20.04.1982
Sameinað þing: 77. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3961 í B-deild Alþingistíðinda. (3482)
247. mál, mat á eignum Iscargo hf.
Árni Gunnarsson:
Herra forseti. Aðeins örfá orð út af furðulegum málflutningi, vægast sagt, hæstv. flugmálaráðh. eða samgrh., sem kemur hér upp hvað eftir annað og lýsir yfir að einhverjir séu að þyrla upp moldviðri. Hvaða moldviðri er það ef menn gera athugasemdir við kaup af þeim toga sem hér er um rætt? Er það moldviðri þegar menn gera athugasemdir við togarakaup sem þeim þykja leyfaveitingar skrýtnar í kringum? Er það moldviðri allt saman, eða t.d. embættaveitingar og annað slíkt? Nei, ég held að staðreyndin í þessu máli sé sú, að hæstv. samgrh. er kominn í fullkomin rökþrot. Hann hefur engin svör af nokkru tagi — ekki nokkur. Og hann lýsir því svo yfir hér galvaskur, að Arnarflugsmenn séu tilbúnir að veita allar upplýsingar og hafi alltaf verið, og spyr mig svo hvaðan ég hafi mínar upplýsingar. Þetta er undarlegur málflutningur, svo að ekki sé meira sagt.
Herra forseti. Ég las hér á dögunum smásetningu úr viðtali við hæstv. samgrh. í hans eigin blaði, Tímanum, sem segir meira en langar ræður um stefnuleysi hans í þessum málum. Ég ætla, með leyfi forseta, að fá að lesa þessa setningu enn einu sinni. Þar segir í fyrirsögn, haft eftir ráðh.: „Vill marka þá stefnu að hér séu tvö áætlunarflugfélög.“ Svo segir ráðh., með leyfi forseta, hvað gerðist þegar hann hafði kallað tiltekna menn á sinn fund: „Ég sagði þeim að ég teldi eðlilegt og að ég mundi ræða um það við flugfélögin, að ef Arnarflug fengi flugleyfi á Amsterdam, eftir að Iscargo hefði skilað inn flugleyfinu, þá væri eðlilegt að Flugleiðir flygju ekki á Amsterdam og Düsseldorf, gegn því þá að Arnarflug flygi ekki leiguflug á Kaupmannahöfn og London,“ sagði samgrh.
Ég held að það þurfi ekki að segja miklu meira í þessu máli. Ráðh. hefur rætt um þessar flugleyfaveitingar og þær virðast hafa komið að býsna góðum notum til að koma þeim kauptún í kring sem hér eru til umr.