20.04.1982
Sameinað þing: 78. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4002 í B-deild Alþingistíðinda. (3551)
249. mál, aukaþing til að afgreiða nýja stjórnarskrá
Vilmundur Gylfason:
Herra forseti. Í dag var kynntur fyrir þingflokkum listi með einum 59 málum sem hæstv. forsrh. og þar með hæstv. ríkisstj. og þeir flokkar, sem að henni standa, óska eftir að verði afgreidd fyrir þinglok. nú þegar kannske sex, sjö dagar lifa eftir af þessu þingi. Þetta er auðvitað ekkert einsdæmi. Þetta er kannske nokkuð há tala, nokkuð mikill málafjöldi, en þetta er hins vegar hinn venjulegi gangur mála. Og þegar þetta er skoðað og litið er til undanfarinna ára, hvernig halda menn að næsti þingvetur verði, sem væntanlega verður hinn síðasti þessarar ríkisstjórnar, þ.e. áður en gengið er til kosninga, ef við bætast á verkefnalista þess þings drög að alvörustjórnarskrá fyrir lýðveldið Ísland? Þá er ekki aðeins verið að tala um hin að mörgu leyti erfiðu mál, sem lúta að kjördæmaskipun; heldur ef farið er yfir allt sviðið, ef litið er til mannréttindamála, eins og talað hefur verið um, umhverfismála, dómsmála, mála sem snerta þjóðareign á landi, mála sem snerta þjóðaratkvæði, mála sem snerta störf Alþingis, svo að nokkuð sé nefnt.
Ég hygg að það sé alveg ljóst, að ef sú leið er farin sem hér hefur komið fram að hæstv. forsrh., sem jafnframt er formaður stjórnarskrárnefndar, vill fara, þá getum við sagt okkur það með nokkurri vissu á þessu augnabliki hvað muni gerast. Það, sem mun gerast, verður væntanlega að kannske hluti af þessu, kannske litið af þessu, kannske ekkert af þessu verður afgreitt. En inn á milli hins mikla málafjölda af venjulegu tagi, sem verður hér næsta vetur, á að fara fram pólitískur strekkingur af öllum sortum og gerðum um eitt meginmál, þ.e. um kjördæmaskipun. Það verður síðan afgreitt í þinglok og þá kannske með háskalegri flýti en menn hefðu kosið bæði þá og eftir á að hyggja.
Því er þetta sagt að fyrir þessu er reynsla, þetta hefur verið svo áður. Ég vil aðeins nefna eitt dæmi þessu skylt sem hér gerðist í vetur. Hér var uppi frv. um sveitarstjórnarmál. Í febrúar kom fram hugmynd frá tveimur hv. þm. í Ed., þeim Guðmundi Vésteinssyni og Ólafi Ragnari Grímssyni, um að fara með kosningaaldur niður í 18 ár, sem að því er sveitarstjórnarmál varðar er lagamál eða á heima í almennum lögum og ekki í stjórnarskrá. En tíminn var of naumur að sögn ráðamanna og embættismanna og af þessari breytingu varð ekki. Þetta er það sem koma skal — það er a.m.k. full ástæða til að óttast að þetta verði gangurinn næsta vetur að því er nýja stjórnarskrá varðar. Og hvers vegna er hægt að fullyrða það? vegna þess að ný stjórnarskrá hefur verið í smíðum allt frá árinu 1944. Af þessum ástæðum hefði maður ætlað að hæstv. forsrh., sem er þetta mál skyldara en öðrum þm. vegna þess að hann jafnframt gegnir því veigamikla embætti að vera formaður stjórnarskrárnefndar, gripi fegins hendi þá hugmynd um slíkt stjórnlagaþing sem hér er gerð till. um. Og maður hefði haldið að um þetta þyrfti ekki að vera neinn ágreiningur, heldur aðeins samkomulagsmál um útfærslu í þessum efnum. En því miður, hæstv. forsrh. hefur ekki kosið að taka þessari till. með eins jákvæðum hætti og hún er sett fram, heldur hefur hann tínt til minni háttar röksemdir gegn till. og sett sig í spor lagakennarans eina ferðina enn. En allt sýnast það vera fullkomlega minni háttar athugasemdir og einni þeirra lýsti hann sjálfur sem hreinu formsatriði í þessum efnum.
Því hefur verið haldið fram hér á einu stigi málsins að þessi till. væri jafnframt till. um þingrof og nýjar kosningar. Þar með væri málið náttúrlega orðið hápólitískt að því leyti, að í till. fælist vantraust á ríkisstj. Það gefur auga leið að þeir, sem flytja þessa till., eru ekki stuðningsmenn ríkisstj. En það er engin ástæða til að blanda því tvennu saman. Það felst ekkert í þessari till. um afstöðu manna með eða á móti núverandi hæstv. ríkisstj. Þetta mál er á algerlega öðru sviði. Og það eru leidd að því rök, sem ég held að menn mótmæli ekki, að tæknilegur framgangur þessa máls getur auðveldlega orðið með þeim hætti að fram verði látnar fara fimm umr. um þessi efni og látið þar við sitja.
Gerðar hafa verið athugasemdir um hvernig þm. muni hegða sér, annaðhvort á þessu þingi eða á næsta þingi, og það er alveg rétt, að þm. eru efalítið mismunandi rólegir eða órólegir. En ég held að það sé ekki nokkur ástæða til að ætla að nokkur maður muni virða að vettugi þennan vilja eða þessi vinnubrögð, og get ég djarft úr flokki talað í þeim efnum.
Ég held því að þær athugasemdir, sem eiginlega hvorki hæstv. forsrh. né formaður stjórnarskrárnefndar bar fram hér, heldur lagakennari — þegar hann tekur hæstv. Alþingi í lagaskóla, — þær séu allar svo lítilvægar að þær snerti ekki aðalatriði eða kjarna málsins. Þetta er till. um vinnuhagræðingu fyrst og fremst. Og ég held að hver maður hér geti sagt sér það, að verði ekki einhver slík leið farm, heldur sú venjulega leið, getum við sagt, sem hæstv. forsrh. talar fyrir, þá er hann að sigla sínu eigin máli í strand. Satt að segja hefði ég talið að það væri einmitt ekki still forsrh. að leggja til vinnuaðferðir í þessum málum sem mjög líklega sigla málum í strand. Af því höfum við reynslu í þessum efnum.
Það væri raunar fróðlegt að heyra hvað talsmenn annarra þingflokka segja um þessa till. Það má leggja á það þunga áherslu, að þetta er till. um tæknileg efni, hvernig tæknilega skuli að frágangi stjórnarskrárinnar staðið hér og af þeim einstaklingum sem fara með völd í þeim efnum. Stjórnarskrárnefnd hefur starfað lengi. Hún hefur vonandi starfað vel, ekki er það að efa. Einmitt þess vegna ætti það að vera hennar vilji og forustumanna hennar, að sú vinna sé ekki unnin fyrir gýg. Þetta er till. um að sú vinna nýtist. Reynslan er fyrir hinu. Verði sú leið farin að leggja þessa vinnu fram á reglulegu þingi bendir öll reynsla til þess, að mest af þeirri vinnu komi fyrir lítið. Það er full ástæða til að óttast að svo fari. Því væri óskandi að hæstv. forsrh. endurskoðaði þá afstöðu sína sem hann hér hefur kynnt. Sú leið, sem hér hefur verið mælt fyrir, væri áreiðanlega skynsamlegri leið.