05.04.1982
Neðri deild: 62. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3643 í B-deild Alþingistíðinda. (3186)
222. mál, Stofnlánadeild landbúnaðarins
Landbrh. (Pálmi Jónsson):
Herra forseti. Ég þakka hv. landbn. fyrir afgreiðslu hennar á þessu máli. Ég hef ekkert á móti því, að inn sé bætt ákvæði til bráðabirgða um endurskoðun laganna þannig að þau verði tekin til endurskoðunar eins og þar segir, verði frv. að lögum.
Ég tel ekki ástæðu til að ræða þá þætti, sem hér hafa komið fram, neitt sérstaklega. Ég bendi aðeins á að sú regla hefur gilt á síðustu árum, að fjárveitingar ríkisins til stofnlánasjóða hafa verið skertar og hefur það gengið nokkurn veginn jafnt yfir alla stofnlánasjóði. Hefur sú regla gilt um Stofnlánadeild landbúnaðarins sem aðra sjóði af þessu tagi.
Varðandi lánareglur, sem hér hafa orðið orðaskipti um, get ég staðfest að nýjar lánareglur fyrir þetta ár hafa enn ekki verið staðfestar. Hins vegar eru auðvitað til lánareglur fyrir deildina. Þær, sem hv. 6. þm. Norðurl. e. hefur fengið í hendur, eru væntanlegar þær sem staðfestar voru á síðasta ári.
Ég vil einnig taka það fram til viðbótar við það sem formaður og frsm. nefndarinnar sagði um lánakjör, en hann skýrði alveg réttilega og nægilega ítarlega lánakjör á bústofnskaupalánum og jarðakaupalánum og hvað þar liggur að baki og þarf ekki að endurtaka, að í sambandi við að einstökum mönnum eða einstökum aðilum sé mismunað samkvæmt þessum reglum má geta þess, að deildin veitir lán til framkvæmda í hinum ýmsu búgreinum án þess að þar sé mismunað að öðru leyti en því, að ef tiltekin búgrein hefur ekki greitt sín gjöld til Stofnlánadeildar verður ekki um lán að ræða. Því miður hafði orðið verulegur misbrestur á að t.a.m. þeir bændur, sem stunda alifuglarækt og jafnvel svínaræki, hefðu greitt sín gjöld til Stofnlánadeildarinnar. Um þau mál var deila uppi. Því var það að sett var á laggir nefnd til að athuga þessi mál. Árangur af starfi þeirrar nefndar birtist í þessu frv. Sú skipting á gjöldum til deildarinnar frá einstökum búgreinum er það sem hér kemur fram. Er vonast til þess, að þegar þetta frv. verður afgreitt sem lög verði þessi deila úr sögunni og allar þessar búgreinar, sem hér er um að tefla, greiði sín gjöld með eðlilegum hætti. Þá er ekki um neina mismunun að ræða.
Þetta vildi ég að kæmi fram til viðbótar við það sem hér hefur verið sagt. Ég sé ekki ástæðu til að ræða þetta frekar, en þakka hv. nefnd fyrir þá afgreiðslu sem hér er orðin.