05.11.1981
Sameinað þing: 13. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 502 í B-deild Alþingistíðinda. (352)
41. mál, tölvustýrð sneiðmyndatæki
Fyrirspyrjandi (Þorv. Garðar Kristjánsson):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðh. fyrir svör hans, þó að ég hafi ýmislegt að athuga við það sem hann sagði.
Mér finnst einkennilegt að þetta mál skyldi fara svona fyrir brjóstið á hæstv. ráðh. Það lýsti sér í ummælum hans um, ég væri að hæla mér í sambandi við þetta mál, og svo líka því sem hann sagði, að þarna hefði ekki verið um gjafaloforð að ræða.
Ég aðeins vék að þeirri staðreynd, að ég hefði borið fram brtt. við fjárlagafrv. um þetta mál. Ég vék líka að því, að hæstv. ráðh. tilkynnti það og lét birta í fjölmiðlum og tilkynnti það a. m. k. í tveim afmælisveislum Landspítalans, að hér væri um að ræða gjöf til spítalans í tilefni af afmælinu. Ég sé ekkert niðrandi við þetta. Hversvegna sér hæstv. ráðh. það? Ég lét falla viðurkenningarorð um hæstv. ráðh. úr þessum stól fyrir um það bil ári út af þessu máli og þakkaði honum fyrir framgöngu hans í því.
Við þurfum ekki að deila um slík aukaatriði sem þessi. Þetta liggur ljóst fyrir. En ég fékk ekki neina viðhlítandi skýringu á því, hvers vegna það hefði dregist svo að gera ráðstafanir til að afhenda þessa gjöf. Þá hef ég það í huga, að Landspítalinn hefur verið að óska eftir og sækjast eftir að fá þetta tæki allt frá því árið 1976. Ég hefði haldið að það þyrfti ekki heilt ár til að gera kaupsamning um þetta tæki, sem hér er upplýst að hafi verið gerður 3. okt. 1981, en ég fagna því að þessi kaupsamningur hefur verið gerður. Ég tók þó ekki eftir að hæstv. ráðh. svaraði því, hvenær gert væri ráð fyrir að þessi gjöf yrði afhent.
Hins vegar lét hæstv. ráðh. orð falla á þann veg, að það væru ekki eðlileg vinnubrögð að Borgarspítalinn hefði fengið tölvustýrt sneiðmyndatæki, vegna þess, að mér skildist, að Borgarspítalinn hefði ekki haft samráð um það við hæstv. ráðh. Ég verð að segja, að skárri er það nú formfestan í þessum málum ef stofnun eins og Borgarspítalanum í Reykjavík er ekki heimilt að gera ráðstafanir til að afla sér þessarar nýju tækni á þann veg sem spítalinn hefur gert án þess, að því er virðist, að sækja um það til hæstv. ráðh. Hæstv. ráðh. hefði hér átt að nota tækifærið til lýsa ánægju sinni yfir þeirri þróun og yfir þeirri staðreynd, að Borgarspítalinn hefur fengið þetta tæki.
Ég spurði í tilefni af kaupum Borgarspítalans á þessu tæki hvort ríkisstj. vildi beita sér fyrir því að fella niður opinber gjöld af þessum tækjum ef svo kynni að fara að það væru fleiri sjúkrahús — og auðvitað hlýtur það að verða í framtíðinni — sem vilja fá þessi tæki og hagnýta sér þær tækniframfarir sem þeim fylgja. Það hljóta að vera fleiri sjúkrahús en Borgarspítalinn. Hvers vegna spyr ég um þetta? Vegna þess að þessi opinberu gjöld eru yfirþyrmandi. Tæki Borgarspítalans kostaði 1.5 millj. á cif-verði, en gjöld ríkisins eru 1.2 millj. af þessu tæki eða 77% af cif-verði. Hér er um að ræða toll, vörugjald og söluskatt. Mér er tjáð að það finnist ekki dæmi þess í nálægum löndum eða þar sem við þekkjum til, að það séu hrein opinber gjöld hliðstæð þessum tekin af slíkum tækjum. Þannig er annars staðar búið að þessum málum.
Spurning mín, sem ég ítreka enn, er þessi: Ætlar ríkisstj. ekkert að gera til að aflétta þessu fyrirkomulagi sem nú er, aflétta gjöldum af tölvustýrðum sneiðmyndatækjum?