15.04.1982
Sameinað þing: 76. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3753 í B-deild Alþingistíðinda. (3254)

265. mál, Norðurlandasamningar um vinnumarkaðsmál

Félmrh. (Svavar Gestsson):

Herra forseti. Ég tel ástæðu til að segja hér fáein orð um dagskrármálið, sérstaklega samninginn um sameiginlegan norrænan vinnumarkað sem undirritaður var í Kaupmannahöfn 6. mars s.l.

Í sambandi við þennan samning og undirritun hans hafa komið fram vissar áhyggjur manna um að þetta gæti haft hættuleg áhrif á íslenskan vinnumarkað, hér væri gengið of langt í norrænni samvinnu, eins og það var orðað í einu dagblaðanna, og menn væru hér að reisa sér hurðarás um öxl. Ég vil af þessu tilefni vekja athygli á bókuninni sem fylgir samningnum um sameiginlegan norrænan vinnumarkað. Bókunin er á bls. 5–6 í þskj. 562 og þar segir í tölul. 7.f: „Samningurinn skal ekki vera því til fyrirstöðu að íslensk stjórnvöld geti, í sérstökum tilvikum og að höfðu samráði við hin samningslöndin, áskilið atvinnuleyfi í því skyni að koma í veg fyrir röskun jafnvægis vegna hópflutninga starfsfólks eða meiri háttar flutning einstaklinga sem beinast að sérstökum svæðum, störfum eða atvinnugreinum.“ Þessi bókun hefur sama gildi og samningurinn sjálfur.

Í öðru lagi er ljóst að orðið „samráð“ í þessum texta, í bókun 7.f, þýðir ekki „samþykki“ hinna samningslandanna, þannig að Ísland getur að eigin frumkvæði tekið ákvörðun um að krefjast atvinnuleyfa vegna Norðurlandabúa ef verulegur tilflutningur fólks virðist ætla að stuðla að röskun jafnvægis eða meiri háttar flutningum á fólki inn á ákveðin svæði, í ákveðin störf eða ákveðnar atvinnugreinar.

Í þriðja lagi vil ég minna á að textinn, sem er um að ræða í bókun 7.f, er gerður í fullu samkomulagi við Alþýðusamband Íslands og Bandalag starfsmanna ríkis og bæja eftir marga samningafundi með fulltrúum þessara aðila, sem höfðu verið andvígir því, að Ísland gerðist aðili að þessum samningi, en Vinnuveitendasamband Íslands hafði hins vegar um áratugaskeið verið hlynnt því, að Ísland gerðist aðili að þessum samningi.

Ég vil einnig láta það koma fram hér úr þessum ræðustól við fyrri umr. málsins, að þennan skilning minn, sem ég hef hér sett fram, lét ég koma fram í nefnd norrænna vinnumálaráðherra á Norðurlandaráðsþingi og á blaðamannafundi sem norrænir vinnumálaráðherrar héldu í Kaupmannahöfn 6. mars s.l., þar sem sérstaklega var greint frá samningi þessum. Þannig er samningsaðilunum fullljóst með hvaða fyrirvörum við erum aðilar að þessum samningi.

Þetta taldi ég nauðsynlegt að kæmi fram fyrir þingheim þegar í stað, herra forseti.