19.04.1982
Efri deild: 67. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3920 í B-deild Alþingistíðinda. (3389)

287. mál, verðtryggður skyldusparnaður

Sigurlaug Bjarnadóttir:

Herra forseti. Aðeins örfá orð til viðbótar því sem ég sagði áðan, aðallega vegna ummæta hv. 11. þm. Reykv., Ólafs Ragnars Grímssonar.

Um það, sem hann sagði, vil ég segja: Það gildir auðvitað einu hvað þingmaðurinn framreiknar í gríð og ergi tölur um almennar launatekjur. Ég miðaði við almenn verkamannalaun frá síðasta ári og það kemur í ljós að þau eru litið eitt lægri en lægri kanturinn við viðmiðunartölu þeirri sem þessi skyldusparnaður átti að miðast við. Málið er þannig fallið um sjálft sig. Það er greinilegt að frv. er ekki allt þar sem það er séð og það kemur til með að lenda með óhæfilegum þunga á meðaltekjufólkinu. Annars mun væntanlega hv. form. fjh.- og viðskn. geta frætt mig um þetta betur á fundi fjh.- og viðskn. í fyrramálið.

Málið er allt mjög svo tortryggilegt. Og það er rétt, sem hér hefur komið fram, að þetta er ekki sambærilegt við skyldusparnaðarlög á dögum ríkisstjórnar Geirs Hallgrímssonar að því leyti, að þá var hæsta skattheimta í 50%, en þetta mál, ef fram næði að ganga, mundi þýða um 70% skatt af hæstu tekjum, sem er að sjálfsögðu óhæfilega mikil skattheimta.

Hv. þm. Salome Þorkelsdóttir benti réttilega á það, að þeir menn, sem fá hæstar tekjur, hafa flestir ef ekki allir unnið óhæfilega mikla vinnu. Þetta er hárrétt. En ég vil nú benda á það jafnframt, að þeir, sem rétt hafa til hnífs og skeiðar, þeir sem rétt tekst að ná endum saman, vinna ekkert síður myrkranna á milti. Sannleikurinn er sá, að hinum almenna launþega í landinu, verkamönnum og öðrum, veitist orðið fullerfitt með meðallaun að lifa af tekjum sínum í dag. Og þetta versnar frá degi til dags því að allar vörur, utan þess sem komið er inn í vísitölu, hækka svo að varla verða hendar reiður á.

Ég sé ekki að hæstv. ríkisstj. geti með tilliti til þessa gert sér vonir um að fá þetta frv. samþykkt. Ég tel að hún ætti að snúa sínu máli nú til betri vegar, og þá er ég viss um að stjórnarandstaðan mundi reiðubúin að koma til móts við hæstv. ríkisstj., með því að skila Byggingarsjóði ríkisins aftur þeim tekjustofnum sem búið er að svipta hann og vinna þar með slík skemmdarverk á þessari þörfu og nauðsynlegu lánastofnun að hún er alls óhæf orðin til að gegna sínu hlutverki.

Ég vil aðeins ítreka þetta, sem ég benti á aðan. Ég tel að hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson hafi gert það meira af löngun til að snúa út úr máli mínu og reyna um leið að finna sér og sínum samherjum eitthvað til málsbóta að hann tók þann pól í hæðina sem hann gerði í ræðu sinni áðan.