19.04.1982
Efri deild: 67. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3924 í B-deild Alþingistíðinda. (3394)
287. mál, verðtryggður skyldusparnaður
Þorv. Garðar Kristjánsson:
Herra forseti. Hæstv. félmrh. var að finna að því, að það væri rætt hér um málefni Byggingarsjóðs ríkisins. Það hefur verið bent á, hvílík fásinna það er að finna að slíku, og bent á, að það samrýmist ekki vinnubrögðum okkar í þessari ágætu deild.
Það má kannske telja að það sé í sambandi við það, að hæstv. ráðh. hefur ekki orðið þess aðnjótandi að eiga sæti í deildinni og þekkir kannske ekki vinnubrögð okkar eins vel og við hinir, að hann skuli ekki átta sig á þessu. En ég verð að segja að þær aðfinnslur, sem hér hafa komið fram, og orðaskipti þeim að lútandi hafa orðið til þess, að það hefur heldur losnað um málbeinið á hæstv. ráðh. um húsnæðismálin og var ekki vonum fyrr.
Ég hef síst á móti því að hæstv ráðh. ræði um húsnæðismálin einmitt við þessa umr., sem hér fer fram, vegna þess að þetta frv., sem við hér ræðum, er til fjáröflunar fyrir Byggingarsjóð ríkisins. Ég vænti að það verði ekki um það deilt. En það verð ég að segja, að ég átti á ýmsu von frá hæstv. ráðh. þegar hann færi í alvöru að ræða um húsnæðismálin, en naumast því, að hann tæki þau svo léttilega sem hann gerði í ræðu sinni áðan. Á ég þá ekki við að hann hafi talað stutt, heldur hvernig hann hélt á þeim atriðum sem hann vék að, og er það nánast furðulegt.
Hæstv. ráðh. tók það ráð að fara að ræða um Byggingarsjóð verkamanna. Ef það er einhver goðgá að ræða um Byggingarsjóð ríkisins í þessum umr., sem fjalla um frv. sem viðkemur Byggingarsjóði ríkisins, ætti að vera goðgá að fara að tala allt í einu um Byggingarsjóð verkamanna. En látum það vera. Hæstv. ráðh. stendur í þeirri meiningu allajafna eða kannske alltaf þegar hann talar um húsnæðismálin, að meðferðin á verkamannabústaðakerfinu sé eitthvert blóm í hnappagatið hjá hæstv. ríkisstj. En það er ekki einu sinni á þessu sviði sem hæstv. ríkisstj. og hæstv. félmrh. hafa af einhverju að guma. Þvert á móti er til háðungar hvernig staðið er að verkamannabústaðakerfinu. Á sama tíma sem það er yfirlýst stefna ríkisstj. og hæstv. ráðh., að um 1/3 af íbúðarhúsabyggingum landsmanna skuli vera á hinu félagslega sviði, er þannig búið að Byggingarsjóði verkamanna að hann nýtur hluta launaskattsins sem á er lagður, en einungis að því marki sem þarf til að standa undir 1/3 af útlánum sjóðsins. Samkv. lögum, sem hæstv. ráðh. og núv. hæstv. ríkisstj. bera ábyrgð á, er ekki heimilt að verja tekjum af launaskatti til úttána fyrir Byggingarsjóð verkamanna nema sem svarar 1/3. Hvernig á að mæta hinu? Það á að mæta hinu auðvitað. En það er ekki hægt öðruvísi en með lántökum. Og hverjar eru lántökurnar sem byggt er á? Lántökur úr lífeyrissjóðunum. Og með hvaða kjörum? Það eru lán sem eru tekin til 15 ára með 3.5% vöxtum. Þessu fjármagni á svo að ráðstafa til að lána Byggingarsjóðs verkamanna með 0.5% vöxtum.
Allt þetta kerfi, sem hæstv. ríkisstj. er að guma af í sambandi við Byggingarsjóð verkamanna, er þannig að ef áfram heldur eins og nú horfir er ekki einungis kippt grundvellinum undan eðlilegri starfsemi Byggingarsjóðs ríkisins, heldur einnig Byggingarsjóði verkamanna. Þetta er hörmulegt vegna þess að það er nauðsynlegt að Byggingarsjóður verkamanna sé þannig byggður upp að hann geti gegnt því verkefni sem hann hefur haft frá upphafi, frá stofnun sjóðsins um 1930, að vera skjöldur og skjól þeirra sem verst eru settir í þjóðfélaginu. En hvernig á Byggingarsjóður verkamanna að gegna þessu þýðingarmikla hlutverki þegar búið er með gálauslegum ráðstöfunum að búa þannig að sjóðnum að hann hlýtur að verða gjaldþrota og ófær um að sinna sínu verkefni nema bragarbót sé gerð á?
Þetta er það sem hæstv. félmrh. er sérstaklega að guma af. Til hvers? Til þess að draga athyglina frá umr. um Byggingarsjóð ríkisins.
