16.04.1982
Neðri deild: 64. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3894 í B-deild Alþingistíðinda. (3365)

203. mál, Innheimtustofnun sveitarfélaga

Frsm. (Alexander Stefánsson):

Herra forseti. Hér er um að ræða stjfrv. um breytingar á Innheimtustofnun sveitarfélaga. Frv. fékk umfjöllun í hv. Ed. og var einróma samþykkt þar eins og það liggur fyrir. Félmn. Nd. tók þetta mál til athugunar.

Hér er um að ræða, eins og kemur fram í frvgr., heimild fyrir Innheimtustofnun til að taka að sér gegn greiðslu hvers konar innheimtur fyrir einstök sveitarfélög, einkum þó innheimtu á sveitarsjóðsskuldum manna sem fluttir eru brott úr sveitarfélaginu. Einnig getur stofnunin, að beiðni rn., með sama hætti tekið að sér innheimtu meðlagsskulda erlendra ríkisborgara búsettra hér á landi og meðlög sem greidd eru erlendis vegna íslenskra ríkisborgara. Hér er um nauðsynlega breytingu að ræða sem stjórn stofnunarinnar hefur eindregið óskað eftir að næði fram að ganga.

Félmn. varð sammála um að mæla með samþykkt frv. óbreytts.