni í þessum listskreytingaráformum. Það eru byggingar sem standa fjarri alfaraleið, skemmubyggingar og aðrar sambærilegar byggingar sem nefndinni þykir ekki ástæða til að eyða sérstaklega í að skreyta. Einnig komi inn í 2. gr. að ríkisstj. geti ákveðið að lög þessi taki, eftir því sem við á, til bygginga á vegum ríkisstofnana sem hafa sjálfstæðan fjárhag og eru því ekki háðar fjárveitingaákvörðun Alþingis.

Við 3. gr. er breyting, en þar er einungis eitt orð fellt út. Í frv. er talað um „fjárlaga- og hagsýslustofnun fjmrn„“ en við komumst næst því að hún heiti bara fjárlaga- og hagsýslustofnun.

Við 5. gr., sem samkvæmt nýrri töluröð verður 8. gr., gerum við þá till., að greinin orðist þannig: „Sjóðstjórnin skal samþykkja fyrirhugaða listskreytingu þeirra mannvirkja, sem lög þessi taka til, og hvernig staðið skuli að framkvæmdum í samvinnu við arkitekt byggingar og byggingarnefnd. Hún getur kvatt sérfróða menn“ o.s.frv. Með þessu erum við að gera hlut heimamanna meira ráðandi en var í upphaflega frv., þ.e. að framkvæmdum skuli haga í samvinnu við arkitekt byggingarinnar og byggingarnefnd. Við viljum leggja áherslu á hlut heimamanna í þessum framkvæmdum.

Að lokum gerum við tillögu um að bráðabirgðaákvæði frv. breytist nokkuð og eru þau prentuð á sérstöku þskj., þ.e. á þskj. 579. Einnig gerum við þá athugasemd við 13. gr., að til viðbótar þeim lögum, sem áttu að falla úr gildi, falli úr gildi 10. gr. laga um skólakostnað, nr. 49 frá 29. apríl 1976, — til viðbótar þeirri lagagrein sem áður er um getið í 13. gr.

Eins og ég sagði áðan varð nefndin að lokum sammála um sameiginlegar brtt. þó að áður hafi komið á borð þingmanna álit meiri hluta og minni hluta. Sannleikurinn var sá, að þegar við fórum að athuga málið betur, fórum aftur yfir það, sáum við að það var svo skammt á milli okkar að auðvelt reyndist að ná hinu besta samkomulagi um þær brtt. sem liggja fyrir á þskj. 450 og 579.

Að lokinni þessari umr. óska ég eftir að málinu verði vísað til 3. umr.