16.04.1982
Neðri deild: 64. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3875 í B-deild Alþingistíðinda. (3331)
107. mál, almannatryggingar
Félmrh. (Svavar Gestsson):
Herra forseti. Það er nú leitt að þurfa að bíða fram í næstu viku eftir því að heyra það töfraorð frá hv. þm. Jóhönnu Sigurðardóttur sem á að leysa þessi mál. Það er fróðlegt að heyra að þau hv. þm. Pétur Sigurðsson og hv. þm. Jóhanna Sigurðardóttir skuli hafa komið sér saman um lausn á þessum vanda og þau ætli að leyna þjóðina þessu í heila viku. Það verður spennandi að heyra hvað út úr þessu kemur. hvaða fæðing þetta verður. Ég skal svo sem hafa þolinmæði eins og aðrir í þeim efnum, en óneitanlega verður fróðlegt að heyra hvað út úr þessum tíðindum kemur.
Ég vil aðeins segja það að síðustu af minni hálfu, að meginatriðið er að heimild fáist til að setja á fjárlög eitt, tvö eða þrjú sjúkrahús samkvæmt ákvörðun Alþingis, ef því sýnist svo. Til þess að það sé unnt verður að styrkja heilbrmrn. til þess að hafa með að gera faglegt eftirlit með þjónustu sjúkrahúsanna. Það er ekki hægt fyrir heilbrmrn. að ganga frá þessum málum öðruvísi en að það verði á hreinu.
Varðandi ummæli hv. þm. Péturs Sigurðssonar um verðbólguna, að það sé hún sem þarna spilli öllu, þá spillir hún auðvitað mörgum áætlunum. En aðalvandinn er auðvitað sá, að það er ekki hægt að áætla greiðslur til sjúkrahúsa út á legudaga á rúm, það er fráleitur grundvöllur, sérstaklega eftir að þjónusta sjúkrahúsanna varð svo margbreytileg sem raun ber vitni. Við erum sem sagt að fara hógværlega fram á að Alþingi megi ákveða hverju sinni með hvaða hætti fé verður veitt til sjúkrahúsanna.
Hvaða vanda leysir þetta? spyr hv. þm. Þetta eitt út af fyrir sig leysir ekki vandann. En þetta ásamt öðru getur leyst vanda, þann t.d. að hv. Alþingi hafi yfirlit yfir það, hvernig það ráðstafar því fé sem landsmenn greiða í hinn sameiginlega sjóð.
Fjvn. og Alþingi vita ekkert um það í einstökum atriðum hvernig kostnaði er háttað við hina mörgu daggjaldaspítala í landinu sem skipta tugum. Alþingi hefur ekki. svo mér sé kunnugt um, í sambandi við afgreiðslu fjárlaga fengið hér á borð allra þm. upplýsingar um rekstrarkostnað við hvert einstakt sjúkrahús í landinu. Ég tel að það sé nauðsynlegt að það væri framför að Alþingi setti sig inn í þessi atriði, hvert og eitt, og fengi upplýsingar um hvað kostar að reka okkar heilbrigðisþjónustu. Það liggur ekki fyrir á borðum alþingismanna hver er halli á einstökum sjúkrahúsum. Það liggur ekki fyrir á borðum alþm. hversu miklu er á hverju sjúkrahúsi varið í þennan og hinn þátt þjónustunnar. Þetta er slæmt vegna þess að þingið á að bera ábyrgð á því, hvernig fjármagninu er varið. Ég tel þess vegna að hér væri um að ræða tilraun, skref í þá átt að styrkja og bæta stjórnina á heilbrigðisþjónustunni í landinu. Og mér finnst í raun og veru ekki til mikils ætlast eða farið fram á mikið að Alþingi geti sjálft ákveðið, ef því svo sýnist, að þetta eða hitt sjúkrahúsið verði fjármagnað með beinum framlögum á fjárlögum.