20.04.1982
Sameinað þing: 77. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3976 í B-deild Alþingistíðinda. (3504)

368. mál, móðurmálskennsla í fjölmiðlum

Menntmrh. (Ingvar Gíslason):

Herra forseti. Ég ætla að leyfa mér að rifja upp, eins og hv. fyrirspyrjandi, aðdragandann að þessu máli. Það er rétt, að á Alþingi 1977–78 kom fram till. frá fimm alþm. um íslenskukennslu í fjölmiðlum. Till. hljóðaði þannig, með leyfi hæstv. forseta, ég ætla að lesa hana eins og hún hljóðaði upphaflega:

„Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að sjá svo um, að sjónvarp og útvarp annist kennslu og fræðslu í öllum greinum móðurmálsins. Þrettán manna ráð, kosið hlutfallskosningu á Alþingi, skal hafa með höndum stjórn þessara mála.“

Þannig hljóðaði þessi till. og verður auðvitað ekki annað sagt en að hún lýsi miklum metnaði flm. fyrir hönd íslenskrar tungu. Að því leyti til er mikið gott um hana að segja, enda var till. samþykkt sem ályktun Alþingis, en þó með þeirri allmiklu breytingu, að síðari efnisliðurinn, um 13 manna ráðið, var felldur niður. Það er sá liður sem hv. fyrirspyrjandi, sem einnig var 1. flm., kallar nánast „akademíu Íslands“. .

Þál. þessi hefur alloft verið kynnt Ríkisútvarpinu á síðustu árum með óskum um að hún hlyti þar góðar viðtökur, þ.e. að fræðsla um íslenskt mál yrði ávallt mikil og sem mest í ríkisfjölmiðlum. Ég er viss um að þeir, sem gegnt hafa embætti menntmrh. síðan þessi till. var samþykkt, og það eru alls fjórir menn að mér meðtöldum, hafa allir haft skilning á því, að æskilegt væri að fræða almenning sem mest um móðurmálið í útvarpi og sjónvarpi. Þetta held ég að sé sameiginlegt einkenni á öllum þeim sem farið hafa með starf menntmrh. síðustu 4–5 ár. Hins vegar reynist málið alls ekki alveg svona einfalt þegar til kastanna kemur.

Sannleikurinn er sá, að forráðamenn Ríkisútvarpsins hafa eigin skilning á því, hvernig eigi að fjalla um dagskrármál og efnisval til flutnings í fjölmiðlum stofnunarinnar. Útvarpið er af grundvallarástæðum ófúst að taka við fyrirmælum frá framkvæmdavaldi og jafnvel frá löggjafarvaldi um hvaða efni skuli flytja í útvarpi og sjónvarpi. Útvarpsráð vill sjálft semja dagskrár ríkisfjölmiðla og unir því ekki að slíkt verði gert á Alþingi eða í stjórnarráði. En ég fullyrði að útvarpsráði er mjög vel kunnugt um áhuga Alþingis á fræðslu um móðurmálið og þeirri vitneskju hefur oft verið komið á framfæri við útvarpið.

Ég hef hér í höndum bréf frá útvarpsstjóra sem er dags: 23. mars s.l. Þetta bréf ætla ég nú að lesa í heild, enda er bréfið skrifað í tilefni af þeirri fsp. sem hér er nú til umr. Og ég vek enn athygli á því, að það er orðið býsna langt síðan þessi fsp. kom fram og það hefur ekki staðið neitt á því að ég svaraði fsp. fyrr. Ég vil að það komi skýrt fram. En bréfið hljóðar þannig:

„Til menntamálaráðuneytisins.“ Ég ætla að leyfa mér að lesa þetta bréf, hæstv. forseti, í heild.

„Í útvarpi hafa um langt skeið verið fluttir kennslu- og fræðsluþættir um íslenskt mál og eru enn fluttir í óbreyttu formi. Er þar fyrst að nefna þáttinn Íslenskt mál sem starfsmenn Orðabókar Háskólans sjá um. Í þeim þáttum er mjög oft leitað upplýsinga til almennings um orð og orðtök, könnuð útbreiðsla og notkun og veittar margvíslegar skýringar. Þáttur þessi er fluttur meiri hluta ársins og jafnan endurtekinn.

Þátturinn Daglegt mál hefur lengi verið á dagskrá útvarpsins í umsjá sérfróðra manna. Þar er fjallað um íslenska tungu samtímans, mælt mál og ritað. Þáttur þessi er um það bil 5 mínútur tvisvar í viku árið um kring.

Í sjónvarpi eru ekki fræðsluþættir um íslenskt mál sem stendur. Þar var gerð þáttaröð um myndhverf hugtök fyrir tveimur árum og þótti takast allvel. Einnig voru gerðir tveir þættir um málnotkun og málsögu og olli annar þeirra nokkru uppnámi.

Á s.l. hausti flutti einn útvarpsráðsmanna (Markús Örn Antonsson) tillögu um móðurmálsþætti fyrir börn á forskólastigi og í fyrstu bekkjum grunnskóla. Fulltrúi frétta- og fræðsludeildar kannaði þetta mál, m.a. með viðtölum við sérfræðinga, og varð niðurstaðan neikvæð um þetta efni, en æskilegra talið að beina kennslu til foreldranna, sem eiga að móta málfar.afkvæma sinna. Er nú unnið að þessu máli.

Segja má að sérhver manneskja, sem talar í útvarp eða sjónvarp, leggi sinn skerf til málþróunar (góðrar eða illrar). Stjórnendur dagskrárdeilda í útvarpi og sjónvarpi eru menntaðir menn og vel að sér í íslensku máli og hafa ætíð sýnt meðferð tungunnar lifandi áhuga. Það er ekki rétt að saka þá um þó að sitthvað misgott fljóti með í þeim mikla orðaflaumi sem berst gegnum þessi tæki. Þess ber að geta, að ár hvert eru flutt erindi, umræður og upplestrar, sem veita beint og óbeint fræðslu um íslenskt mál og bókmenntir.

Andrés Björnsson.“

Þannig hljóðar þetta bréf. Ég held að bréfið sýni það, að dagskrárstjórn Ríkisútvarpsins vill fara sínar leiðir í dagskrárgerð. Og reyndin mun sú, að útvarpsráð vinsar úr aðkomnum hugmyndum um dagskrárefni að eigin mati, og skiptir þá ekki máli hvort hugmyndasmiðir eru sjálft Alþingi eða húsmóðir í Vesturbænum. Ég vil sem sagt að hér komi fram hvernig þessum málum er háttað.

Kjarni málsins er sá, að útvarpsráð hefur verið mjög ófúst að taka víð beinum fyrirmælum frá menntamálaráðherrum varðandi efnisval í Ríkisútvarpinu. Af grundvallarástæðum er þetta náttúrlega mjög eðlilegt sjónarmið. Hins vegar get ég líka fallist á það, sem komið hefur hér fram þegar hjá hv. fyrirspyrjanda, að það væri mjög æskilegt að Ríkisútvarpið sinnti móðurmálsfræðslunni meira en gert er, og ætla ég þó alls ekki að gera litið úr því sem gert hefur verið.