20.04.1982
Sameinað þing: 77. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3971 í B-deild Alþingistíðinda. (3500)

241. mál, Kortabók Íslands

Fyrirspyrjandi (Sverrir Hermannsson):

Herra forseti. Hinn 5. apríl 1979 ályktaði hið háa Alþingi á þessa leið:

„Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að hafa forgöngu um útgáfu Kortabókar Íslands.“

Þá þegar hafði allmikill undirbúningur farið fram um útgáfu slíkrar bókar af nefnd, sem Háskóli Íslands átti aðild að, Seðlabanki Íslands, Landmælingar Íslands og Framkvæmdastofnun ríkisins. Í framhaldi af þessari þál. hinn 26. apríl 1979 skipaði þáv. menntmrh. Ragnar Arnalds nefnd til þess að gera tillögur til ríkisstj. um framkvæmd þessarar þál. Aðeins þremur vikum seinna er brugðið við og nefnd skipuð til þess að undirbúa tillögur um framkvæmdina, og hún skilaði áliti þegar hinn 5. febrúar 1980. Í nefndarálitinu voru gerðar tillögur um öll helstu framkvæmdaatriði vegna útgáfu kortabókarinnar og á þeim grundvelli sem starfshópurinn á vegum hinnar fyrrgreindu stofnunar hafði lagt. Það var einnig gerð kostnaðaráætlun og greiðsluáætlun og áætlun um væntanlega sölu.

Ég vil geta þess, að hinn 26. maí á s.l. ári var samþykkt í stjórn Framkvæmdastofnunar ríkisins að lána til verksins 150 þús. kr. (VG: Á hvaða vöxtum?) Nærri því á víxilvöxtum, því að nú hefur orðið mikil breyting á ávöxtunarkjörum Byggðasjóðs. Vegna ýmissa atriða, sem við komum að þegar við ræðum skýrslu stofnunarinnar, nálgast þetta nú mjög víxilvexti, lánveitingar úr Byggðasjóði, og allmiklar lánveitingar eru fullverðtryggðar nú orðið. Allt hefur þetta náðst fram á umliðnum árum og enn fremur að þessi fjárhæð, sem var um helmingur þeirrar fjárhæðar sem gert var ráð fyrir að árlega þyrfti til þess að kosta, yrði afborgunarlaus í fjögur ár og vextir reiknaðir eftir á og greiddir eftir á. Stjórn Framkvæmdastofnunar samþykkti enn fremur að lána á næstu þremur árum, þ.e. á undirbúningsskeiði kortabókarinnar, helminginn á móti framlögum á fjárlögum af þeim kostnaði í sama skyni og með sama hætti.

Nú hef ég engar spurnir af þessu máli haft, nema ég veit að enginn hefur vitjað lánsloforðs stjórnar Framkvæmdastofnunar ríkisins í þessu merka máli. Ef mér skjöplast ekki því meir, og ég verð þá leiðréttur ef það er rangt, þá minnir mig fastlega, að hæstv. núv. menntmrh. hafi verið meðflm. minn að þessari menningartillögu þegar hún var flutt og samþykkt. Því er það sem ég spyr á þskj. 455: Hvað liður útgáfu Kortabókar Íslands, sbr. þál. frá Alþingi 5. apríl 1979?