16.04.1982
Efri deild: 66. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3830 í B-deild Alþingistíðinda. (3305)
273. mál, járnblendiverksmiðja í Hvalfirði
Stefán Jónsson:
Herra forseti. Það er ekki vegna þess að ég telji þess brýna þörf við 1. umr. að útfæra nánar ýmis grundvallaratriði, sem hæstv. iðnrh. drap á í sambandi við forsögu þessa máls, að ég kveð mér hljóðs núna. Ég á þess kost að fjalla um málið í iðnn. þessarar hv. deildar og vænti þess, að við 2. umr. gefist mér færi á því að rekja ýmis grundvallaratriði í forsögu þessa máls býsna ítarlega í því skyni að hv. alþm. megi draga af þeirri sögu nokkurn lærdóm. Þá vænti ég þess, að viðstaddur umr. verði hæstv. forsrh., fyrrv. iðnrh„ sem á sæti í þessari deild, því að svo ber til að við þá sögulegu könnun verður ekki hjá því komist að vitna býsna oft í ummæli hans hér í þessari hv. deild í þau tvö skipti sem hann mælti fyrir með skömmu millibili frv. til l. um járnblendiverksmiðjuna í Hvalfirði. Ég vil ekki orða það þannig að ég hlakki til þess að rifja þau ummæli upp fyrir honum. Ég vorkenni honum heldur ekkert að hlusta á þau þegar þar að kemur.
Ég vil aðeins bæta því við upprifjun hæstv. iðnrh. áðan, að mál þetta gekk tvisvar í gegnum Alþingi með mjög skömmum fyrirvara. Áttu flm. þessa frv. í hvorugt skiptið nógu sterk orð til þess að lýsa því með hvílíkum ágætum málið hefði verið undirbúið, hve vel það hefði verið rannsakað í upphafi og hversu ágætir reiknimeistarar þeir sérfræðingar væru sem hefðu undirbúið þetta mál. Ég vil aðeins bæta því við hógvær orð hæstv. iðnrh. um hinar glæstu vonir sem menn bundu við þessa verksmiðju sem núv. hæstv. forsrh., þáv. iðnrh., lét sér um munn fara hér í þessari hv. deild þegar hann mælti fyrir frv. hið fyrra sinni og reiknað var með samstarfi við ameríska auðhringinn Union Carbide. Þar sagði hann: „Samkv, því (þ.e. öllum áætlunum þessara ágætu sérfræðinga sem á var byggt) er gert ráð fyrir því að hreinn hagnaður, eftir að allar greiðslur hafa verið inntar af hendi og m.a. skattar, ætti að verða hin fyrstu ár um 3 millj. dala en síðan fara hækkandi upp í 4.6 millj. dala á árunum 1983–1987“ — þ, e. næsta ári og síðan tveimur árum fram yfir þann tíma sem fyrirhuguð fjárhagsaðstoð, sem nú er um fjallað, ætti að taka gildi.
Er þessu máli — svo að við stiklum á stóru — var hreyft hið síðara sinnið og stefnt var að samstarfinu við núverandi ágætan samstarfsaðila Íslenska járnblendifélagsins. Elkem Spigerverket, sagði hv. þáv. formaður iðnn. Ed., núv. hæstv. sjútvrh., Steingrímur Hermannsson: „Hvað eftir annað kemur fram í þessari umsögn hinnar sérstöku nefndar, sem um fjallaði, og Þjóðhagsstofnunar, að arðsemin nú er byggð á töluvert traustari grunni en áður var þegar lög um járnblendiverksmiðju voru samþykkt hér á hinu háa Alþingi.“ Sem sagt, arðsemiútreikningarnir þá voru reistir á traustari grunni en hið fyrra sinnið þegar reiknað var með hinum mikla arði sem þáv. hæstv. iðnrh. gerði grein fyrir í sambandi við Union Carbide. Þetta staðhæfði formaður iðnn. Ed. þá, þrátt fyrir það að fyrir lægju útreikningar Þjóðhagsstofnunar, gerðir að sérstakri beiðni Alþb., um það, hver útkoman hefði verið úr rekstri verksmiðjunnar ef hún hefði verið rekin árið áður, og sýndu að tap hefði þá verið 8 millj. Samt var þetta staðhæft.
