19.04.1982
Efri deild: 67. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3897 í B-deild Alþingistíðinda. (3367)
Varamaður tekur þingsæti
Forseti (Helgi Seljan):
Mér hefur borist svohljóðandi bréf:
„Alþingi, 16. apríl 1982. Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindagerðum mun ég ekki geta sótt þingfundi á næstunni. Leyfi ég mér því með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að vegna forfalla 1. varaþm. taki 2. varaþm. Framsfl. í Reykjavík, Sigrún Magnúsdóttir kaupmaður, sæti á Alþingi í fjarveru minni.
Ólafur Jóhannesson,
5. þm. Reykv.“
Hér fylgir svo með annað bréf:
„Reykjavík, 16. apríl 1982.
Vegna anna sé ég mér ekki fært að taka sæti á Alþingi næstu daga.
Virðingarfyllst,
Haraldur Ólafsson.“
Sigrún Magnúsdóttir hefur áður tekið sæti á Alþingi og þarf því ekki að fara fram rannsókn á kjörbréfi hennar. Býð ég hana velkomna til starfa.