Hæstv. ráðh. leyfði sér að segja að það hefði verið mikið sagt af endileysum í þessum umr. um Byggingarsjóð ríkisins. Hann sagði, að því er virtist ósköp góðlátlega, að hann skildi þá tilhneigingu hjá stjórnarandstöðunni vegna þess að hún þyrfti að þrengja að ríkisstj. Þetta er mikill misskilningur. Þetta mál er miklu þýðingarmeira en svo að nokkur ábyrgur þm. í stjórnarandstöðunni láti sér detta í hug að nota þetta mál sérstaklega til að þrengja að ríkisstj. Það þarf ekki af hálfu stjórnarandstöðunnar að gera neitt í þessum efnum til að þrengja að ríkisstj. Öllum er ljóst hver staða hennar er og á hverju nástrái hún hangir. Við erum ekkert að hugsa um það mál.
Hæstv. félmrh. sagði að það yrði ánægjulegt að bera saman ástand húsnæðismálanna við það sem áður var. Hæstv. ráðh. sagði: Það er ekkert einfalt mál að halda uppi húsnæðislánakerfi. Hæstv. ráðh. sagði: Það þarf að byggja upp verulegt húsnæðismálakerfi. — Og hæstv. ráðh. bætti við: Það verður ekki gert nema því sé séð fyrir fjármagni. — Þetta segir sá ráðh. sem hefur staðið fyrir því að rífa niður það lánakerfi húsbyggjenda sem upphaflega var stofnað fyrir hartnær 30 árum, að vísu smátt fyrst, en menn vissu hvað þeir vildu. Það var stöðugt verið að efla það. Það kom fram í því, að kerfinu var stöðugt séð fyrir meiri tekjum, Árangurinn kom fram í því, að lán húsnæðismálastjórnar urðu stöðugt hærri, þau urðu stöðugt meiri hluti hlutfallslega af byggingarkostnaði, og þannig hélt áfram fram undir 1970. Þá var svo komið að lán Byggingarsjóðs ríkisins námu um 40% af byggingarkostnaði. Við stöndum ekki núna í þeim sporum — og hvers vegna er það? Það er vegna þess að þess hefur ekki verið gætt, sem hæstv. félmrh. var að segja hér sjálfur í umr. áðan, að til þess að það væri öflugt veðlánakerfi þyrfti það að hafa fjármagn til umráða. Hæstv. ráðh. hefur staðið í fararbroddi fyrir þeim sem hafa horfið frá fyrri stefnu. Hann hefur staðið í fararbroddi fyrir þeim sem hafa svipt Byggingarsjóð ríkisins þýðingarmestu tekjustofnum. Þess vegna er komið sem komið er. Ég segi þetta aðeins í tilefni af orðum hæstv. félmrh. áðan. Auðvitað er hægt að skýra þetta nánar, en bæði ég og aðrir í mínum flokki og raunar stjórnarandstöðunni höfðum verið að skýra þetta á undanförnum mánuðum, á undanförnum þingum, undanförnum árum. Ég gæti vitnað í umr. í þessari deild, sem eru nokkurra mánaða gamlar, þar sem ég átti orðaskipti við bæði hæstv. félmrh. og hæstv. fjmrh. um þetta efni. Þar var megináherslan af þeirra hálfu sú, að það væri vel séð fyrir veðlánakerfinu. En ég var hins vegar að benda á það sama sem ég hef verið að benda á nú.
Nú skal ég ekki hafa fleiri orð um þetta. Ég fagna því, eins og hæstv. félmrh., að ræða almennt um húsnæðismálin þegar hér verður tekið til umr. frv. til l. um breytingar á Húsnæðisstofnun ríkisins.
Ég vil svo að lokum víkja einu orði eða svo að fyrirspurn sem ég gerði til hæstv. fjmrh. Hann er náttúrlega horfinn úr deildinni. Ég veit ekki, hæstv. forseti, hvort það eru tök á að fá hæstv. ráðh. hingað. (Forseti: Nei, það var um það rætt að hæstv. félmrh. svaraði spurningum ef einhverjar væru. Ég hélt að um það hefði verið samið milli manna.) Já, ég skal ekki leggja frekari áherslu á að fá hæstv. fjmrh. hingað. Kannske skiptir það ekki öllu máli. En ég minni aðeins á það — þess vegna vék ég að þessu — að ég spurði hæstv. fjmrh. að því, hvort því fjármagni, sem kæmi inn til Byggingarsjóðs ríkisins af þessum skyldusparnaði sem við nú ræðum, yrði varið til að greiða bráðabirgðalánið við Seðlabankann, sem við höfum áður rætt um, að upphæð 40 millj. Mér þykir þýðingarmikið að fá skýr, greinargóð, afdráttarlaus svör við þessu. Hæstv. ráðh. sagði: Við teljum að Byggingarsjóður eigi nokkuð upp í hluta af skuldinni af þessu fjármagni. Þá er spurningin: Hvað verður um hinn hluta skuldarinnar? Þýðir það þá að hann verði dreginn af því beina ríkisframlagi, sem núna er til Byggingarsjóðs ríkisins, samkv. fjárl. að upphæð 63.2 millj. kr.? Ef það þýðir það stöndum við frammi fyrir því, að þetta mjög svo takmarkaða og ónóga fjármagn, sem Byggingarsjóður ríkisins hefur til ráðstöfunar á þessu ári, lækkar um þá upphæð sem þessu nemur. Þetta getur ekki verið á annan veg, nema ætlunin sé að skuldin við Seðlabankann fái að standa lengur, kannske til langs tíma. Og þá er mín spurning: Er ætlunin að hún geri það?