21.04.1982
Neðri deild: 67. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4062 í B-deild Alþingistíðinda. (3615)

58. mál, skattur á verslunar- og skrifstofuhúsnæði

Geir Hallgrímsson:

Herra forseti. Hæstv. samgrh. kvaðst vera þeirrar skoðunar, að það væri óeðlilegt að leggja sérstakan skatt á einstakar atvinnugreinar, og er sú skoðun hans virðingarverð ef hann breytti eftir henni. En það kom fram hjá hæstv. samgrh. að sérstakar aðstæður gætu réttlætt skattlagningu á einstakar atvinnugreinar og réttlætt mismunun að þessu leyti, þannig að hann tók aftur með öðru orðinu það sem hann var áður búinn að segja. Ég skildi hæstv. ráðh. svo, að réttlætanlegur væri slíkur sérskattur og slík mismunun milli atvinnugreina ef um of mikla neyslu eða of mikla fjárfestingu væri að ræða. Nú er það svo, að of mikil neysla verður ekki læknuð eða úr henni dregið með skattlagningu á verslunar- og skrifstofuhúsnæði út af fyrir sig. Ég býst við að neyslustigið verði hið sama hvort sem þessi skattur er á lagður eða ekki. Að vísu má segja að þessi skattur fari að lokum út í verðlagið og sé því til þess fallinn að auka á verðbólguna. Miðað við takmörkuð fjárráð almennings getur hann þá e.t.v. að afar litlu leyti dregið úr neyslu, en það hefur ekkert markvert að segja. Það er t.d. ljóst að Samband ísl. samvinnufélaga og Kaupfélag Reykjavíkur og nágrennis eru að taka í notkun, að því er mér er tjáð og hef lesið, um 8000 fermetra í verslunarhúsnæði í Holtagörðum hér í borg, á vafasömu svæði, þar sem um er að ræða hafnarsvæði, en látum það liggja á milli hluta.

Þessi fyrirætlun sýnir að það er þörf fyrir verslunar- og skrifstofuhúsnæði og sú þörf skapast af nauðsyn almennings í landinu. Verslunarrekstur getur verið óhagkvæmari í of þröngum húsakynnum eða óhagkvæmum og því gæti skattlagning, sem kemur í veg fyrir framfarir í verslunarþjónustu, haft gagnstæð áhrif að þessu leyti.

En ef hæstv. samgrh. telur slíkan sérskatt á eina atvinnugrein réttlætanlegan ef um of mikla fjárfestingu sé að ræða, vil ég gjarnan spyrja hann þeirrar spurningar, hvort hann ætli sér að setja sérstakan skatt á fiskiskipakaup til landsins eða fiskiskipasmíðar hér innanlands því að mér hefur heyrst á honum að hann teldi of mikla fjárfestingu hafa átt sér stað í fiskiskipakaupum. Við höfum heyrt það hér undanfarna daga og vikur að ráðh. hefur með réttu vérið gagnrýndur fyrir frammistöðu sína í fiskiskipamálum, þar sem nýjum fiskiskipum er bætt við flotann á síðasta ári og á yfirstandandi ári er gert ráð fyrir 10 nýjum skuttogurum þegar fiskstofnar okkar eru fullnýttir, ef ekki ofnýttir. Er þá ætlun hæstv. sjútvrh. að setja sérstakan skatt á fiskiskipakaup eða notkun fiskiskipa, eins og hann mælir með sérstökum skatti á verslunar- og skrifstofuhúsnæði, vegna þess að hann telur um tímabundna offjárfestingu þar að ræða? Ég held að ef ráðh. ætlar að vera sjálfum sér samkvæmur sé ekki nema sjálfsögð ályktun að þetta sé ætlun ráðh. að gera. En hann getur upplýst þingheim um það á eftir.

Hæstv. viðskrh. hljóp ekki alveg eins fljótt af hólmi fyrri skoðana sinna og hæstv. samgrh. og ítrekaði að hann væri sömu skoðunar og í nóvembermánuði 1980, en afsakaði sig með því að vera í samsteypustjórn og þurfa þess vegna að taka tillit til sjónarmiða samstarfsaðila. Ég rifjaði það upp hér í fyrri ræðu minni, að þar á hann við tiflit sem hann yrði að taka til Alþb. því að aðrir samstarfsaðilar eru áreiðanlega sömu skoðunar og hæstv. viðskrh. í þessu efni, að telja þennan skatt óréttlætanlegan, eða ég taldi svo. Hann kvað Framsfl. hafa viljað lækka þennan skatt í áföngum. Þm. Framsfl. höfðu tækifæri til þess við 2. umr. þessa máls að greiða atkv. með tillögu þm. Alþfl. um að lækka þennan skatt úr 1.4% í 0.7 %, en þeir greiddu atkv. á móti þessari lækkun og voru þess vegna ekki heldur að því leyti samkvæmir sjálfum sér. Það góða, sem ég vil, það geri ég ekki, sannaðist á þeim.

