16.04.1982
Neðri deild: 64. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3863 í B-deild Alþingistíðinda. (3327)

107. mál, almannatryggingar

Magnús H. Magnússon:

Herra forseti. Ég skrifaði undir nál. meiri hl. heilbr.- og trn. með fyrirvara og mun skýra ástæður mínar til þess.

Það kerfi, sem við búum við í dag varðandi önnur sjúkrahús en ríkisspítalana, daggjaldakerfið, er á ýmsan hátt gallað, eins og mjög vel kom fram hjá síðasta hv. ræðumanni. Höfuðgallinn er sá, að það hvetur ekki sem skyldi til sparnaðar í rekstri. Það ýtir undir — og það er reyndar grundvallaratriði fyrir afkomu sjúkrahúsanna — að öll sjúkrarúm séu ævinlega nýtt, þótt það sé ekki sjúklinganna vegna í öflum tilvikum bráðnauðsynlegt. Og það verkar letjandi á þá þróun að taka upp göngudeildarstarfsemi í auknum mæli, en hún byggist á því að veita sem allra mesta og besta þjónustu án þess að leggja fólk inn á sjúkrahús. Göngudeildarstarfsemin hlýtur að vera þjóðhagslega mjög hagkvæm, en til hennar er allt of lítið tillit tekið við ákvörðun daggjalda.

Auðvitað mætti bæta daggjaldakerfið og það mætti taka upp nýtt greiðsluform, eins og minni hl. heilbr.- og trn. talar um í nál. sínu. Það er að greiða fyrir veitta þjónustu í stað þess að miða alfarið við nýtingu sjúkrarúma.

Í því frv., sem hér er til umr., er lagt til að taka megi fleiri sjúkrahús en ríkisspítalana inn á föst fjárlög. Fyrir nokkrum árum voru ríkisspítalarnir fluttir af daggjaldakerfinu og inn á fjárlög, mig minnir að það hafi verið 1976. Ég tel að við þetta hafi sparast, miðað við óbreytta þjónustu, einhvers staðar á bilinu 3–5% af rekstrarkostnaði. Þótt þetta þyki e.t.v. ekki há prósentutala er hér um mjög miklar fjárupphæðir að ræða. Í framkvæmd hafa bæði kerfin reynst illa að því leyti, að stjórnvöld hafa ekki viðurkennt staðreyndir um verðbólguþróunina, ekki tekið nægilegt tillit til hennar, eins og mjög greinilega kom fram í máli hv. 1. landsk. þm.

Daggjaldanefndin ákveður ársfjórðungslega daggjöld og þá miðað við verðlag þann daginn, sem ákvörðun er tekin, og miðað við vísitölur sem eru meira og minna úreltar. Síðan þarf ríkisstj. að fjalla um málið og það getur dregist svo og svo lengi, stundum svo vikum og mánuðum skiptir. Á næstu þremur mánuðum hækkar svo allur tilkostnaður vegna verðbólgu og af ýmsum öðrum ástæðum, fjölgun sjúklinga o.s.frv. Seint og um síðir og ekki fyrr en reikningar viðkomandi sjúkrahúsa liggja fyrir viðurkennir daggjaldanefnd kostnaðaraukann með ákvörðun svokallaðra halladaggjalda. Kerfið býður því upp á mikinn uppsafnaðan vanda þeirra sem sjúkrahúsin reka, og alltaf hleður sá vandi utan á sig, að ekki sé talað um þegar ríkissjóður hættir að greiða þau halladaggjöld sem þá var búið að ákveða, eins og gerðist í fyrsta sinn, að ég veit til, s.l. sumar. Þá var hætt að greiða halladaggjöld vegna þess að fjárveiting var búin. Þá skipti engu máli hvort sjúkrahúsin stóðu uppi með hallann óbættan eða ekki. M.ö.o.: vandanum var í enn ríkari mæli en áður velt yfir á rekstraraðila sjúkrahúsanna og annarra daggjaldastofnana.

