16.04.1982
Neðri deild: 64. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3891 í B-deild Alþingistíðinda. (3355)
168. mál, dýralæknar
Halldór Blöndal:
Herra forseti. Ég vil rifja það upp, að við afgreiðslu fjárlaga var því lýst yfir af hálfu ríkisstj. í samræmi við fsp. frá mér, að ráðning annars dýralæknis í Þingeyjarsýslum yrði tafarlaust og frv. til laga um dýralækna næði samþykki á Alþingi, ef það á annað borð næði samþykki á Alþingi að sjálfsögðu. Ég vil spyrja hæstv. landbrh. að því, hvort þessi ákvörðun standi ekki og þess sé að vænta að embættinu á Húsavík verði slegið lausu eða í Suður-Þingeyjarsýslu strax og málið hefur fengið fullnaðarafgreiðslu frá Alþingi, ef það verður að lögum. Loforð um þetta var gefið við afgreiðslu fjárlaga, og ég vænti þess, að við það verði staðið.
Ég vil vegna ummæla hæstv. landbrh. áðan aðeins segja það sem mína skoðun, að ekki sé hægt að lita á skoðanir embættismanna í ráðuneytum sem einkaskoðanir þeirra, heldur hljóti slíkar skoðanir að vera á ábyrgð viðkomandi ráðh. og vera þá um leið skoðun ráðherrans. Ég held því að það verði að líta svo á, að það, sem embættismenn heilbrmrn. segja sem slíkir í bréfi til þingnefndar, hljóti um leið að vera skoðanir hæstv. heilbrmrh. — Þetta er nú útúrdúr.
Ég vil enn fremur spyrja hæstv. landbrh. hvort hann hafi í hyggju að héraðsdýralæknir í Þingeyjarumdæmi hinu vestra verði staðsettur á Húsavík, eins og óskir hafa komið fram um, m.a. frá Búnaðarsambandi Suður-Þingeyinga. Samkv. frv. og einnig samkv. þeim brtt., sem liggja fyrir varðandi staðsetningu dýralækna, liggur það fyrir að valdið er fengið ráðh. í hendur, hvort sem brtt. verður samþykkt eða ekki. Við 5. gr. hefur hæstv. landbn. lagt fram svohljóðandi brtt.:
„Landbrh. ákveður hvar héraðsdýralæknar skuli hafa aðsetur og starfsaðstöðu, að fengnum tillögum yfirdýralæknis, stjórnar Dýralæknafélags Íslands og viðkomandi búnaðarsambanda.“
Þessi grein er alveg tvímælalaus um það, að valdið er í höndum ráðh. Ég vil í framhaldi af fyrri fsp. mínum til hans spyrja hann að því, hvort í hans huga séu nokkrar efasemdir um að hinum nýja dýralækni verði valinn embættisbústaður á Húsavík, eins og óskir eru um í héraði og hjá þeim dýralækni sem nú situr á Húsavík
En aðalatriðið er nú samt hitt, sem ég vil ganga úr skugga um að við verði staðið, að enginn dráttur verði á því, að héraðsdýralæknisembættinu í Þingeyjarþingi hinu vestra verði slegið lausu svo fljótt sem kostur er og þær heimildir, sem eru í fjárlögum, verði notaðar eins og gert var ráð fyrir.