Ég vil ekki orðlengja á þessu stigi, áður en fjallað hefur verið um málið í iðnn., horfurnar eins og þær eru nú á útkomu þessarar verksmiðju, en vekja athygli á því áliti starfshópsins sem hæstv. iðnrh. gerði hér grein fyrir áðan, sem bendir til þess að ærið undarlega hafi verið um hnútana búið af hálfu þeirra sem sömdu við norska fyrirtækið og knúðu í gegn stofnun þessa fyrirtækis, svo einkennilega hafi verið um hnútana búið að jafnvel þótt horfur séu á áframhaldandi tapi, þá komi ekki annað til mála en halda áfram rekstri verksmiðjunnar, og jafnvel þótt tapið yrði enn þá meira en það er nú, þá muni eigi að síður ekki annað koma til álita en að halda áfram rekstri verksmiðjunnar með því sem næst fullum afköstum.
Peningarnir, sem hér er um að ræða að gauka að þessu fyrirtæki núna, nema samtals, eins og frá segir neðst á bls. 2 í fskj. frv., 345 millj. kr. Ég leyfði mér að hringja inn í Vegagerð ríkisins nú í morgun og spyrja hvað hægt væri að leggja bundið slitlag á langan veg fyrir 345 millj. kr. Svarið var 1 140 km. En hringvegurinn er samtals um 1 500 km.
Það gleður mig alveg sérstaklega, að hv. þm. Þorv. Garðar Kristjánsson er sestur í sæti sitt hérna í deildinni, því að mér eru í fersku minni — auk þess sem ég hef þær skjalfestar — mjög strangar yfirlýsingar hans um ágæti þessarar verksmiðju, og ég heiti honum nú því af fullkomnum drengskap, að þessi ummæli hans muni ég rifja upp rækilega ásamt ummælum ýmissa annarra við 2. umr. um þetta mál.
Með tilliti til þess, að þeir fjármunir, sem okkur verður nú gert að gauka að járnblendiverksmiðju þeirra sjálfstæðismanna — og þó flísuðust þeir í málinu — framsóknarmanna — og kvarnaðist úr þeim líka, við lokaafgreiðslu málsins að vísu, en Alþfl. stóð þar rétt, — þeir peningar sem okkur verður nú gert að gauka að þessu fyrirtæki nema þeirri fjárupphæð sem nægja mundi til þess að leggja bundið slitlag á rösklega 2/3 hluta af hringveginum, þá get ég ekki annað en dáðst að hógværðinni í orðalagi þeirra starfshópsmanna þegar þeir segja, eins og fram kemur í athugasemdum við frv. þetta: „Afkoma Járnblendifélagsins fyrstu þrjú rekstrarárin hefur orðið talsvert lakari en ráð var fyrir gert.“ Sennilega hefði Elísabet drottning sem mest dáði „understatement,“ klappað fyrir þessari athugasemd.
Ég ítreka þetta, að umfjöllun í iðnn. Ed. og 2. umr. um þetta mál mun kalla á miklu nákvæmari og ítarlegri skoðun á forsendum fyrir því, að lagt var út í þetta fyrirtæki, eins og framtíðin blasti við því á þeim tíma þegar sú ákvörðun var tekin, og endilega þurfum við við umfjöllun í iðnn., eins og að líkum lætur, að kalla fyrir okkur sérfræðingana sem álitin sömdu, sem hinir klóku alþm. byggðu handauppréttingar sínar á á þeim tíma, og þá fyrst og fremst forstjóra fyrirtækisins, sem lét hafa það eftir sér í útvarpi fyrri hluta vetrar, að ein af ástæðunum fyrir slæmri stöðu járnblendiverksmiðjunnar væri innlend verðbólga.
Ég mun ekki tala lengra mál að þessu sinni um frv. sem við fjöllum hér um, en vil aðeins undirstrika að nauðsynlegt er fyrir iðnn. Ed. og síðan alla hv. dm. að ganga úr skugga um það, að við höfum nú á landi hér í eigu okkar að verulegum hluta þess konar óskepi í fyrirtækismynd að við hljótum að halda áfram að reka það hversu miklu tjóni sem það veldur okkur.