20.04.1982
Sameinað þing: 78. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4021 í B-deild Alþingistíðinda. (3564)

249. mál, aukaþing til að afgreiða nýja stjórnarskrá

Eiður Guðnason:

Herra forseti. Ég gerði aðeins stuttlega að umtalsefni hér áðan samþykkt Alþingis frá 6. maí 1978. Það varð hv. 11. þm. Reykv. tilefni til þess að segja hér um hvað hefði orðið samstaða í stjórnarskrárnefnd. Málið er bara það, að þegar Alþingi Íslendinga hefur sett stjórnarskrárnefnd ákveðnar reglur skiptir engu máli þótt nefndin verði sammála um eitthvað annað. Það hlýtur að vera vilji Alþingis sem er æðstu lög í þeim efnum. Verði nefndin sammála um einhverjar aðrar starfsreglur en Alþingi hefur sett henni, þá er nefndin auðvitað komin út fyrir sitt starfssvið. Þess vegna hlýtur að vera alveg sama um hvað næst samstaða í stjórnarskrárnefnd, það er samþykkt Alþingis frá 6. maí 1978 sem er grundvöllurinn og starfsregla nefndarinnar. Það skiptir auðvitað öllu máli í þessu sambandi, ekki hvað menn kunna að verða sammála um í nefndinni sjálfri.