21.04.1982
Efri deild: 68. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4023 í B-deild Alþingistíðinda. (3567)
232. mál, öryggisráðstafanir gegn jónandi geislum
Frsm. (Davíð Aðalsteinsson):
Herra forseti. Heilbr.og trn. hefur fjallað um þetta frv. Það gerir ráð fyrir að við 1. gr. nefndra laga bætist ný mgr. er verði 2. mgr. og orðist svo:
„Ráðherra getur ákveðið. að fengnum meðmælum landlæknis, að ákvæði 1. mgr. nái einnig yfir geislatæki er framleiða aðra geisla en jónandi.“
Það skal tekið fram, eins og raunar stendur í aths. með þessu frv.. að það er flutt að höfðu samráði við Geislavarnir ríkisins og landlæknisembættið og er með því lagt til að heimilað verði að láta ákvæði 1. gr. laga nr. 95/1962 ná yfir önnur geislatæki en þau sem framleiða jónandi geisla. Til glöggvunar er munurinn á jónandi geislum og öðrum sá fyrst og fremst, að jónandi geislar eru orkuríkari, en aðrir orkuminni. Til dæmis eru röntgengeislar jónandi, en þeir geislar, sem við fáum af háfjallasólinni, og þeir geislar, sem eru í örbylgjuofnum, ekki jónandi. Þeir eru orkuminni. Ég fer ekki nánar út í að skýra þetta, en munurinn er þessi.
Nú getur einhverjum dottið í hug að ekkert eftirlit hafi verið með innflutningi þessa varnings hingað til eða meðferð þessara tækja. Svo hefur verið. Það hefur verið eftirlit. Hins vegar hefur það eftirlit vantað stoð í lögum og að sjálfsögðu er það ástæðan fyrir því, að þetta frv. er flutt hér.
Heilbr.- og trn. leggur eindregið til að þetta frv. verði samþykkt.