14.04.1982
Efri deild: 65. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3709 í B-deild Alþingistíðinda. (3218)

193. mál, veiting ríkisborgararéttar

Frsm. (Eiður Guðnason):

Herra forseti. Allshn. hefur fjallað um frv. þetta til l. um veitingu ríkisborgararéttar með hefðbundnum hætti. Þegar ég segi hefðbundnum hætti, þá er átt við það, að svo sem ven ja er til hefur verið samvinna milli allshn. Ed. og Nd. um athugun þessa máls. Hafa tveir fulltrúar hvorrar nefndar ásamt skrifstofustjóra Alþingis farið yfir allar þær umsóknir um íslenskan ríkisborgararétt sem frá dómsmrn. bárust og hér lágu fyrir. Allshn. mælir með samþykkt frv. með þeirri brtt. sem nefndin flytur á sérstöku þskj.