15.04.1982
Sameinað þing: 76. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3800 í B-deild Alþingistíðinda. (3273)
141. mál, Kolbeinsey
Frsm. (Páll Pétursson):
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nál. allshn. um Kolbeinsey.
Hv. 3. þm. Norðurl. v., Stefán Guðmundsson. flutti svohljóðandi till., sem er 141. mál þingsins: „Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að sjá svo um. að sjómerki verði sett upp sem allra fyrst á Kolbeinsey. Athuganir fari einnig fram á því, hvort og á hvern hátt megi sem best tryggja að eyjan standist heljaröfl stórviðra og ísa.“
Allshn. ræddi þessa till. og við komum auga á að þetta er hin merkasta tillaga. Kolbeinsey er mjög mikilvægur grunnlínupunktur við Ísland og þarf ekki að eyða orðum að því. Það er enn fremur mjög mikilvægt að þar sé siglingamerki. Eyjan er lág í sjó og sést ekki úr fjarska í radar. Þannig hagar til í Kolbeinsey. að á veturna gengur hafís yfir eyna og sverfur stöðugt úr berginu. 1964 var sett upp siglingamerki í Kolbeinsey. Það var járnmastur sem steypt var niður. Ísinn klippti mastrið næsta vetur af, en steypan í undirstöðunni stendur enn óhögguð. Það er tæknilega ekki mjög flókið mál að setja upp siglingamerki sem þyldi þær aðstæður, sem þarna eru, og jafnframt ekki mjög torvelt að styrkja bergið með steypu þannig að ekki gengi eins hratt á það og undanfarin ár virðist hafa gert.
Ég vek athygli á tölum, sem prentaðar eru í grg. þáltill., þar sem í ljós kemur að 1932 var eyjan frá norðri til suðurs 113 metrar og frá austri til vesturs 75, en árið 1978 var hún frá norðri til suðurs ekki orðin nema 37.7 metrar og frá austri til vesturs 42.8 metrar og hafði lækkað um næstum helming, úr 10 metrum í 5.4.
Tillagan hljóðar um það, eins og ég sagði áðan, að Alþingi álykti að fela ríkisstj. að sjá um að sjómerki verði sett upp sem allra fyrst á Kolbeinsey og athuganir fari fram á því, hvort og á hvern hátt megi tryggja að eyjan standist heljaröfl stórviðra og ísa. Nefndin fékk til viðtals við sig Aðalstein Júlíusson vita- og hafnamálastjóra, og að athuguðu máli leyfir hún sér að mæla með samþykkt till. og er það nál. prentað á þskj. 605. Undir þetta rita allir nefndarmenn allshn.