19.04.1982
Neðri deild: 65. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3935 í B-deild Alþingistíðinda. (3416)
168. mál, dýralæknar
Vilmundur Gylfason:
Herra forseti. Vegna orða hv. 2. þm. Norðurl. e., Stefáns Valgeirssonar, um með hverjum hætti sé eðlilegt að kveða á um endurskoðun laga sem þessara, vil ég aðeins leggja herslu á að það er veigamikill grundvallarmunur á þeirri aðferð sem hann nefndi, sem vissulega hefur oft verið beitt við lagasetningu, og hins vegar þeirri aðferð sem við hv. 3. þm. Reykv., Albert Guðmundsson, leggjum til. Ef sett væri inn lög sem þessi ákvæði til bráðabirgða um að lögin skuli endurskoðuð á einhverjum gefnum tíma, þá segir okkur margföld reynsla undanfarinna ára og af lagasetningu almennt að slíkt ákvæði getur þýtt að lög séu endurskoðuð, en það þarf ekki að þýða nokkurn skapaðan hlut. Verði ekki af slíkri endurskoðun, sem nefnd yrði í slíku ákvæði til bráðabirgða, standa auðvitað gildandi lög, jafnvel um langan tíma eða aldur og ævi, þó svo að löggjafinn hafi alls ekki ætlast til þess. Ef þeirri aðferð er hins vegar beitt sem við hv. 3. þm. Reykv. leggjum til., þ.e. að lögin falli úr gildi á ákveðnum tíma, stendur löggjafinn frammi fyrir því, að þessum gefna tíma liðnum að samþykkja annaðhvort lögin óbreytt áfram, sé það hans vilji á þeim tíma, að samþykkja lögin í breyttu og endurskoðuðu formi eða samþykkja yfirleitt engin lög.
Ég vil undirstrika að það hafa a.m.k. ein lög hér verið samþykkt með þessari aðferð. Ég held að það hafi verið lóg um þýðingarsjóð sem voru samþykkt í fyrra og voru látin standa til ákveðins tíma. Stór röksemd fyrir þessu er að þessi leið, sem á útlendum málum er kölluð „sólarlagsaðferð“ við lagasetningu, hefur verið farin víða erlendis og verið farin með góðum árangri. Ef menn eru að setja lög, en eru ekki alls kostar vissir um að þau séu nákvæmlega eins og þau skuli byggð upp til langs tíma, þá hygg ég að þetta sé mjög skynsamleg aðferð, að segja í upphafi að þau skuli ekki gilda nema til ákveðins tíma. Að þeim tíma liðnum stendur löggjafinn frammi fyrir því, hvort hann vill framlengja þau, hvort hann vill yfirleitt engin lög hafa eða hvort hann vill gerbreyta þeim. Hann verður að taka afstöðu til þess á þeim tíma. Sé hins vegar sú gamla aðferð höfð að segja aðeins, að lögin skuli endurskoðuð, þá þekkjum við fjölmörg dæmi þess, að það er aldeilis undir hælinn lagt hvort af slíkri endurskoðun verður eða ekki, þó svo að slíkt hafi verið augljós vilji löggjafans þegar þau lög voru sett. — Þessi orð segi ég vegna aths. frá hv. þm. Stefáni Valgeirssyni.