20.04.1982
Sameinað þing: 77. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3971 í B-deild Alþingistíðinda. (3498)

Umræður utan dagskrár

Sverrir Hermannsson:

Herra forseti. Þó að ég vilji ekki afsala mér vegtyllum er þess að gæta, að ég held að það standi miklu nær hv. 6. þm. Suðurl. að heita varaskeifa hæstv. forsrh. í þessari stofnun. En samkv. lögum ber að leggja skýrslu Framkvæmdastofnunar fyrir og hæstv. forsrh. geri það. Við þau lög verður að sjálfsögðu staðið. Nákvæmlega get ég ekki tilgreint hvenær skýrslan sjálf kemur til útbýtingar hér, en væntanlega á næstu dögum.