Þá taldi hæstv. viðskrh. upp ýmsar skattalækkunartillögur Framsfl., sem hefðu náð fram að ganga: lækkun launaskatts á nokkrar afmarkaðar atvinnugreinar úr 3.5% í 2.5%, lækkuð stimpilgjöld og að þeir ættuðu að lækka aðstöðugjöld, en það verður ekki á þessu ári þegar öll sveitarfélög landsins hafa gengið frá fjárhagsáætlunum sínum. Hvað lækkun launaskatts og lækkun stimpilgjalds varðar tóku þeir það aftur, sem þeir höfðu afhent með þeim lækkunum, með hækkunum skatta á öðrum sviðum, með því að setja á tollafgreiðslugjald. Með því einu að láta skattvísitölu í tekju- og eignarskatti ekki fylgja tekjubreytingum á milli ára tóku þeir af skattborgurum þessa lands jafnháa upphæð og þessi skattur á verslunar- og skrifstofuhúsnæði gefur í heild sinni. Hefði skattvísitalan fylgt tekjubreytingum á milli ára hefði ríkissjóður haft til umráða þær tekjur sem skattur á verslunar- og skrifstofuhúsnæði gefur. og þegar af þeirri ástæðu er þessi skattur ekki réttlætanlegur eða framlenging hans.

Ég vil enn fremur minna á það, sem upplýst hefur verið, að skattaaukning í tíð núv. ríkisstj. og fyrrv. ríkisstj. Ólafs Jóhannessonar, sem tók við störfum í sept. 1978, ef miðað er við heilt ár 1977 annars vegar og yfirstandandi ár, nemur um 1000 millj. nýkr. eða 100 milljörðum gkr. Það er yfir 2000 nýkr. meiri skattur nú en var 1977 á hvert mannsbarn í landinu.

Ég hlýt einnig að minna á þann góða ásetning framsóknarmanna, sem birtist í ummælum hæstv. sjútvrh., formanns Framsfl., við umr. um stefnuræðu forsrh. á haustdögum 1980, þegar hann kvað það ætlun þeirra framsóknarmanna að vinna að lækkun eignarskatts, einkum á einstaklingum, en þar hafa þeir hvorki haft árangur né erfiði. Þeir hafa ekki lagt sig fram um það að einu eða neinu leyti, heldur svikið þessi fyrirheit sín fyrirhafnarlaust.

Sannleikurinn er sá, að í þessu skattafrv. kemur fram skattagleði framsóknarmanna og sú tilhneiging núv. ríkisstj., stefna núv. ríkisstj., að taka sem mest í ríkissjóð, auka ríkisumsvifin sem mest, skerða sjálfstæði einstaklinganna, efnahagslegt sjálfstæði þeirra, sem er forsenda andlegs frelsis og lýðræðis í landinu.

Ég vil svo leggja áherslu á að lokum að skattlagning sem þessi fer í þveröfuga átt við tillögur þær sem nefnd sú hefur gert er fjallaði um jöfnun starfsskilyrða atvinnuveganna. Sú nefnd fjallaði að vísu ekki um annað en jöfnun starfsskilyrða landbúnaðar, sjávarútvegs og iðnaðar, en sérstök áhersla hefur verið lögð á það af formanni þeirrar nefndar, dr. Jóhannesi Nordal, að nauðsynlegt væri einnig að jafna starfsskilyrði þjónustuatvinnugreina, eins og verslunar og samgangna, með tilvísun til starfsskilyrða iðnaðar, og landbúnaðar og sjávarútvegs, þar sem þjónustuatvinnuvegir gegndu jafnmikilvægu hlutverki í þágu heildarinnar, í þágu aukins hagvaxtar, sem einn getur verið grundvöllur batnandi lífskjara. Þessi skattlagning dregur úr þeirri þróun sem við verðum að treysta að eigi sér stað í framtíðinni, að hver vinnandi maður auki framleiðni sína, afkasti meira, til þess að unnt sé að hækka kaupið í landinu.

Þessi skattur er óréttlátur. Ráðherrar Framsfl. hafa gefið fyrirheit um að þessi skattur yrði aðeins tímabundinn, að hann yrði afnuminn. Það er ætlast til þess, að þeir standi við orð sín, og það kemur í 1jós nú hvort svo verður. Þeir hafa fallið á prófinu hingað til, en eitt tækifæri hafa þeir enn, við atkvgr. nú við 3. umr., til að standast það próf sem þeir hafa sjálfir sett sér fyrir.