20.04.1982
Sameinað þing: 77. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3974 í B-deild Alþingistíðinda. (3502)
241. mál, Kortabók Íslands
Fyrirspyrjandi (Sverrir Hermannsson):
Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. menntmrh. fyrir skýr svör hans. Ekki ætla ég nú að fara að setja á tölu um gagnsemi og nauðsyn slíkrar útgáfu. Ég aðeins minni á að Finnar, sem urðu fyrstir til að gefa út slíkt fræðirit, upplýsingarit og uppsláttarrit um sína þjóð, gerðu það 1899. Og ég er ekki í nokkrum vafa um að sölumöguleikar eru mjög miklir erlendis fyrir slíka bók.
En tíminn líður. Það eru liðin þrjú ár síðan þessi samþykkt var gerð. Mér þykir leitt að heyra að tillögur kortabókarnefndar eru ekki nýtilegar. Ég hef ekkert sökkt mér niður í að meta þær. Hæstv. menntmrh. hefur vafalaust gert það með sínum ráðunautum og ég hlýt að taka hans álit trúanlegt í þeim efnum.
Ég fagna því, að hann hefur haft annan kost til að rannsaka þetta mál og er, að því er mér skildist, í tilhlaupi að leggja fyrir nýjar hugmyndir, ábendingar um nýjar leiðir til framkvæmda á þessu nauðsynjamáli. Og ég tek undir það, og það er ekki nýtt álit hjá mér eins og hæstv. ráðh. þekkir, að þarna eigi að leita eftir því, að fjármálastofnanir taki fjárhagslega ábyrgð á slíku verki. Ég læt það alveg vera þótt ekki náist saman endar, að útgáfan mundi í fyrstu ekki standa undir sér. Þetta er það mikið menningarverkefni að við megum ekki horfa í það. Auðvitað væri best ef hægt væri að ná sem fyrst endum saman fjárhagslega. Það hefur enginn, sem nærri þessu verkefni hefur komið, gert ráð fyrir því, en með tíð og tíma ætti þetta samt að takast.
Ég ítreka þakklæti mitt og vænti þess vegna þessarar upprifjunar málsins og með vísun til þess, sem fram kom hjá hæstv. ráðh., að málið fái nú hið fyrsta framgang sem fleyti því yfir byrjunarhjallann þannig að til útgáfustarfsins megi draga hið fyrsta.