16.04.1982
Neðri deild: 64. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3877 í B-deild Alþingistíðinda. (3333)
107. mál, almannatryggingar
Félmrh. (Svavar Gestsson):
Herra forseti. Vegna fsp. um bæklunarlækningadeild við sjúkrahúsið á Akureyri skal því svarað, að ríkisstj. er með það mál í athugun. Ég vísa til þess sem ég sagði í upphafi ræðu minnar í dag, að það eru uppi óskir um að hefja verulega nýja starfsemi í heilbrigðis-og sjúkrahúsaþjónustunni á þessu ári. Það er um að ræða starfsemi sem kostar verulega fjármuni og hefur ekki verið tekin um það ákvörðun, hvernig þeirri starfsemi verður háttað í einstökum atriðum eða hvenær hún hefst. En ég hef rætt við Höskuld Baldursson, nýlega ráðinn bæklunaryfirlækni á bæklunarlækningadeildinni á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri um þau mál. og ég vona að þeir hlutir verði í því lagi sem menn geti sæmilega sætt sig við, en innan þeirra marka auðvitað sem fjárlög leyfa. Ég mun einnig ræða þessi mál nánar við forráðamenn sjúkrahússins á Akureyri nú um helgina.
Varðandi framhald framkvæmda á Akureyri get ég að sjálfsögðu ekkert um það sagt, ekki neitt, það er algerlega málefni Alþingis. Ég vil geta þess hér, að ég hef nú um nokkurt skeið verið með að störfum nefnd sem er að gera tillögur um framkvæmdaáætlun í heilbrigðismálum til næstu 5–10 ára, og sú nefnd mun m.a. taka afstóðu til þess, hvort bæta á verulega við Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. En ég endurtek það sem ég sagði áðan, að ef menn eru að gera kröfur um svona lagað, þá eru menn að gera kröfur um skattahækkun eða niðurskurð á þjónustu annars staðar. Þetta verða menn að horfast í augu við.
Ég hygg að ég hafi svarað fsp. hv. þm. Halldórs Blöndals og hef í sjálfu sér ekki neinu við þetta frekar að bæta. Ég mun sem sagt ræða við forráðamenn Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri nú um helgina um bæklunarlækningadeildina sérstaklega.