20.04.1982
Sameinað þing: 78. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3995 í B-deild Alþingistíðinda. (3547)

249. mál, aukaþing til að afgreiða nýja stjórnarskrá

Forsrh. (Gunnar Thoroddsen):

Herra forseti. Sú stjórnarskrárnefnd, sem nú er að störfum, er skipuð 9 mönnum og eiga þar allir stjórnmálaflokkar fulltrúa. Strax á fyrstu fundum þessarar nefndar var lögð fram skrá yfir þau verkefni sem lagt var til að stjórnarskrárnefndin ynni að. Það voru milli 25 og 30 atriði sem talið var nauðsynlegt að taka til athugunar í stjórnarskrármálinu. Öll þessi atriði hafa verið rædd og rakin mjög rækilega á fundum stjórnarskrárnefndarinnar. Hún hefur aflað margvíslegra gagna til upplýsinga innanlands og utan.

Vitanlega er það nú eins og oft áður, að kjördæmamálið er það atriði úr stjórnarskránni sem einna mestar umr. hafa farið fram um, en þar eru fjölmörg önnur atriði, eins og ráða má af þessari verkefnaskrá sem ég nefndi.

Haustið 1980 tók nefndin saman tvær skýrslur, sem hún sendi þingflokkunum og siðar fjölmiðlum. Í þessum skýrslum var annars vegar greint frá kjördæmamálinu og margvíslegum tillögum og hugmyndum í sambandi við kjördæmaskipan og kosningar til Alþingis. Í hinni skýrslunni voru rakin öll hin atriðin sem um hefur verið fjallað.

Nefndin hefur haldið áfram störfum sínum og ég vil segja það hér sem formaður þessarar nefndar, að ég tel að samstarfið í nefndinni hafi verið með ágætum. Nefndarstörfum er svo vel á veg komið að ég ætla að það liggi nú nokkuð ljóst fyrir, hver tímaáætlun og starfsáætlun verði á næstunni. Gert er ráð fyrir að nefndin ljúki störfum og skili tillögum til breytinga á stjórnarskránni eða frv. til nýrrar stjórnarskrár af sér næsta haust og þannig verði möguleikar, eftir að þingflokkar og ríkisstj. hafa fjallað um málið, að leggja frv. fyrir næsta reglulegt Alþingi. Það þing fengi svo rúman tíma, nokkra mánuði, til umfjöllunar þess máls. Gert er ráð fyrir að frv. verði samþykkt á árinu 1983, þá væntanlega á vordögum, og þá skal samkvæmt stjórnarskránni rjúfa þing og efna til nýrra kosninga um stjórnarskrármálið, en þær kosningar féllu þá saman við almennar kosningar sem eiga að fara fram til Alþingis á því ári. Þing kæmi svo saman eftir þær kosningar og samþykkti stjórnarskrárfrv., þannig að það yrði að lögum, gilt sem ný stjórnarskrá eða stjórnarskrárbreyting. Við vonumst til þess í stjórnarskrárnefndinni, að slík starfs- og tímaáætlun geti staðist.

Ég skal ekki fara hér á þessu stigi að ræða einstök atriði sem nefndin hefur fjallað um, en það eru í rauninni öll þau atriði sem talið hefur verið, bæði í nefndinni og utan hennar, æskilegt eða nauðsynlegt að ræða. Fjallar það að sjálfsögðu bæði um aðalvaldhafana eða handhafa stjórnvalds, um forsetavald, um Alþingi, skipun þess og störf, um dómsvaldið og ekki síst mannréttindi og fjölmargt fleira. Ég hef áður oftar en einu sinni gert grein fyrir þessum málum.

Ég held að þessi vinnubrögð og áætlun, sem ég hér hef greint, séu heppilegust og hyggilegust í sambandi við stjórnarskrármálið.

Þá till., sem hér liggur fyrir og hv. 1. flm. hefur gert grein fyrir, skal ég ekki ræða ítarlega, en ég vil benda á þrjú atriði í sambandi við hana.

Í fyrsta lagi er gert ráð fyrir að kalla saman aukaþing sem fjalli eingöngu um stjórnarskrá og afgreiði stjórnarskrá, eins og það var ákveðið og orðað í till. Ef menn vilja hafa sérstakt stjórnlagaþing til að afgreiða stjórnarskrá, eins og stundum hefur verið gert í öðrum löndum, þarf auðvitað, ef það stjórnlagaþing á að hafa heimild til að afgreiða mál og fjalla ekki um annað, að gera fyrst stjórnarskrárbreytingu sem felur slíku stjórnlagaþingi að taka eingöngu stjórnarskrána til meðferðar og afgreiða hana. Hér er hins vegar farið fram á að venjulegt aukaþing sé kallað saman til að fjalla um og afgreiða stjórnarskrána, og það kemur fram og má lesa út úr grg. og skýringum á þessari till., að það er ætlast til að það aukaþing fjalli ekki um önnur mál en stjórnarskrána.

Nú er það þannig samkv. okkar lögum, að aukaþing hefur öll hin sömu réttindi og alþm. hafa öll þau sömu réttindi á aukaþingi og á reglulegu þingi. Á aukaþingi hefur hver þm. heimild til að bera fram frv., þáltill., fsp og annað. Nú má vera að fyrir hv. flm. vaki, að allir þm. bindist samtökum um að hreyfa engu öðru máli á þessu aukaþingi en stjórnarskrármálinu. Það má gera ráð fyrir að slíkt aukaþing stæði í 1–2 mánuði til að ljúka þessu stóra máli, og mér kæmi það heldur á óvart, ef allir þm., 60 að tölu, stilltu sig um það allan þennan tíma að minnast á nokkurt annað mál, ríkisstjórnina, efnahagsmál eða verðbólgu eða önnur slík vandamál sem fram kunna að koma, að þeir standist það í kannske á annan mánuð innan dagskrár eða utan að minnast ekki á neitt annað mál. Ég held áð það væri meiri sjálfsafneitun og sálarstyrkur en við eigum að venjast; og þyrfti í rauninni að leita til ársins 1000, þegar kristni var lögtekin, til að finna hliðstæðu eða fordæmi.

