06.04.1982
Sameinað þing: 75. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3705 í B-deild Alþingistíðinda. (3214)
364. mál, utanríkismál 1982
Félmrh. (Svavar Gestsson):
Herra forseti. Hv. 11. þm. Reykv., Ólafur Ragnar Grímsson, hefur tekið þátt í þessum umr. fyrir hönd okkar Alþb.-manna og hef ég ekki neinu við það að bæta. Ég vil aðeins drepa hér á eitt atriði, sem nefnt er í þessari skýrslu og varið til þess einni og hálfri síðu eða svo, en það er kaflinn um utanríkisviðskiptamál og utanríkisþjónustuna á bls. 23 og 24. Þar er þeirri hugmynd hreyft, að viðskrn. verði lagt niður eða ráðuneytin verði sameinuð. (Utanrrh.: Utanríkisviðskiptin.) Utanríkisviðskipt, já, að þau verði tekin, sem þýðir auðvitað að það yrði ákaflega lítið eftir í höndum viðskrn. Kemur þetta fram á nokkrum stöðum á bls. 24 í skýrslunni, sett fram til umhugsunar og lýkur með þessum orðum: „Það er einróma álit þeirra starfsmanna utanríkisþjónustunnar, sem mest hafa hugleitt þessi mál, að virk og sveigjanleg utanríkisþjónusta verði best tryggð með því, að allir meginþættir utanríkismála, þ. á m. utanríkisviðskiptamál, séu í höndum utanríkisþjónustunnar bæði erlendis og hér heima.“
Ég vil láta það koma fram sem mína skoðun, að ég hef alltaf haft þau sjónarmið, frá því að ég kynntist viðskrn., að það væri nauðsynlegt að efla viðskrn. sem utanríkisviðskiptaráðuneyti. Ég tel að það hafi komið í ljós á síðustu áratugum, að viðskrn. hafi sinnt þessum málum oft og tíðum mjög vel, og ef um er að ræða samskiptahnökra eða vandamál á milli viðskrn. og utanrrn., þá á að vera unnt að leysa þau með auðveldum hætti.
Ég tel að það eigi að vera okkur metnaðarmál að eiga hér öflugt utanríkisviðskiptaráðuneyti, sem sinnir markaðsmálum af þrótti, og að við eigum að leggja á það áherslu í stað þess að viðskrn. staðni í því fari sem það er nú.
Þetta vil ég láta koma hér fram, herra forseti, og tel ekki ástæðu til að bæta frekar við þessa umr. nema svo einu atriði enn. Ég vil þakka þeim hv. þm. sem undirbúið hafa þær skýrslur sem hér hafa verið lagðar fram um starfsemi Evrópuráðsins. Ég tel að þær gefi tilefni til að hugleiða hvort ekki er rétt og nauðsynlegt að framvegis verði einnig lagðar hér fram sérstakar skýrslur um starfsemi Norðurlandaráðs. Vil ég koma því hér á framfæri við hv. Alþingi svo og hæstv. samstarfsráðherra sem með þau mál fer.