05.11.1981
Sameinað þing: 13. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 500 í B-deild Alþingistíðinda. (350)

41. mál, tölvustýrð sneiðmyndatæki

Fyrirspyrjandi (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Herra forseti. Ég hef leyft mér að gera fyrirspurn til heilbr.- og trmrh. um tölvustýrð sneiðmyndatæki.

Um það bil fyrir einu ári bar ég fram brtt. við fjárlagafrv. fyrir árið 1981 um að veitt yrði framlag til kaupa á svokölluðu tölvustýrðu sneiðmyndatæki fyrir Landspítalann og spítalanum yrði afhent þetta sem gjöf í tilefni af 50 ára afmæli spítalans sem var 20. des. 1980.

Þetta mál fékk mjög góðar undirtektir þegar í stað, ekki síst af hálfu heilbr.- og trmrh. Hann tilkynnti á hátíðarsamkomu eða í veislu, ég hygg frekar í tveimur en einni veislu í sambandi við þetta afmæli, að ríkisstj. hefði ákveðið að gangast fyrir því að Landspítalanum yrði gefið tölvustýrt sneiðmyndatæki í tilefni afmælisins. Enginn ágreiningur var um þetta mál á Alþingi og málið fékk farsælar lyktir þannig að veitt var framlag í þessu skyni á fjárlögum ársins í ár.

Nú hef ég leyft mér að spyrja hvað liði framkvæmd á gjafaloforði ríkisstj. um sneiðmyndatæki þetta. Það er af því tilefni, að þegar ég lagði fram þessa fsp. hafði ég ekkert heyrt um hvað þessu máli liði. Ég hrökk við, ekki vegna þess að það væru í sjálfu sér slæm tíðindi, heldur voru það í eðli sínu góð tíðindi, en samt hrökk ég við þegar ég heyrði að slíkt tæki væri komið til Borgarspítalans í Reykjavík, vegna þess að ég hugði að það yrði hafður slíkur hraði á þessu máli af hálfu heilbrmrh. og ríkisstj. að sneiðmyndatækið yrði komið um þetta leyti til Landspítalans. Ég hef þess vegna leyft mér að spyrja af þessu tilefni: Hvenær var gengið frá kaupsamningi við seljanda sneiðmyndatækisins og hvenær verður sneiðmyndatækið afhent Landspítalanum?

Mér finnst ástæða til að spyrja um þetta, en ég spyr um fleira: Vill ríkisstj. greiða fyrir kaupum sjúkrahúsa á tölvustýrðum sneiðmyndatækjum með því að afnema gjöld til ríkisins af tækjum þessum? Það geri ég af tilefni þeirra góðu frétta sem ég vék að hér áður, að Borgarspítalinn hefur fengið tölvustýrt sneiðmyndatæki. Það er upplýst að um leið og Landspítalinn fær gefins sitt sneiðmyndatæki, að vísu í tilefni af merkilegu afmæli, þarf Borgarspítalinn að greiða há gjöld til ríkisins af því tæki sem hann fær. Með tilliti til þess, hve þessi tölvustýrðu sneiðmyndatæki eru þýðingarmikil og þess er að vænta að ekki einungis Borgarspítalinn, heldur fleiri sjúkrahús þurfi þegar stundir liða fram á þessum tækjum að halda, hef ég leyft mér að spyrja hvort ríkisstj. vilji greiða fyrir tæknilegum framförum á þessu sviði, varðandi heilsugæslu og sjúkrahús landsins, með því að afnema gjöld ríkisins af þessum tækjum.