20.04.1982
Sameinað þing: 78. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3985 í B-deild Alþingistíðinda. (3526)

21. mál, votheysverkun

Þorv. Garðar Kristjánsson:

Herra forseti. Ég kem hér til að þakka hv. atvmn. fyrir að vera búin að afgreiða þetta mál og leggja til að till. til þál. um votheysverkun verði samþykkt.

Nefndin hefur flutt brtt. sem hv. frsm. nefndarinnar hefur gert grein fyrir. Þessar brtt. eru tvær. Sú fyrri ber þess vott að það eru allmiklir málvöndunarmenn í þessari nefnd, eins og kannske mátti við búast. Þeir leggja til að í staðinn fyrir „almennari votheysverkun“ komi: aukin votheysverkun frá því sem nú er. Það kann að vera að þetta sé betra en það sem fyrir var. Ég leyfi mér þá að þakka nefndinni fyrir að leggja það til.

2. brtt. er um að umorða það sem segir í þáltill. í 3. og 4. tölul., þar sem kveðið er á um með hverjum hætti eigi að stuðla að aukinni votheysverkun, en í 3. tölul. till. segir: „með því að veita hærri stofnlán og framlög til byggingar votheyshlaðna en þurrheyshlaðna og 4) veita sérstök stofnlán og framlög til að breyta þurrheyshlöðum í votheyshlöður.“ Atvmn. gerir þá brtt. að fella þessa tölul. niður og láta koma í staðinn fyrir þetta einn tölul., sem verður 3. tölul., á þá leið að endurskoða reglur um stofnlán í því skyni að auðvelda bændum að breyta yfir í votheysverkun.

Ég skil ekki fullkomlega hvað liggur á bak við þessa brtt., en mér sýnist að það sé auðsætt að hún útilokar ekki að það sé gert sem till. gerði ráð fyrir í 3. og 4. tölul., þ.e. að hækka stofnlán og framlög til byggingar votheyshlaðna og að veita sérstök stofnlán og framlög til þess að breyta þurrheyshlöðum í votheyshlöður. Brtt. hlýtur að fela í sér að þetta verði gert. Á forsendum þess hef ég ekki fram að færa athugasemdir við brtt. og ítreka þakkir mínar til nefndarinnar fyrir afgreiðslu málsins.