21.04.1982
Neðri deild: 67. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4059 í B-deild Alþingistíðinda. (3613)

58. mál, skattur á verslunar- og skrifstofuhúsnæði

Jón Baldvin Hannibalsson:

Herra forseti. Það hefur komið fram við fyrri umr. hér í dag hversu böslulega þeim hv. framsóknarmönnum gengur stundum að vera sjálfum sér samkvæmir í málum, jafnvel þótt ekki séu stórmál. Til þess var vitnað áðan í sambandi við umr. um skipan verðlagsmála, að þeir láti sér lynda að vera nú annarrar skoðunar í grundvallaratriðum þeirra mála en þeir voru þegar þeir áttu í öðru ríkisstjórnarsamstarfi fyrir ekki mörgum árum. Nú er líkt komið fyrir þeim í þessu máli. Það liggja fyrir yfirlýsingar þeirra um að þessi skattur sé óskynsamlegur og rangur, en engu að síður fallast þeir á að framlengja hann. Nú þarf ég ekki að tíunda rök málsins. Þeim framsóknarmönnum eru þau vel kunn og þeir hafa sjálfir lagt á það áherslu, hver þau eru.

Hér er um að ræða enn eitt dæmið um skatt sem settur er á tímabundið af sérstöku tilefni, en fyrir því er löng og dapurleg reynsla að slíkum sköttum hættir til fyrir einhvers konar tregðulögmál að verða varanlegir. Þetta er mismununarskattur. Hann er ákaflega vandmeðfarinn í framkvæmd, sbr. kærur sem út af honum hafa borist. Varla er til sá atvinnurekstur í landinu að hann þurfi ekki á að halda húsnæði til skrifstofustarfsemi. Þess vegna er vandasamt að meta það og kveða upp úrskurð um hvað af húsnæði fyrirtækja heyri raunverulega undir þennan skatt og hvað ekki.

Þetta er skattur sem lagður er á gjaldstofn sveitarfélaga og er því enn eitt dæmið um að ríkisvaldið er að seilast til skattstofna, sem öðrum eru ætlaðir, og rýra tekjumöguleika þeirra. Þá er spurningin sú, hver raunverulega beri þennan skatt, hvar skattbyrðin á endanum lendi. Það er alkunna að ríkisvaldið sjálft er einhver stórtækasti leigutaki skrifstofuhúsnæðis í landinu, og væri fróðlegt ef hægt væri að fá það upplýst hér h já hæstv. viðskrh., hvaða upphæðir það eru sem ríkið sjálft ætti raunverulega að greiða samkv. þessu í slíkan skatt.

Þá er tvennt að nefna annað af sérstöku tilefni. Þetta virðulega hús er í miðbæ Reykjavíkur. Alþm. hljóta að taka eftir því á daglegri göngu sinni til og frá þessu húsi hvernig komið er fyrir miðbænum. Fyrir skömmu var efnt til sérstakrar ráðstefnu um það vandamál, að Reykjavíkurborg er nú að verða dæmi um það alþjóðlega vandamál miðborga að þar fer starfsemi af hverju tagi hnignandi. Ástæðurnar eru margvíslegar, en m.a. þær, að mat á lóðum í miðbæ er hátt, fasteignamat er hátt og þegar þar við bætast aðrir skattar,,bæði af hálfu sveitarfélaga og ríkis, er hér oft um að ræða alvarlegan hemil á því, að húsnæði til nauðsynlegrar starfsemi sé við haldið eða það endurnýjað þannig að hægt sé að skapa lifandi miðbæ, sem er eitt eftirsóknarverðasta keppikefli í borgarskipulagi og hlýtur að vera. Á þessari ráðstefnu var hv. 3. þm. Reykv. ráðstefnustjóri. Eftir að samþykkt hafði verið ályktun um nauðsyn ýmissa aðgerða til að glæða miðbæinn nýju lífi, þar sem m.a. var í fólgin áskorun um að fella þennan skatt niður, fékk hann sérstök skilaboð á þá leið frá mönnum á þessari ráðstefnu, að þeir treystu honum til að sjá til þess, að þetta mál færi ekki hljóðalaust í gegnum þingið eina ferðina enn. Ég vænti þess, að við það verði staðið.

Að lokum vil ég aðeins nefna það, að fyrir ekki mjög löngum tíma skilaði opinber nefnd mjög viðamiklu nefndaráliti. Á ég þá við skýrslu starfsskilyrðanefndar. Þetta er með yfirgripsmeiri og vandaðri nefndaráritun um efnahagsmál sem lögð hafa verið fram á seinni árum. Kjarni þess máls er sá, að í skýrslunni er verið að fara í gegnum þann frumskóg mismununar sem fyrirtæki og atvinnurekstur í landinu þurfa við að búa. Stærstu málin í því eru að sjálfsögðu stórmál eins og gengisskráning, skattlagning, aðgangur að lánsfé, fjármögnun, fjárframlög og annað þess háttar. Kjarninn í tillögum þessarar nefndar er sá, að ríkisvaldið reyni að samræma gerðir sínar og hegða sér eftir einhverjum fyrir fram settum grundvallarreglum um að atvinnulífið í landinu búi við sambærileg innbyrðis skilyrði og samsvarandi skilyrði og keppinautar þess annars staðar. Maður hefði vænst þess, að hæstv. ríkisstj. reyndi að taka tillit til þess þegar hún fær jafnviðamiklar álitsgerðir upp í hendurnar þar sem mælt er með samræmdum vinnubrögðum af þessu tagi. Þess vegna mæla öll rök gegn því, að fyrir einhvers konar tregðulögmál eða mátt vanans rétti menn upp höndina eina ferðina enn með þessum skatti. Það væri lágmarkskrafa til þeirra framsóknarmanna, að þeir sættust á að styðja þá till. sem Alþfl. hefur hér flutt í þessu máli um að afnema þetta í áföngum.