05.11.1981
Sameinað þing: 13. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 507 í B-deild Alþingistíðinda. (359)
41. mál, tölvustýrð sneiðmyndatæki
Magnús H. Magnússon:
Herra forseti. Ég er algerlega sammála hæstv. heilbr.- og trmrh. um að það átti og það á að kaupa eitt fullkomið sneiðmyndatæki fyrir landið. Það er yfirleitt talið nægilegt úti í löndum að eitt sé fyrir hverja millj. íbúa. Ég er líka sammála því, sem kom fram hjá hv. 1. landsk. þm., að það er mjög æskilegt að fljótlega eftir það komi „head scanner“ á Borgarspítalann vegna slysa. Taugaskurðlækningar eru að fara á Landspítalann, ef þær eru ekki komnar þangað núna, og þess vegna leysir það tæki yfirleitt það sem mest liggur á að leysa en slysin verða ekki leyst með því tæki. Ég held því að mjög æskilegt sé að fljótlega eftir þetta eina tæki komi „head scanner“ á Borgarspítalann, en það er auðvitað tiltölulega ódýrt tæki miðað við það sem núna er verið að kaupa fyrir Landspítalann.
Ég vil svo mjög taka undir það sem fram kom hjá hv. þm. Guðmundi G. Þórarinssyni um verkefnaskiptingu milli sjúkrahúsanna innbyrðis. Það er brýnt mál og geysilega miklir peningar eru þar í húfi. Það er hægt að gerð mikið þar. Það er búið að vinna mikla undirbúningsvinnu þannig að það er hægt að taka ákvarðanir fljótlega, en það eru margir kóngar í því kerfi sem þarf að keyra yfir, ef svo má segja. En ég legg áherslu á að þetta er geysilega þýðingarmikið verkefni í heilbrigðiskerfinu til þess að gera það markvissara og draga úr þeim kostnaði sem ella er um að ræða.