21.04.1982
Neðri deild: 67. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4065 í B-deild Alþingistíðinda. (3618)

58. mál, skattur á verslunar- og skrifstofuhúsnæði

Geir Hallgrímsson:

Herra forseti. Með tilvísun til skýringar hv. síðasta ræðumanns varðandi afdrif frv. um verðlag, sem fellt var í Ed. 1968 og hæstv. viðskrh. vitnaði til, þarf ég ekki annað að segja en sú frásögn sýnir að í því efni snerist Framsfl. eins og snælda og gegn sannfæringu sinni, eins og honum er gjarnt þegar hann telur annarlegum hagsmunum sínum það henta. Þetta átti sér auðvitað stað í sambandi við lög um verðlag og samkeppnishömlur haustdagana 1978, þegar Framsfl. myndaði ríkisstjórn með Alþfl. og Alþb. og hvarf þá frá fyrri stefnu sinni frá því sama vori þar sem verðlag var gefið frjálst. Það er segin saga, að Framsfl. lætur sig hafa það að ganga af trú sinni og sannfæringu til að verma ráðherrastólana.

En til þess að það komi fram, að hæstv. viðskrh. veður reyk þegar hann telur að skattar til ríkisins hafi verið mestir í stjórnartíð okkar sjálfstæðismanna, þá er ekki nóg að vitna til ársins 1975, þegar Sjálfstfl. var búinn að vera í stjórn aðeins nokkra mánuði þegar fjárlög fyrir árið 1975 voru samþykkt. Þá tók Sjálfstfl. við slíku búi úr hendi Framsfl., Alþb. og Samtaka frjálslyndra og vinstri manna að það var nauðsynlegt að rétta þjóðarskútuna af og greiða óreiðuskuldir og koma lagi á ríkisfjármálin.

Hins vegar eru skattar til ríkisins sem hlutfall af vergri þjóðarframleiðslu samkv. skýrslu Þjóðhagsstofnunar, bls. 90, sem þm. hafa í höndum, 1977 25%, en áætlað er að þetta hlutfall sé á síðasta ári 29.2%. Eingöngu skattar til ríkisins hafa hækkað um 4.2%. Ef við tökum skatta til sveitarfélaga einnig með hafa þessar skatttekjur hins opinbera í heild hækkað úr 31.6% 1977 í 36,5% eða raunar um 5% af vergri þjóðarframleiðslu. Ef við teljum þjóðarframleiðsluna um 20 þús. millj. ber það heim og saman að 5 % eru 1000 millj. nýkr.

Ég tel nauðsynlegt að þetta komi fram til að sýna það og sanna, að það er skattastefna núv. ríkisstj. og annarra forvera hennar í hópi vinstri stjórna sem gerir það að verkum að sífellt er tekið meira og meira af tekjum almennings í ríkishítina. Raunar sýna þessar tölur ekki þróunina eins og skyldi, vegna þess að til viðbótar aukinni skattheimtu hefur ríkissjóður stóraukið lántökur sínar, þ. á m. erlendar lántökur, svo að lántökur eru nú um 14% af heildarútgjöldum í staðinn fyrir 6% áður. Í þessu er fólgin geysileg aukning skattheimtunnar í nútíð og framtíð.