20.04.1982
Sameinað þing: 78. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3991 í B-deild Alþingistíðinda. (3542)
54. mál, ávana- og fíkniefni
Davíð Aðalsteinsson:
Herra forseti. Ég þarf ekki mörgum orðum við þetta að bæta. Ég vil að gefnu tilefni þakka hv. allshn. fyrir jákvæða afgreiðslu þessa máls, og fyrir hönd flm. geri ég það jafnframt.
Ég er sammála því sem kom fram í framsögu hv. frsm. fyrir þessu nál., nema ef vera kynni niðurlagi framsögunnar. Það hefur komið í ljós, að fræðsla um skaðsemi ávana- og fíkniefna er mjög vandmeðfarm. Það hefur víða komið fram erlendis. Hins vegar vil ég alls ekki neita því, að fræðsla þurfi að fara fram, en ég endurtek: Hún er mjög vandmeðfarin.
Ég vil í þessu tilefni minna á að fyrir skemmstu kom fram frv. í Ed. þess efnis, að fræðsla um þessi mál skuli fram fara í grunnskólum landsins, og er ég einn flm. að þeirri till. þrátt fyrir þau orð sem ég hef hér flutt um efasemdir varðandi fræðslu. Hún er mjög vandmeðfarin.
Ég hef engar athugasemdir fram að færa vegna þeirrar brtt., sem nefndin gerði á till., og er fullkomlega sáttur við þá breytingu.
Ég vil að endingu þakka nefndinni fyrir góða afgreiðslu málsins.