20.04.1982
Sameinað þing: 77. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3960 í B-deild Alþingistíðinda. (3479)
247. mál, mat á eignum Iscargo hf.
Árni Gunnarsson:
Herra forseti. Hér ber allt að sama brunni. Það fást engin svör fremur en fyrri daginn. Hv. síðasti ræðumaður bar hér upp spurningu sem ég bar einnig fram til hæstv. samgrh. í umr. sem fóru fram í fyrri viku um flugmálastefnu, þar sem ég spurði hann sérstaklega eftir því, hvers vegna Iscargo hefði þurft að skila inn flugleyfum svo að Arnarflug gæti fengið þau. Þetta var alls ekki nauðsynlegt, eins og mönnum er ljóst ef þeir kynna sér tvíhliða loftferðasamninga sem Íslendingar og Hollendingar hafa gert.
Það er alveg fullljóst, að mjög brýna nauðsyn ber til þess að hæstv. fjmrh. geri nú gangskör að því að skila inn skýrslu um mat á eignum Iscargo, eins og farið hefur verið fram á og hið háa Alþingi hefur samþykkt. Það verður að koma skýrt fram í þessu máli, að hluti af eignum Iscargo hefur að öllum líkindum verið seldur fyrir 10–12 millj. kr. meira en efni stóðu til. Alþingi á heimtingu á að þetta mál verði upplýst.
Þá verð ég að láta í ljós nokkra furðu á orðum hæstv. samgrh., þar sem hann vitnar til sérstaks fulltrúa síns í stjórn Flugleiða þar sem hann hafi lagt áherslu á gott samstarf Arnarflugs og Flugleiða. Þá þykir mér að hæstv. samgrh. og fulltrúi hans hafi misjafnar skoðanir á málinu. Ef fulltrúi hans vill stefna að góðu samstarfi er stefna hæstv. samgrh. í einhverja aðra átt.
Herra forseti. Ég skal ekki hafa þetta lengra, en ég held að það sé öllum orðið ljóst að þetta mál er þannig í pottinn búið að þeir aðilar, sem að því hafa staðið, hafa ekki hreint mjöl í pokanum.