05.04.1982
Neðri deild: 62. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3643 í B-deild Alþingistíðinda. (3184)
222. mál, Stofnlánadeild landbúnaðarins
Frsm. (Stefán Valgeirsson):
Herra forseti. Aðeins örfá orð. Þó að það hefði verið ástæða til að ræða þessi mál vil ég ekki gera það tímans vegna.
Ég vil bara segja það, að í sambandi við bústofnskaupalánin er það Lífeyrissjóður bænda sem lánar til þess og setur lánareglurnar. Stjórn Stofnlánadeildarinnar ræður þar engu um. Í sambandi við jarðakaupalánin er raunar það sama að segja, vegna þess að Lífeyrissjóðurinn lánar þar meginhlutann af fjármagninu með 1% vöxtum, með þeim skilyrðum að lánareglurnar séu á þennan veg. Þeir, sem borga 2% vexti af lánum, eru þeir sem borga jöfnunarsjóðsgjaldið. Það er tekið af afurðunum 1% og lækkuð lán til þeirra sem hafa verið að taka lán á undanförnum árum, og jöfnunarsjóðsgjaldið stendur undir þessum mismun. Þeir, sem þurfa að borga hærri vaxtagjöldin, eru undanþegnir því. Þá er hinn félagslegi þáttur tekinn með og þaðan kemur ekki slík greiðsla. Í sjálfu sér er þetta gert til að létta byrði þeirra sem hafa orðið að taka lán á undanförnum árum með verri kjörum en áður voru. Það er ástæðan fyrir þessum mismun.
Það er misskilningur hjá hv. þm. Árna Gunnarssyni að nýbúið sé að ganga frá lánareglum. Það er ekki búið og verður ekki gert fyrr en föstudaginn eftir páska.