05.11.1981
Sameinað þing: 13. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 495 í B-deild Alþingistíðinda. (336)
325. mál, símaþjónusta opinberra stjórnsýslustofnana
Ólafur Þ. Þórðarson:
Herra forseti. Það væri þarft að fram kæmi við þessar umr. hvort tímamælt skrefagjald er m. a. á hinum Norðurlöndunum eða ekki. Hitt er fróðlegt og nauðsynlegt fyrir þjóðina og sjálfstæðismenn, hvar sem þeir eru á Íslandi, að fá á hreint hvort hér talaði áðan aðeins þm. Reykv. eða varaformaður Sjálfstfl.