Þessu verða menn að gera sér grein fyrir, að það er ekki hægt með neinum viðtólum við þm. eða samþykktum þingflokka að binda þannig hendur allra þm. Þó að einhverjar slíkar samþykktir yrðu gerðar tel ég harla ólíklegt að allir þm. færu að sitja hér ágústmánuð og septembermánuð án þess að minnast á stjórnmál, aðeins stjórnarskrárbreytinguna eina. (Gripið fram í.) Ég veit ekki hvort hv. þm., sem hér greip fram i, formaður þingflokks Alþfl., treystir sér til að múlbinda alla sína þm. þannig að þeir mæli aldrei orð innan eða utan dagskrár um annað mál. Mér kæmi það ákaflega á óvart og reynslan sýnir annað.

Næsta atriði, sem ég vil minnast á í sambandi við till., er þetta, að í henni segir að þetta aukaþing skuli afgreiða nýja stjórnarskrá. Nú þýðir þetta að þegar þetta aukaþing væri búið að afgreiða, þ.e. að samþykkja, nýja stjórnarskrá, þá skal samkv. 79. gr. stjórnarskrárinnar rjúfa þing þá þegar og efna til nýrra kosninga. Nú kemur í ljós að þetta hefur ekki verið ætlunin eða hv. flm. hafa ekki hugsað út í þetta ákvæði stjórnarskrárinnar, og þess vegna kemur fram hjá hv. 1. flm. að það megi að vísu ljúka þessu máli að mestu leyti, en það væri í lófa lagið að fresta lokaafgreiðslu á stjórnarskránni á þessu aukaþingi. M.ö.o. er þá haldið fram öðru en því sem segir í sjálfri till. að eigi að afgreiða. En ef þessi háttur þyrfti að verða á vænti ég að hv. flm. geri sér grein fyrir því, að þá yrði á næsta reglulega þingi, sem kemur saman í október, að fjalla um málið frá byrjun, því að um leið og einu þingi er lokið, því er slitið, hvort sem það er reglulegt þing eða aukaþing, falla niður öll þau þingmál sem þar hafa verið til meðferðar. Jafnvel þó að það væri komið á lokastig, kannske 3. umr. í seinni deild, verður að byrja á nýjan leik á næsta þingi. Jafnvel með þessari breytingu, sem hv. 1. flm. var nú að gera grein fyrir, er þétta allt saman ákaflega hæpið.

Ég vil aðeins nefna þriðja atriðið, sem kannske má kalla formsatriði, en er það þó ekki að öllu leyti. Okkar stjórnskipun byggist nefnilega á skiptingu valds í þjóðfélaginu: framkvæmdavalds, löggjafarvalds og dómsvalds, og það er beint tiltekið í stjórnarskránni hvaða vald er á höndum forseta Íslands og hvað á höndum Alþingis. Nú segir í 22. gr. stjórnarskrárinnar: „Forseti lýðveldisins kveður Alþingi til aukafunda, þegar nauðsyn er til.“ Þetta þýðir auðvitað í verki eins og menn vita, að forsrh. gerir tillögu til forseta Íslands um það, hvort ástæða sé til þess eða nauðsyn að kveðja Alþingi til aukafunda, og síðan er það forseti, eftir tillögu forsrh., sem tekur ákvörðun um hvort slíkt skuli gert. Það, hvort eigi að kalla saman Alþingi til aukafunda, er því samkv.. stjórnarskránni framkvæmdavaldsathöfn á vegum forseta Íslands og forsrh. Stjórnarskráin ákveður sem sagt ekki að Alþingi sjálft geti ákveðið að koma saman til aukaþings. Þannig eru nú ákvæðin um valdskiptingu samkv. stjórnarskránni.

Hitt er svo auðvitað allt annað mál, að auðvitað getur Alþingi samþykkt ályktun um að skora á forseta Íslands að kalla saman aukaþing. Hins vegar virðist till. vera byggð á því, að Alþingi hafi sjálft þetta vald, því að þetta er orðað þannig: „Alþingi ályktar, að kallað skuli saman aukaþing.“ M.ö.o. á Alþingi að ákveða að kalla saman aukaþing sem ekki stenst samkv. stjórnárskránni.

Það má kalla þetta formsatriði, en það er það í rauninni ekki. Hér er um að ræða grundvallaratriði í verkaskiptingu samkv. stjórnarskránni. Náttúrlega mætti lagfæra þetta með því að breyta því á þá lund, að Alþingi álykti að skora á forseta Íslands að kalla saman aukaþing. En það er skylt, þegar svona er að farið, að benda a.m.k. á þessi atriði.

Ég vil ljúka máli mínu með því að ítreka að ég tel að meðferð og væntanleg afgreiðsla stjórnarskrármálsins væri heppilegust með þeim hætti sem ég hér gerði ráð fyrir, sem sagt að stjórnarskrárnefndin skili af sér á næsta hausti og stefnt sé að því að leggja frv. til nýrrar stjórnarskrár fyrir hið reglulega Alþingi, sem kemur saman í októbermánuði, og stefna að því, að það verði afgreitt áður en því þingi lýkur, og síðan falla kosningar vegna þingrofs eftir samþykkt slíkrar nýrrar stjórnarskrár saman við hinar almennu kosningar, og þing, sem kæmi saman eftir þær kosningar, staðfesti svo stjórnarskrána til fullnaðar.