05.11.1981
Sameinað þing: 13. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 497 í B-deild Alþingistíðinda. (343)

325. mál, símaþjónusta opinberra stjórnsýslustofnana

Magnús H. Magnússon:

Herra forseti. Ég vil ekki skorast undan ábyrgð á svokölluðu skrefagjaldi þó að það sé ekki beint til umr., en inn í þessar umr. hefur það blandast. Mér finnst það hafa talsvert marga kosti umfram aðrar jöfnunarleiðir. Allir virðast vera sammála um að jafna beri símakostnað og ég er mjög ánægður með það.

Í fyrsta lagi er greitt eftir notkun og yfirleitt er það talinn góður viðskiptamáti. Í öðru lagi verða eðlilegar greiðslur fyrir tölvunotkun, þ. e. tölvur sem eru tengdar klukkutíma eftir klukkutíma við móðurtölvur. Í þriðja lagi dregur það úr álagi á kerfið þannig að það nýtist betur og verður sjaldan óvirkt vegna ofálags. Í fjórða lagi dregur það úr þeim óþægindum sem menn verða fyrir þegar þeir eru að reyna að hringja og alltaf er stanslaust á tali, og þá eru kannske börn og unglingar að tala klukkutímum saman. Í fimmta lagi, og það er rétt að það komi fram, kemur vísitöluleikurinn inn í þetta allt saman, vegna þess að vísitalan er reiknuð út frá skrefinu í Reykjavík, afnotagjaldi í Reykjavík. Það er því í og með verið að reyna að fara fram hjá vísitöluhækkunum þegar reynt er að gera þetta svona.

Þá vil ég taka það fram, að þetta er ekki sama eðlis og yfirleitt önnur jöfnun, séð frá byggðasjónarmiði. Þegar verið er að tala um byggðamál er venjulega verið að jafna þannig að þéttbýlið tekur á sig kostnað og dregur úr kostnaði að sama skapi í dreifbýlinu. Hér er þetta öfugt. Dreifbýlið hefur borgað fram að þessu og borgar enn miklu, miklu meira en því ber. Það eru miklu hærri gjöld á dreifbýlinu en nokkrir kostnaðarreikningar segja til um. Þetta hefur því verið öfug byggðastefna. En vísitalan hefur komið í veg fyrir að þetta væri leiðrétt eins og menn hafa viljað gera. Þetta hefur viljað gleymast.

Í öðru lagi vil ég drepa á skattlagningu símagjalda, eða símans. Það hefur verið komið inn á það hér. Síminn borgar 85% aðflutningsgjöld af öllum sínum vörum og mestallur kostnaður t. d. við sjálfvirkar stöðvar er aðflutt efni. Svo þegar verið er að borga þennan kostnað aftur, þegar neytendur eru að borga hann, þá er aftur tekinn 23.5% söluskattur. Skatturinn er tvíborgaður þannig að ég er næstum því viss um að af hverri krónu, sem við borgum í símgjöld, fer meira en helmingurinn í ríkissjóð.