16.04.1982
Efri deild: 66. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3844 í B-deild Alþingistíðinda. (3311)
273. mál, járnblendiverksmiðja í Hvalfirði
Lárus Jónsson:
Herra forseti. Það eru aðeins nokkur orð. Ég vildi undirstrika það, að ég er innilega sammála hv. 4. þm. Norðurl. e. um að það hefði verið betri fjárfesting fyrir okkur, hinn íslenska almenning, að leggja 1 100 km af bundnu slitlagi en að leggja fram hlutafé í járnblendiverksmiðjuna í Hvalfirði. Þetta var einmitt það atriði sem ég var að ræða um. Að sjálfsögðu er það svo, bæði með hið opinbera og aðra, að það eru takmörk fyrir því, fjármagni sem menn hafa hverju sinni. Það eru takmörk fyrir því, hvað menn taka t.d. að láni. Það eru takmörk fyrir því, hvað við getum tekið af sköttum af almenningi. Þess vegna eru takmörk fyrir því, sem hið opinbera hefur til ráðstöfunar á hverjum tíma. Þá verður að meta og vega hvað á að gera við þetta fé. Eigum við að leggja það í þetta fyrirtæki eða eigum við að leggja það t.d. í bundið slitlag? Ég er innilega sammála hv. þm. um að það hefði verið æskilegra og hagkvæmara fyrir allan almenning að nota þetta fé í framkvæmdir, sem sannarlega eru á borðinu eins arðsamar og við vitum allir. Það er einmitt þetta sem menn verða að gera upp við sig og athuga þegar þeir eru að ræða hlutdeild hins opinbera í stóriðjufyrirtækjum. Það er einmitt þetta, að menn hafa ýmsa möguleika til að ráðstafa fjármagninu til hagsbóta fyrir allan almenning. Og ef við höfum, eins og hv. síðasti ræðumaður sagði og dró mjög fram, íslenska hagsmuni, hagsmuni alls almennings fyrir augum, þá hljótum við að hugsa sem svo: Hvernig eigum við að ráðstafa því takmarkaða fjármagni sem við höfum milli handa svo að það komi almenningi í landinu að sem mestum notum.
Hv. þm. æsti sig eitthvað út af því, að ég sagði úr sæti mínu að einkareksturinn stæði sig betur en hinn opinberi. Ég held að jafnvel hv. þm. Alþb. geti ekkí komið það á óvart, að ég hef þá skoðun, og ég held að þeir hafi þá skoðun líka að mörgu leyti. Alla vega hef ég ekki heyrt till. frá þeim um að við þjóðnýtum t.d. allan atvinnurekstur á Íslandi, en það ætti að vera alveg rökrétt niðurstaða þeirra sem litu svo til að hið opinbera gæti rekið atvinnufyrirtækin betur en einstaklingarnir.
Ég vil svo að lokum fara nokkrum orðum um það sem hæstv. iðnrh. sagði í seinni ræðu sinni. Hann spurði okkur hv. þm. hvort við eigum að láta útlendinga ráða okkar atvinnustefnu. Ég vil þá varpa fram annarri spurningu: Hefðum við látið útlendinga eitthvað meira ráða ef við hefðum átt t.d. 10% í járnblendiverksmiðjunni við Grundartanga og eignast hana hægt og bítandi, eins og ég lagði til á sínum tíma og kom fram í mínum málflutningi? Hefðum við látið þá eitthvað frekar ráða ferðinni í okkar atvinnuuppbyggingu? Að sjálfsögðu ekki. Hins vegar hefðum við ekki staðið í þeim sporum, sem við stöndum í núna, að þurfa að skuldbinda íslenskan almenning sem hluthafa í þessu fyrirtæki með þeim hætti sem við stöndum frammi fyrir í dag. Það er einmitt þetta sem málið snýst um, en ekki hvort að við eigum að treysta eingöngu á íslensk forræði í uppbyggingu stóriðju eða ekki. Ég hef þá skoðun, að við eigum að vera ófeimnir að semja við erlend fyrirtæki um þessa uppbyggingu einmitt af þeim ástæðum, sem komu fram hjá hv. 4. þm. Vestf., að við höfum ekki bolmagn til að gera jafnmikið og við viljum gera á skömmum tíma í þessum efnum sjálfir. En við þurfum að sjálfsögðu að fikra okkur áfram, Íslendingar, í því að eiga og reka slík fyrirtæki, og mér hefur hugnast best í mínum huga sú aðferð að semja þannig við þessa aðila að við eignumst fyrirtækin smátt og smátt.
Ég vildi, að þetta kæmi fram, og vil undirstrika enn og aftur að ég er nákvæmlega sömu skoðunar og hv. þm. Stefán Jónsson að við þurfum einmitt að gæta að því, þegar við erum að taka ákvarðanir um að leggja fram fé í fyrirtæki sem þessi, hvort þau séu nægjanlega arðbær, hvort þau séu besti kosturinn fyrir okkur að leggja í viðkomandi fjármagn. Þá þurfum við að sjálfsögðu að taka fleira inn í reikninginn en einvörðungu fjármagnshliðina og arðinn. Við þurfum að sjálfsögðu að taka með í reikninginn þjóðfélagsaðstæður okkar, atvinnusköpun o.s.frv. Ég held að reynslan sanni það með því, sem við stöndum frammi fyrir nú með járnblendiverksmiðjuna í Hvalfirði, að við þurfum að gæta okkar miklu meira þegar við tökum afstöðu til slíkra mála en gert var á þeim tíma.