16.04.1982
Neðri deild: 64. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3893 í B-deild Alþingistíðinda. (3360)

217. mál, jarðalög

Frsm. (Stefán Valgeirsson):

Herra forseti. Þetta frv. er í raun og veru tengt hinu fyrra þannig að það gildir alveg það sama um þetta frv. Nefndin komst að samkomulagi og lagði til brtt. á þskj. 529, en vegna viðbótarupplýsinga, sem nefndin hefur fengið, óskar hún að fá að skoða málið betur á milli 2. og 3. umr. og tekur þar af leiðandi þessa brtt. til baka til 3. umr.