20.04.1982
Sameinað þing: 77. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3970 í B-deild Alþingistíðinda. (3496)
Umræður utan dagskrár
Vilmundur Gylfason:
Herra forseti. Vegna þess að hv. 10. þm. Reykv. hefur hafið hér umr. utan dagskrár langar mig til að bera fram eina fsp. til hæstv. forsrh., en það kemur kannske í sama stað niður að það sé hv. 4. þm. Austurl., Sverrir Hermannsson, forstjóri Framkvæmdastofnunar, sem svarar.
Fyrir þinglok á að leggja fram skýrslu um Framkvæmdastofnun og fara fram umr. um þá skýrslu. Hún hefur enn ekki komið. Ég held að ég og margir fleiri hv. þm. óski eftir að fá að ræða þessa skýrslu, eins og lög gera ráð fyrir, enda sitthvað að ræða í sambandi við þetta vandræðabarn í íslenska stjórnkerfinu. Mín fsp. er því þessi til hæstv. forsrh. helst, en að öðrum kosti hans varaskeifu í þessu máli, hv. 4. þm. Austurl.: 1. Verður lögð fram skýrsla um Framkvæmdastofnun ríkisins? 2. Fara fram umr. um þá skýrslu hér fyrir þinglok? Í þriðja lagi má svo nefna hv. 6. þm. Suðurl., sem mun vera formaður stjórnar þessarar virðulegu stofnunar. Vilji aðrir ekki svara óska ég mjög eftir svörum frá honum um þetta: Munum við fá þessa skýrslu frá Framkvæmdastofnun um öll hennar úflán og annað slíkt? Og í annan stað: Munu fara umr. fram um hana hér fyrir þinglok?