Rétt er að benda á það hér, þótt flestir viti það, að ríkissjóður greiðir aldrei vexti af skuldum sínum við aðra aðila, hvað þá dráttarvexti, ekki heldur af skuldum sínum við sveitarfélög, þótt hinn sami ríkissjóður sé fljótur að beita dráttarvöxtum af mikilli hörku við þessi sveitarfélög og það þótt ríkissjóður skuldi sömu sveitarfélögum miklu meira. Þarna er ójafnaði beitt af mikilli hörku. Með alla þessa reynslu af viðskiptum sínum við daggjaldanefnd og ríkissjóð í huga er ekki nema von að rekstraraðilar sjúkrahúsa séu tortryggnir á allar breytingar. Þeir halda einfaldlega að ríkissjóður sé enn að færa sig upp á skaftið og ætli sér að svindla enn meira en áður á rekstraraðilum sjúkrahúsanna og daggjaldastofnunum. Í sjálfu sér batnar þetta hvorki né versnar við það að fara frá daggjaldakerfi yfir á föst fjárlög, eins og kom fram hjá hv. 1. landsk. þm.

Það, sem vantar, hvort kerfið sem notað er, eru traustar rekstraráætlanir, sem daggjaldanefnd staðfestir, og síðan að staðreyndir um verðbólguþróun séu viðurkenndar. Það þýðir t.d. ekki að hæstv. fjmrh. semji við lækna á þann veg að útgjöld sjúkrahúsanna af þeim mikla útgjaldalið vaxi um 30% eða þar um bil, eins og gerðist s.l. ár; og svo viðurkennir sami hæstv. ráðh. ekki þann kostnaðarauka með því að fallast á hækkun daggjalda sem því nemur. Það þýðir ekki að nota úreltar vísitölur. Það þýðir ekki að nota framfærsluvísitöluna, það þýðir ekki að nota verðbótavísitöluna og þaðan af síður reiknitölu fjárlaga, en þetta eru þeir viðmiðunarliðir sem daggjaldanefndin hefur notað. Það verður að viðurkenna staðreyndir. Það hefur ekki verið gert, eins og mjög rækilega kom fram í máli hv. 1. landsk. þm.

Það þýðir ekki heldur að skrifa framkvæmdastjórum sjúkrahúsanna leynibréf og krefjast sparnaðar nema benda á sparnaðarleiðir. Ef ætlunin er að skerða þjónustuna verður að viðurkenna það. Það þýðir ekki heldur að lækka greiðslur til sjúkratrygginganna um 20 millj. kr., eins og var gert fyrir nokkrum vikum í lánsfjárlögum, á sama tíma og rekstur sjúkrahúsanna og annarra heilbrigðisstofnana er að stöðvast vegna fjárskorts. Er hugmyndin að níðast enn meira en áður á sveitarfélögunum og öðrum rekstraraðilum sjúkrahúsanna og daggjaldastofnananna? Það er stóra spurningin, og það dettur mörgum áreiðanlega í hug. Aðalatriðið í þessum málum öllum, hvort kerfið sem notað er, eins og ég kom inn á áður, er að gera raunhæfar rekstraráætlanir og viðurkenna síðan staðreyndir um kostnaðarhækkanir.

Þó að sú breyting, sem áætluð er með því frv. sem hér er til umr., bæti ekki af sjálfu sér þá vankanta, sem nú eru á framkvæmd daggjaldakerfisins, og ekki heldur þá vankanta, sem eru á framkvæmd hins kerfisins þ.e. ríkisspítalanna, þá tel ég samt að það beri að fallast á þetta frv. og beri til að byrja með — og þess vegna kemur minn fyrirvari — að taka eitt sjúkrahús, t.d. Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri, eins og kom fram hjá hv. 1. landsk. þm., til reynslu af daggjaldakerfinu yfir á föst fjárlög.

Ástæða mín fyrir þessari afstöðu, fyrir þessum fyrirvara, er sú að ég vil að bæði rekstraraðilar sjúkrahúsanna og aðrir sjái hvaða reynsla verður af þessari breytingu á einu sjúkrahúsi, og þá verður auðvitað að nota tölur og reiknilíkön sem allir geta treyst.

Herra forseti. Ég tel, að nauðsyn beri til að endurskoða bæði kerfin, og tek að því leyti mjög undir sjónarmið minni hl. heilbr.- og trn„ bæði daggjaldakerfið og beinu framlögin, með það markmið að fá fram sem besta þjónustu fyrir sem minnst verð. Í því sambandi er einnig nauðsynlegt að auka verkefnaskiptingu milli sjúkrahúsanna og hvers konar samvinnu þeirra í milli. Ég tel að spara megi mjög miklar upphæðir með því að koma þar á góðu skipulagi. Ég tel reyndar að það þurfi að endurskoða allt skipulag þessa mjög svo mikilvæga málaflokks.